Alþýðumaðurinn


Alþýðumaðurinn - 23.12.1947, Blaðsíða 17

Alþýðumaðurinn - 23.12.1947, Blaðsíða 17
1947 SPARISIÓÐSBÓK MÖMMU (Framhald af 5. síðu.) um í Krupérsbakaríinu og fékk greitt í gömlum, en óskemmdum brauðum. Pabbi þvoði flöskur á kvöldin í mjólkurbúðinni og fékk þrjá potta af mjólk fyrir og eins mikið af áfum og hann gat rogast með heim. Mamma bjó til dásam- legan ost úr áfunum. En daginn, sem verkfallið var úti, sýndist mér mamma rétta eins og ofurlítið úr bakinu, líkast því sem hún væri að varpa af sér þungri byrði. Hún leit sigri hrósandi kringum sig og sagði brosandi: „Bærilega tókst það enn. Þarna sjáið þið, við þurftum heldur ekki núna að grípa til sparisjóðsbókarinnar." Og allt í einu — eða svo fannst okkur börnunum það að minnsta kosti — vorum við öll fullvaxin og farin að vinna. Heima varð hljótt og kyrrlátt og pabbi komst á eftir- laun. Og loks kom þar, að ég seldi handrit að fyrstu sögunni minni. Þegar ég fékk ávísunina fyrir það, flýtti ég mér til mömmu og lagði hinn aflanga græna miða í hönd henni. „Þetta átt þú að fá, mamma, til að leggja inn í sparisjóðsbókina þína.“ Mannna atlmgaði ávísunina of- urlitla stund. „Þakka þér fyrir, barnið mitt,“ sagði hún og mér duldist ekki, að mamma var mjög glöð og stolt. „Á morgun verður þú að fara með ávísunina í bankann,“ sagði ég- „Ferð þú með mér, Kathryn?“ „Þess þarf ekki, mamma. Sjáðu, ávísunin hljóðar á'þitt eigið nafn, svo að þú þarfl ekki annað en biðja um, að hún sé greidd inn í spari- sjóðsreikning þinn.“ Ofurlítið bros flögraði um varir JÓLABLAÐ ALÞÝÐUMANNSINS 15 SKOR VIÐ BREIÐAFJÖRÐ (Framhald aj 3. síðu.) ég sneri aftur fyrir lnæðslu sakir af leið, sem konur og börn fara. En ósjálfrátt varð mér hugsað til þeirra manna, sem þurftu að hafa fjárgeymslu í Skorarhlíðum á vetr- um. Það hlýtur að vera bæði erfitt verk og bá'skasandegt. Til allrar hamingju þurfti ég þess ekki, en áður en varði, var ég kominn yfir skriðuna, í grösuga, iðgræna vall- lendisbrekku. Eg var kominn i Skor. I Skor er allmikið graslendi, gengur þar fram dálítið nes, al- gróið, en upp af því valllendis- brekkur. Fram af nesinu ganga klettahleinar í sjó fram allháar. Milli þeirra skerst mjór vogur, Skorarvogur. Er hann sennilega Skorin, sem staðurinn dregur nafn af. Var þar talin allgóð lending, en stórgrýtt er þar og undanfæri lítið. Mikill gróður er á kletta- hleinunum, melur, skarfakál, sæ- hvönn og ýmislegt fleira. Nesið sjálft og brekkurnar upp af því eru einnig vafin grasi, bæði stör og vallgresi, enda er þarna bæði skýlt og sólríkt. Er Skorin undravinaleg- ur blettur þarna undir snarbröttum hamrafjöllum. Mun hún þó einkum vinaleg í augum þrevttra sjófar- enda, er þar leita lendingar eftir langan barning. En þarna er vest- asta lendingin við Breiðafjörð, unz komið er að Hvallátrum vestan Látrabjargs. Eins og nú hagar til, mundi mönnum þykja undarlegt, að Egg- ert Olafsson, skyldi leggja síðast frá landi á svo afskekktnm stað. En þá var þar síðasta landtakan mönnnu. „Það er ekki um neinn spari- sjóðsreikning að ræða,“ Sagði hún og leit á mig. „Eg hefi aldrei á ævi minni komið í banka.“ norðan fjarðarins, og stytzt þaðan suður yfir flóann. Um þær mundir var einnig byggð í Skor. Sér þar enn fyrir tóttum. Af jarðabók Árna Magnússonar sést, að þar hefir ver- ið nokkurt bú, en einkum var fén- aði þó framfleytt á útigangi. Út- ræði var þar einnig og gengu það- an 3—5 skip. Má af því ráða, að þá hefir verið ólíkt um að litast í Skor og iiú. Sýnir það einnig, hversu forfeður vorir leituðu hvers færis, ef gafst, til að framfleyta lífinu, því að engan mundi nú fýsa að reisa byggð í Skor eða stunda sjó þaðan. Degi tekur að halla. Eg hefi þrautskoðað allt graslendi í Skor og skrifað plöntulista. Nokkrum tegundum hefi ég stungið í tösku mína til minja. Áður en ég tek að staulast út yfir skriðurnar, sezt ég stundarkorn hjá vallgrónum tóttun- unum og hvíli mig. Lágvær logn- alda gutlar við stórgrýtið í fjör- unni. Við sjónum blasir Breiða- fjörðurinn spegilsléttur og sólstaf- aður svo langt sem augað eygir, en lengst í suðri má greina Snæfells- jökul sveipaðan sólmistri. Allt um- hverfið andar kyrrð og friði, og ekkert hljóð rýfur þögnina, nema einstaka mávagarg, en þeir eru þar á sífelldu flökkti. Hversu ólíkt hef- ir ekki verið þarna um að litasl hinn 30. maí 1768, er Eggert ýtti frá landi í síðasta sinn. Kvæði Matt- híasar skýtur upp í huganum: „Þú heyrir enn þá harmaljóð, sem hljóma frá kaldri Skor.“ Já, hingað til hefir mynd sú, er ég hef gert mér af Skor, verið kuldaleg og dökk, en nú, þegar ég held heimleiðis þaðan og lít yfir hana í síðasta sinn, baðaða í skini síðdegissólarinnar, finn ég, að héð- an af mun Skorin verða tengd sól- skini og sumri í huga mér. St. Std.

x

Alþýðumaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.