Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.01.1927, Side 6

Dýraverndarinn - 01.01.1927, Side 6
4. DÝRAVERNDARINN Kom þaö því fyrir nokkrum sinnum, aö hann var sjálfkrafa kominn úr túni út á haga aö morgni, og lá eSa stóö þar helg- saddur af liesta túngresi, eins og annar sakleysingi, þegar út var litiö um fótaferö; og þaö brást varla, eftir að vit og reynsla hans voru orðinn full með efra aldri, aö hann Iteið jafnsak- leysislega eftir því, að allir væri háttaðir að kvöldi, áður en hann sýndi sig líklegan til túnsóknar. Var hann þá stundum svo grandvar, að hann var langt frá og sneri þá afturendan- um að bæ og túni ellegar laumaðist eitthvað þangað, er ekki varð til sjeð. En er vel mátti ætla, að allir væri háttaðir, og helst sofnaðir, þá máttu þeir, sem stundum gerðu Steðja það til bölvunar og skammar að vaka venju lengur, sjá, að hann fór að líta út undan sjer heim, og síöan snúa sjer og horfa í túnáttina; og þegar þá ekkert sást nje heyrðist til manna eða hunda, þá að fikra sjer heim undir, fyrst ofur hægt og gæti- lega og síðan rösklegar, annaðhvort aö garði, þar sem lægst var, eða hliði. Þetta Itlessaðist honum margoft, en einatt varð hann einnig staðinn að verki, og þá heldur harkalega stuggað við honum. Var hann þá skrítinn á svipinn, og nrargur sepp- inn fjekk illa á kjaftinn, er hann var að gjannna og glefsa fyrir afturendamim á honum, svo að þar með fylgdi einnig rnarg- ur skrækur. Til haíði hann það líka, að snegla sig aðeins fram- an í seppana, skaka hausinn illilega að þeim eða stökkva beint á þá, svo að þeir áttu fótum sínurn fjör að launa, og fara hvergi undan þeim, fyr en þá maður kom með, og seppar fengu viö þaö hug og dug til að hefna sín grimmilega. Svona gkk nú einatt til lijá Steðja í vorgróandanum og um túnasláttinn. En þaö var einnig oft erfitt að verja vetrarhey fyrir Steðja; því að þá hafði hann einnig mikið vit og lag á aö bjarga sjer, eigi aðeins viö opna heygarða, heldur og jafnvel þar, sem hey var í lokuðum húsum eða þá önnur björg; hann hafði líka góða lyst á fiskmeti og kornmat. Væri ])á hespa fyrir slíku búri, þá dró Steðji hana út og opnaði, eins og fyr var sagt um garðahlið; en hann komst líka upp á að snúa lykli í skemmuskrá, ef gleymst hafði að taka hann úr, og opna á þann hátt, líkt og mannfólkið gerir. En óhönduglega og nokk- uð seint ganga rnundi þótt hafa, ef mannskepna hefði átt í

x

Dýraverndarinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.