Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1988, Blaðsíða 11
2
Ræður rektors Háskóla íslands
Brautskráning kandídata 31. október 1987
Kœru kandídatav, góiiir gestir og samstcnfs-
menn!
Eg býð ykkur hjartanlega velkomin lil þess-
arar athafnar, er við fögnum með formlegum
hætti mikilvægum áfanga í lífi ykkar nú, þegar
þið hafið lokið háskólaprófi. Óskum við ykkur
hamingju og heilla við þessi tímamót og þökk-
um ykkur samstarfið á liðnum árum.
Háskólanám er erfitt en skemmtilegt nám,
h'mi mikillar vinnu og álags en oftast ánægju-
legasta tímabil ævinnar. Háskólaárin eru tími
nýrrar reynslu, nýiTa átaka og sigra, oft í bland
með vissum vonbrigðum. Þið munuð oft líta
um öxl og minnast margra ánægjustunda, en
jafnframt munuð þið gagnrýna okkur fyrir að
hafa ekki kennt ykkur meira og betur.
Þið megið einnig staldra við og færa þakk-
ir foreldrum ykkar og forsjóninni fyrir þá gæfu
sem þið hafið orðið aðnjótandi. Þeir eru marg-
lr sem vildu gjaman vera í ykkar sporum í dag,
vildu svo gjaman fá að njóta þeirrar menntunar
sem þið hafið hlotið en þeir gátu ei notið vegna
vanmáttar síns. Örlög manna eru misjöfn. Sum-
lr eru vanmegnugir að feta í ykkar spor. Því er
^kkj þannig farið að vilji sé allt sem þarf, það
þarf getu, og ekki eru allir eigin gæfu smiðir.
Þeirri spumingu er oft varpað lram hvort
menntun borgi sig, — fyrir einstaklinginn eða
fyrirþjóðfélagið. Hvaða gildi hefur menntunin
fyrir þig, kæri kandídat? Menntunin opnar þér
nýja heima á ýmsum sviðum fræða, vísinda og
hsta. Menntunin gerir þér kleift að njóta margs
þess besta sem hefur verið hugsað, skrifað og
skapað. Menntunin veitir þér tækifæri til auk-
lns skilnings og meiri lífsfyllingar. Menntunin
vettir þér einnig meiri og betri starfstækifæri,
tækifæri til að fá áhugaverðari störf og betur
launuð störf.
Samfélagið þarfnast vel menntaðra starfs-
manna á öllum sviðum atvinnulífs, hvort held-
ur er í þjónustu- eða framleiðslugreinum. Þörf
atvinnulífsins fyriraukna menntun vex stöðugt,
þörf fyrir nýja tækni og nýja þekkingu. Þið
verðið nauðug, viljug að viðhalda þekkingu
ykkar og hæfni nieð símenntun, þvf þekking-
in úreldist hratt í rnörgum greinum.
H vaða kröfur eru þá gerðar til hins menntaða
manns? Hvaða eiginleika þarf hann að hafa?
Þess cr vænst að mcnntunin veiti allt í senn,
þekkingu og fæmi, víðsýni og umburðarlyndi.
Hinn menntaði maður hefur tamið sér sjálf-
stæða, gagnrýna hugsun, hann fellur ekki fyr-
irsögusögnum né viðhefursleggjudóma. Hann
mótar eigin skoðanir.
Hér í Háskóla íslands höfum við lcitast við
að veita ykkur þá þekkingu sem við vitum besta
og nýjasta, en ný þekking bætist stöðugt í þann
forða sem fyrir er. Vísindin afia stöðugt nýrr-
ar þekkingar, og það er eðli vísinda að valda
breytingum og kollvarpa gildandi kenningum.
Með aukinni þekkingu verða eldri kenningar
úreltar og nýjar koma í staðinn, en hinn síð-
asti sannleikur verður seint fundinn. Menntun-
in veitir nýjan skilning og eykur sýn til allra
átta, en þekkingarleilin tekur aldrei enda, hún
vekur ætíð nýjar spurningar.
A þessum tímamótum í lífi ykkar lítið þið
frani á veginn og spyrjið hvers sé að vænta
í framtíðinni. Fvit á þessu ári kom út ritið
„Gróandi þjóðlíf". Það hcfur að geyrna nokkuð
af niðurstöðum nefndar er vann að framtfðar-
könnun á vegum forsætisráðuneytisins. I ritinu