Dýraverndarinn - 01.01.1927, Blaðsíða 17
DÝRAVERNDARINN
13
Kitti Sokkason
heitir köttur sá, er hjer birtist mynd af. Guðmundur prófessor
Magnússon átti hann og hjelt rnikið upp á hann, enda var
hann dýravinur mikill. Kitti var skynsamur, eftir því sem
kettir gerast. Saknaöi hann mjög húsbónda sins, er liann ljest.
Móöir Kitta hjet Rósa. Hún var líka greindarköttur mikill.
Kettir hafa stundumi verið taldir heimskir, en aðgætandi er,
að harla lítil rækt hefir oftast verið við þá lögð, og lítið eftir
þeim tekið. Hundurinn t. d. umgengst manninn meira, og lærir
}m meira af honum. Hundur og hestur starfa m e ð mann-
inumi. Þeir verða því fjelagar og vinir. Kisa starfar ein síns
liðs. Hún verður þvi stundum ómannblendin, og starf hennar
er þannig vaxið, að best er að hún sje ein um það.
Annars fer vitþroski dýranna auðvitað mikið eftir þvi upp-
eldi, er þau fá, alveg eins og vitþroski manna. Þar er um satna
lögmálið að ræða. Surnir menn eru að ýmsu leyti engu betri
en dýr, vegna skorts á góðu uppeldi, •— vegna ræktarleysis
annara.
Frá Englandi.
Næsta ár, n,-—17. júlí, verður fundur haldinn í Caxton Hall,
Westminster, London. Halda fund þenna tvö fjelög, — fjelag, er
berst á móti kvikskurði hvarvetna í heimi, og dýraverndarfje-