Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.01.1927, Qupperneq 4

Dýraverndarinn - 01.01.1927, Qupperneq 4
2 DÝRAVERNDARINN Steðji hjet hestur, og var nefndur svo af því, aö hann, á tryppisaldri. var bundinn einn vetur viö smiöjusteöja. Steöji var meöalhestur í minna lagi aö stærö, en þykkur og þiettvaxinn og rammur aö afli. Hann var aö lit kallaður glampaskjóttur eöa glámskjóttur, og glaseygöur á báöum aug- um. Þótti hann því hvorki fagurlitur nje fríöur í framan, en greindarlegur til augnanna þó, og nokkur hrekkjalómslegur á svipinn, enda haföi hann þaö til að vera pörupiltur. Yíirleitt var hann þó spaklátur og ljet ná sjer, hvar sem var, og hvorki beit hann nje sló. Hann var mjög þýður eöa mjúkur í gangi og fór að því leyti vel með alt, sem bak hans bar, bæöi dautt og lifandi, en blóðlatur var hann jafnt til reiðar og áburðar, og vddi jafnaðarlegast fara sínu fram um seinaganginn. Þótti því oftast þreytandi til reiðar og togandi í lest, og varð þá einn'g oft fyrir illu umtali og tiltali, og auk þess mörgu svipu- höggi. En Steðji ljet oftast alt þess háttar lítt á sig fá, ööru- vísi en svo, aö hann eins og hnussaði við, sneri upp á sig, hristi hausinn og skvetti upp rassinum. Sú var þó alt af bót í máli, að treysta mátti styrkleik hans og þoli, og var hann fyrir það betur umborinn. Einnig hafði hann þann góða kost, að hann var mjög stiltur og gætinn í raun, og ófælinn, þótt nokkuö gengi á og fyrir bæri skrölt og gauragangur, t. d. í kaupstöð- um. Bíia lifði hann þó ekki til að sjá og heyra. En telja má víst, eftir eðli hans og flestum háttum, aö hann hefði mjög fljótt áttað sig á þeim og litiö þá til þeirra og labbað fram hjá þeim með fyrirlitningu. Var stundum einkennilegt og gaman að sjá til Steðja, er eitthvað óvanalegt bar fyrir hann ; horfði hann þá svo skríti- lega og jafnvel íhyglislega á fyrirbærið, hallaði undir flatt og gaut til þess augunum glæhvítum, eða þá labbaði ógn hægt og gætilega að því og hnusaði, þangað til hann hafði gengið úr skugga um, að alt væri með feldu, eða þá hjegóminn einber. Jeg eignaðist Steðja, um 6 vetra gamlan, fyrsta árið mitt í (iuttormshaga og átti hann síðan meðan hann lifði, fram yfir tvítugt, og mæli nú svo um eftir hann, aö hann hafi verið einn af mínum iæstu og gagnlegustu gripum, þrátt fyrir upp-

x

Dýraverndarinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.