Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1939, Blaðsíða 62
60
Verður hér greint frá þvi helzta er ráðið starfaði að. — Ber þá
fyrst að greina það málið, sem ráðið undanfarin ár hefir nær óslitið
fjallað um, styrkjamálið. Var kosin nefnd til þess að gera athuganir
og tillögur til Stúdentaráðsins um þessi efni. Tók prófessor Ólafur
Lárussbn sæti i nefndinni fyrir tilmæli ráðsins.
Skilaði nefndin síðan ýtarlega rökstuddu áliti um þessi efni. Á
grundvelli þess fór svo Stúdentaráðið þess á leit við hið háa Al-
þingi, að náms- og húsaleigustyrkur til stúdenta yrði hækkaður upp
i 33.000 krónur úr þeim 24 þús., er hann áður var. Þegar þetta er
ritað, er ekki vitað, hvernig þessari málaieitun reiðir af. Vitað er þó,
að ýmsir ráðamenn á Alþingi eru hlynntir J)essari mjög svo hóg-
vær'u umsókn.
Upylýsiiigaskrifslofn starfrækti ráðið sem áður. Var henni nú ráð-
inn nýr forstjóri, Lúðvig Guðmundsson, fyrsti forstjóri hennar og
upphafsmaður. Var skrifstofunni fengið hetra húsnæði á Garði. Naut
hún lieirra húsakynna yfir sumarið, en varð síðan húsvillt á ný. Er
skrifstofan nú í bókaherbergi Garðs og er J)að í senn óhentugt henni
sjálfri og l)eim, er njóta vilja hins fátæklega hókakosts Garðs.
Reyndi Stúdentaráðið i samvinnu við forstjóra skrifstofunnar að
víkka starfssvið og koma á rekstri hennar sem helzt i l)að horf, að
stúdentum mætti að gagni koma. Hefir sú viðleitni að ýmsu leyti bor-
ið árangur, svo sem að samvinna hefir tekizt milli skrifstofunnar og
Viðskiptamálaráðuneytisins um úthlutun gjaldeyris til námsmanna
erlendis. Má óhikað vænta þess, að vel takist til um starfsemi skrif-
stofunnar undir stjórn hins ötula forstjóra hennar.
Þá lét ráðið hagsmunamál Garðs til sín taka. Var i fyrstu ákveðið
að veita 500 kr. gegn jafn miklu framlagi frá Garðstjórn til þess að
kaupa setustofuhúsgögn í samkomusal Garðsins. Sökum erfiðs fjár-
hags treystist Garðstjórn ekki til þess framlags, og bauðst þá ráðið
til þess að Iána Garði 1000 kr. með 4% ársvöxtum til 10 ára, auk
fyrrgreindra 500 kr. Tók Garðstjórn því boði og hefir síðan verið
aflað húsgagna eftir því sem fé hefir hrokkið til. Verður að líta
á þetta sem byrjunarráðstöfun i þessu efni. Þá hafði ráðið samvinnu
við Garðstjórn um úrræði til fjárhagslegrar aðstoðar Garðinum, en
fjárhagur hans er til muna of þröngur. Verður ekki séð, hvað upp úr
því hefst að svo komnu máli.
íþróttamál stiídenta komu nokkuð til afskipta ráðsins. Alþingi hafði
veitt 300 kr. styrk til íþróttaiðkana meðal háskólastúdenta. Var því
fé ráðstafað til skíðakaupa og lagði íþróttafélag Háksólans einnig
fram fé í þvi skyni. Voru keypt 10 pör af góðum skiðum og voru þau
lánuð stúdentum út ókeypis yfir velurinn. Voru þau all-mikið notuð