Dýraverndarinn - 01.09.1962, Page 4
Lengra varð ekki komizt í fyrstu lotu. En skipið,
sem fór til Þýzkalands, hreppti storm á leiðinni, og
lentu skipverjár aftur og aftur í miklum erfiðleik-
um um að verja hrossin limlestingum og dauða, því
að Jteim sló æ ofan í æ flötum í stíunum, og þrátt
fyrir alla viðleitni skipverja, hlaut eitt þeirra bana,
tróðst undir. Geta menn borið saman þessa meðferð
og ákvæði laga um dýravernd og séð, að hún er mjög
gróft brot á þeirri löggjöf!
En formaður Dýraverndunarfélags Reykjavíkur
var ekki sofnaður á verðinum. Hann liófst lianda
á ný og átti sér trausta stoð í skipverjum, og varð
Jsað nú að ráði, að hafa íramvegis einungis eitt hross
í hverri stíu. Þetta reyndist hið mesta þjóðráð, og
fór nú saman, að hrossunum leið stórum betur og
að eríiðleikar skipverja urðu barnaleikur á við ])á,
sem Jjeir liöfðu átt við að stríða, Jiegar Jteir voru að
reyna að verja hrossin beinbroti og harmkvælum,
Jnar sent eitt kastaðist á annað.
Áður hefur verið á Jiað bent hér í blaðinu og
skírskotað til reynslu sjómanna, að harðviðri með
stórsjóum eru alltíð alla mánuði ársins á hafinu
milli fslands og Evrópu nema helzt á tímabilinu
frá júnílokum til höfuðdags. Ekki Jjarf annað en
minna á stórviðrið, sem geysaði í hafi, Jjegar Hekla
var á leið til Noregs með Ingólfslíkneskið í júlí í
fyrrasumar, til að sanna mönnum, að í rauninni er
ótækt að flytja hross milli landa á Jjilfari — og
yfirleitt í öðrum skipum en Jieim, sem sérstaklega
eru til Jress ætluð. í júlístorminum í fyrra fórust
mörg skip, meðal annars hvolfdi í grennd við Fær-
eyjar stórum vélbát, sem stundað hafði hér við land
veiðar í verstu veðrum vetrarins, og fjöhnörg skip
lágu undir áföllum og sluppu naumlega úr greip-
um Ægis.
MERKILEG BÓK
lioger Tory Peterson, Guy Mountfort, P. A. D. Hol-
lom: FUGLAR ÍSLANDS OG EVRÓPU. Finnur
Guðmiindsson íslenzkaði og staðfærði. Almenna
bókafélagið 1962.
1.
Hver hefur ekki fylgt eftir fugli með augunum,
dáðst að litum hans og óþvinguðum hreyfingum?
Og hver hefur ekki hlustað á hin dillandi hljóð
skógarþrastarins á vori eða angurværan klið snjó-
tittlinganna að vetrarlagi? Hver hefur ekki leitt
hugann að frelsi Jæirra, högum og háttum? Hver
hefur ekki leitað að hreiðrum og átt sitt eítirlætis-
hreiður, fylgzt með eggjum þess og ungum?
Margur hefur hafið náttúruskoðun sína á Joví að
fylgjast með fuglum eða safna eggjum. Þýðandi Jæss-
arar ágætu bókar var ekki hár í lofti, er hann gerði
sínar fyrstu fuglaathuganir og skráði Jsær í litla
vasabók. Sama er að segja um Roger Tory Peterson,
sem átti frumkvæðið að útgáfu slíkra handbóka sem
Jteirrar, er Almenna bókafélagið gaf út í sl. jt'tní-
ntánuði. Forvitnin að kynnast fuglum nánar kom
]>ví til leiðar, að þeir Guy Mountfort og R. T.
Peterson hittust á Hawk Mountain í Bandaríkjun-
um 1949. Hinn fjölkunnugi fuglafræðingur Mount-
fort hafði kynnzt hinum handhægu og nákvæmu
fuglabókum R. T. Petersons um fugla í Bandaríkj-
unum. Fyrsta bók hans, sem kom á markaðinn 1934
— A Field Guide to the Birds —, olli straumhvörf-
um. Mikið lesmál stórra fræðirita var stytt í sím-
skeytastíl, en Jtó svo hnitmiðað, að einkenni hverrar
tegundar komu glöggt í ljós til samanburðar við
sérkenni annarra. Nákvæmar teikningar í litum eða
svart-hvítar gera samanburðarlýsingarnar enn ljósari.
Sérkennin eru dregin fram og á þau bent með örv-
um. Allar tegundirnar eru sýndar í litum á fæti
eða á sundi. En til Jress að auðvelda enn frekari
ákvörðun tegundarinnar er fuglinn sýndur á svart-
hvítri teikningu á flugi í hópi annarra skyldra teg-
unda og hann Juí séður bæði ofan frá og eins að
neðan. Sé munur á kynjum, eru þau bæði sýnd og
Jkí einnig ungfugl. Sé fjaðrahamur að vetri annar
en að sumri, er fuglinn einnig sýndur í vetrarbún-
52
DÝRAVERNDARINN