Ægir

Årgang

Ægir - 01.02.2000, Side 22

Ægir - 01.02.2000, Side 22
UMRÆÐAN Hver má eiga °9 hve mikió? „Hinir stóru verÓa stcerri og öflugri en minni fyrirtcekin hverfa. “ Fyrir rúmum tveimur árum samþykkti Alþingi löggjöf um dreifða eigaraðild í sjávarútvegi þar sem sett var há- mark á samanlagða aflahlutdeild fiskiskipa í eigu ein- stakra aðila, bæði í einstökum tegundum og í saman- lagðri aflahlutdeild eða heildarkvóta. Samanlagður kvóti fiskiskipa í eigu einstakra aðila eða tengdra aðila má ekki vera hærri en 8%. Hámarkið færist þó upp í 12% ef enginn einn aðili fer með stærri hlut en 20% í félaginu og engar hömlur eru á viðskiptum með hluta- bréfin. En þrátt fyrir þessar leikreglur sem Alþingi samþykkti, með breytingu á lögunum um stjórn fiskveiða, þá hefur verið um það mikil og vaxandi umræða í þjóð- félaginu að eftir nokkur ár yrðu hér einungis örfá stór fyrirtæki í sjávarútvegi. Spámenn í þessum efnum gefa sér ýmist sem forsendu að lögun- um hljóti að verða breytt eða menn segja einfaldlega að lögin skipti ekki máli, menn finni leið- ir framhjá þeim. Hagræðingarbylgjan Fyrirtæki hafa á undanförnum árum verið að sameinast öðrum eða kaupa upp minni fyrirtæki, sameina aflaheimildir, sérhæfa rekstur sinn eða auka breidd og möguleika til að mæta þeim hag- ræðingar-og arðsemiskröfum sem stjórnendur þeirra standa frammi fyrir. Hinir stóru verða stærri og öflugri en minni fyrirtækin hverfa. Almennt virðast menn sammála um að í sjávarútvegi geti stórar einingar með fjölbreyttan rekstur verið hagkvæmar og talað er um „hagræðingarbylgjú*. En þó sameiningarferlið hafi haft þau áhrif að rekstur fyrirtækjanna ætti að vera orðinn dýrmætari hafa hlutabréf í sjávarútvegsfyrirtækj- um ekki hækkað jafn mikið und- anfarið og önnur og fá þeirra hafi hækkað í takti við þá sprengingu sem almennt varð á hlutabréfa- markaðnum á síðasta ári. Ein ástæða þess kann að vera sú óvissa sem er varðandi starfsumhverfið, ekki síst eftir svokallaðan kvóta- dóm í árslok 1998. Nú, eftir að Vatneyrardómur er fallinn hefur réttaröryggið enn minnkað. Það hefur því efalaust verið sjávarút- vegsfyrirtækjunum nægur biti að taka þá óvissu inn í virði fyrir- tækjanna. Snýst allt um hagræðingu? Síðasta ár var ekki eftirbátur ann- arra varðandi breytingar á eignar- haldi sjávrútvegsfyrirtækja og upphaf þessa árs slær tóninn fyrir framhaldið. Þegar horft er yfir sviðið er ljóst að það eru tvær stefnur í gangi. Annars vegar eru einstök fyrirtæki í sjávarútvegi að sameinast og hagræða eins og að framan greinir. Hins vegar eru fyrirtæki í sjávaraútvegi að kaupa hluti í öðrum sjávarútvegsfyrir- tækjum og eignarhaldsfélög eru að gerast umsvifamiklir eignarað- ilar í sjávarútvegi. Sum fyrirtækin eru í hvoru tveggja. Það voru fréttir af því í sumar að Samherji eignaðist tæplega 40% hlut í Skagstrendingi. Nú hefúr sá hlutur verið seldur og Samherji hefúr keypt um þriðjung hlutafjár í Hraðfrystistöð Þórs- hafnar. Einnig þótti fréttnæmt að Burðarás, eignarhaldsfélag Eim- skipafélagsins, væri jafnframt að auka hlut sinn í Skagstrendingi og eftir sölu Samherja á sínum hlut hefur Burðarás enn aukið við sig hlut í þvf félagi. I fréttabréfi Eim- skipafélagsins um mitt síðasta ár kom fram að Burðarás hefði fjár- fest á fyrri árshelmingi fyrir hátt í 3 milljarða, einkum í sjávarút- vegi. Síðan þá hefur Burðarás auk- ið hlut sinn í HB fyrir rúman milljarð og nú síðast eins og áður sagði keypt viðbótarhlut í Skag- strendingi og í Nasco. Burðarás, sem er eins og áður sagði eignar- haldsfélag Eimskipafélagsins, á orðið umtalsverðan og stundum ráðandi hlut í mörgum sjávarút- vegsfyritækjum sem sameiginlega nálgast það að hafa yfir um 20% heildarkvótans að ráða. Auk HB og Skagstrendings má nefna að fyrirtækið á tæplega 40% í UA og um fjórðungshlut í Síldarvinnsl- unni svo þau stærstu séu nefnd. Það hefur komið fram að það sé stefna félagsins að fjárfesta í traustum íslenskum sjávarútvegs- fyrirtækjum og vera virkur þátt- takandi í þeirri þróun og upp- stokkun sem framundan sé á þessu sviði. Utgerðarfélag Akur- eyringa hefur einnig verið í frétt- um vegna kaupa á hlutum bæði í Jökli á Raufarhöfn og sameiningu við Hólmadrang. Grandi og Þormóður rammi /Sæberg hafa einnig verið um- svifamikil í kaupum og sölu á bréfum í öðrum sjávarútvegsfyrir- tækjum. Þar eru einnig gagn- kvæm eignatengsl. Þegar fjallað er um eignabreytingar eða kaup á bréfum í sjávarútvegsfyrirtækjum kemur eitthvert þessara stóru fyr- irtækja gjarnan við sögu. 22

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.