Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1942, Síða 111
109
38. gr. — Við próf þaiij er koma til greina við einkunnagjafir til
fulinaðarprófs, skulu vera tveir prófdómarar, og skal annar jieirra að
minnsta kosti vera utanháskólamaður.
Stjórnarráðið skipar prófdómara jjá, sem ekki eru liáskólakenn-
arar, eftir tillögum háskóladeildar, og skulu þeir gegna starfinu í 6 ár.
Stjórnarráðið ákveður borgun þeim til handa, eftir tillögu háskóla-
ráðs.
Deildarforseti kveður tit deildarprófdómara.
Við próf þau, er koma ekki til greina við einkunnagjafir til fullnað-
arprófs, eru ekki prófdómarar, en bókfæra skal nafn stúdents og prófs-
einkunn.
39. gr. — Rektor setur menn til að gæta kandídatanna við liinar
skriflegu úrlausnir.
Óheimill er kandídötum að veita hjálp eða leita hjálpar til hinna
skriflegu úrlausna. 'Þeim er óheimilt að tala saman, og jieir mega ekki
hafa aðrar bækur hjá sér en deild þeirra leyfir, og skulu liær bækur,
sem hver kandídat notar, rannsakaðar fyrir fram. Kandidatar mega
ekki heldur fá leyfðar bækur léðar hverir hjá öðrum. Brot gegn á-
kvæðum þessum varða rekstri frá prófi.
Kandídatar verða að vera komnir í sæli sín, áður en verkefnið tii
skriflegrar úrlausnar er lesið upp.
Skriflegu prófi i hverri deild skal lokið að minnsta kosti viku áður
en munnlegt próf byrjar.
40. gr. — Sérstök einkunn er gefin fyrir hverja úrlausn. Einkunn
fer bæði eftir jjekkingu þeirri, sem úrlausnin lýsir, og niðurskipun
og meðferð efnisins.
Deildarforseti tilkynnir kandidötum einkunnir þær, er þeir hafa
hlotið fyrir hinar skrifiegu úrlausnir, áður en munnlega prófið byrjar.
41. gr. — Prófandi og prófdómarar velja í sameiningu úrlausnar-
efni í hverri grein hins skriflega prófs, en munnlegum úrlausnar-
efnum ræður prófandi einn.
42. gr. — Prófandi og prófdómarar dæma i sameiningu um úrlausn
i prófgrein liverri. Hver um sig gefur einkunn fyrir úrlausnina.
43. gr. — Deildarforseti hlutast til um, að úrlausnarefni í hverri
prófgrein, séreinkunnir og aðaleinkunn sé færð í sérstaka bók, er próf-
andi og prófdómarar undirskrifa að loknu prófi.
44. gr. — Prófendur og prófdómarar gefa eftirfarandi einkunnir
í prófgrein hverri fyrir hverja úrlausn skriflega eða munnlega: