Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1942, Page 122
120
60. gr. — Háskólaráðið hefur yfirumsjón með sjóðum þeim og öðr-
um eignum, sem háskólinn á.
61. gr. — Háskólaráðið ráðstafar fé þvi, sem háskólinn hefur til
umráða, hvort heldur úr ríkissjóði eða öðrum sjóðnum, innan þeirra
takmarka, sem lög eða stofnskrár setja. Þó skal leita álits hlutaðeig-
andi háskóladeildar, áður en ráðstafað er fé til útgáfu kennslubóka
eða styrktarfé handa námsmönnum.
62. gr. — - Háskólaráðið gerir stjórnarráðinu skilagrein fyrir fé því,
er það hefur haft til umráða umliðið ár, innan loka næstkomandi
febrúarmánaðar.
63. gr. — Þeir stúdentar, sem æskja styrks af fé, sem háskólinn
hefur til umráða i þvi skyni, skulu i desembermánuði ár hvert senda
háskólaráðinu bónabréf og láta fylgja þvi vottorð um ástæður þeirra,
á prentuðu eyðublaði, sem fæst i skrifstofu ritara. Nú versna hagir
stúdents, sem hefur eigi sótt um styrk í desembermánuði, og má hann
þá sækja uin styrk fyrir liina siðari styrkúthlutun.
Aðeins iðnir, reglusamir og efnalitlir stúdentar geta búizt við að
fá styrk, hvort heldur námsstyrk eða húsaleigustyrk. Stúdentar þeir,
sem ekki hafa lokið prófi i forspjallsvisindum, skulu láta fylgja styrk-
beiðni sinni vottorð heimspekikennara.
64. gr. — Fé því, sem lagt er stúdentum úr rikissjóði sem liúsa-
leigustyrkur, útbýtir háskólaráðið í janúarmánuði.
Námsstyrkjum útbýtir háskóíaráðið tvisvar á ári, undir iok hvers
kennslumisseris. Þó má veita þeim, sein ganga ætla undir embættis-
próf, námsstyrk um það leyti, sem upplestrartimi þeirra byrjar.
Þetta tilkynnist öllum þeim, sem hlut eiga að máli.
Staðfest á ríkisráðsfundi 30. júlí 1942.
Skipulagsskrá
fyrir minningarsjóð Páls Bjarnasonar, skólastjóra
í Vestmannaevjum, er andaðist 5. des. 1938.
1. gr. — Sjóðurinn lieitir Minningarsjóður Páls Bjarnasonar, stofn-
aður af félögum og einstaklingum í Vestmannae'yjum, lil minningar
um farsælt starf hans þar í þágu skóla og menningarmáia.
2. gr. — Stofnfé sjóðsins er krónur 1056.21.
3. gr. — Sjóðurinn skal vera undir stjórn Háskóla íslands.
4. gr. — Háskóli íslands skal, tíunda hvert ár, veita verðlaun úr sjóðn-
um til visindalegra ritgerða náttúrufræðilegs efnis um Vestmanna-
eyjar eða vísindalegra rannsókna þar um sama efni, og má verja til