Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1939, Síða 30
28
Aukakennari Ólafur Þorsteinsson, ejrrna-, nef- og hálslælcnir.
1. Fór með eldri nemöndum j'fir háls-, nef- og eyrnasjúk-
dóma 1 stund i viku hæði misserin, Við kennsluna var
notað: Fr. Leegaard: De vigtigste öre-, næse- og halgssyg-
dommer.
2. Ivenndi eldri nemöndum verklega greining og meðferð
háls-, nef- og eyrnasjúkdóma 1 stund í viku hæði misserin
í lækningastofu sinni.
Aukakennari Trausti Ólafsson efnafræðingur.
1. Fór með yfirheyrslu og viðtali yfir Biilmann: Organisk
og uorganisk Kemi, 4 stundir í viku hæði misserin.
2. Kenndi ólífræna efnagreiningu tvisvar í viku, 3 stundir
í senn. Yið kennsluna notuð: Julius Petersen: Uorganisk
lcvalitativ Analyse.
Aukakennari Júlíus Sigurjónsson læknir
kenndi heilbrigðisfræði 2 stundir í viku.
Aukakennari Iíristinn Stefánsson læknir
kenndi lyfjafræði 3 stundir í viku hæði misserin. Poulssons
Pharmakologie notuð við kennshma.
Aukakennari Vilhelm Bernhöft tannlæknir.
Hafði verklegar æfingar í tannútdrætti og fyllingu tanna
1 stund í viku hæði misserin.
Dr. med. Helgi Tómasson yfirlæknir.
Hélt fyrirlestra um almenna og sérstaka geðveikisfræði
fyrir læknanema, sem lokið hafa fyrra liluta, 1 stund í viku
bæði misserin.
Dr. med. Gunnlaugur Claessen yfirlæknir.
1. Flutti fyrirlestra um geislalækningar fyrir eldri stú-
denta, 1 stund í viku.
2. Hafði klíniskar leiðheiningar um Röntgen- og Photo-
therapie í Landspítalanum.