Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1939, Page 66
64
3. gr.
Höfuðstól sjóðsins, sem aldrei má skerða, skal ávaxta sem tryggi-
legast með því að kaupa fyrir fé sjóðsins bankavaxtabréf veðdeildar
I.andsbanka íslands eða önnur álika trygg verðbréf.
4. gr.
Reikninga sjóðsins skal gera eftir hver áramót, og skal endurskoða
þá með sama hætti sem reikninga annara sjóða háskólans og birta i
Árbók háskólans.
5. gr.
Af vöxtum eða öðrum arði og eignum sjóðsins skal jafnan ár hvert
leggja að minnsta kosti einn fimmta hluta við höfuðstól hans. Af-
ganginum skal eftir nánari ákvörðun háskólaráðs varið til þess, að
bjóða erlendum eða innlendum fræðimönnum að flytja eitt eða fleiri
erindi við háskólann og til útgáfu erinda þeirra á prenti. Skulu er-
indin gefin út jafnóðum á íslenzku og, ef ástæða þykir til, einnig á
einhverju erlendu máli, og skal það ritsafn bera nafn Haralds Niels-
sonar. Að jafnaði skal reynt að bjóða einum fyrirlesara á hverju ári,
en þó er háskólaráði heimilt, að láta fyrirlestrahald falla niður eitt
eða fleiri ár i senn, ef efnahagur sjóðsins eða aðrar ástæður mæla
með því, og má þá leggja saman tekjur fleiri ára til þess að kosta
einn fyrirlesara.
6. gr.
Leita skal staðfestingar konungs á skipulagsskrá þessari og birta
hana í Árbók háskólans.
Staðfest af konungi 8. okt. 1938.
Skipulagsskrá
fyrir Forlagsboghandler, Dr. phil. h. c. Ejnar Munksgaards
Stiftelse til Fordel for Det filosofiske Fakultet ved Islands
Universitet i Reykjavík.
1. gr.
Sjóðurinn skal bera heitið „Forlagsboghandler, Dr. phil. h. c.
Ejnar Munksgaards Stiftelse til Fordel for Det filosofiske Fakultet ved
Islands Universitet i Reykjavík.
2. gr.
Þegar sjóðurinn er stofnaður, eru eignir hans krónur 10000.00, og
skal fyrir höfuðstólinn kaupa dönsk skuldabréf, er á hverjum tima
er heimilt að nota til ávöxtunar ómyndugra fjár.