Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.01.1927, Side 13

Dýraverndarinn - 01.01.1927, Side 13
DÝRAVERNDARINN u gómlu mennirnir, sern lengi hafa sama trúnaöarstarfi gegnt með heiðri og sóma, aö þeir þola ekki að sjá aöra menn taka vi’ð störfunum, þótt þeir hins vegar finni kraftana þverra. Það eru liðin 20 ár siöan jeg keypti Mósa. Það var á Þorra og folinn þá 5 vetra, alinn upp í stóði og hinn vænlegasti að sjá. Hugði jeg að í honurn mundi gæðingsefni, svo jeg gaf honum vel, það sem eftir var vetrar og tamcli hann. Ekki þótti mjer fjör nje flýtir folans svara til þess, er jeg hafði gert rnjer vonir um. Seldi jeg hann því manni úr Reykjavík, er hjer átti leið um, sumarið eftir, á miðjum túnaslætti. Reið hann Mósa upp að Geysi og Gullfossi, og þaðan syðri leiðina vestur og heim til sin. Ekki var Mósi fyr úr eigu rninni farinn, en mig tók að iðra sölunnar, Eftir nokkra daga brá jeg mjer til Reykjavíkur, hitti eiganda Mósa og mæltist til við hann, að hann gæfi mjer upp kaupin. Varö það að samn- ingum. Eigandinn hafði frían reiðtúrinn, en jeg þjelt austur með Mósa og undi vel við miitt hlutskiíti. Hefði jeg vel getað tekið undir þessar hendingar vinar míns, Gísla frá Stóradal. er honurn varð að raula undir líkum kringumstæðum: — „en selji jeg aftur ungan Jarp, er jeg i slæmurn kröggum". Til þess kom heldur ekki. — ------Og nú ertu fallinn, gamli og þarfi klárinn minn, 25 vetra að árum, og án þess að nein ellimörk sæjust á þjer, enda hefði verið illa launuð löng og góð þjónusta, að biða þeirra. Það hefði engin bót verið, að bíða þess, að sjá þig ef til vill heysjúkan eða fóthruman, —• þig, sem aldrei hras- aðir, eða steigst eitt einasta feilspor á allri æfinni. Vertu sæll, vinur minn, og hugheilar þakkir fyrir samver- una! Ljúfar og hlýjar endurminningar og sakleysistár barna og unglinga fylgja þjer yfir landamærin. Böðvar Jónsson, Laugarvatni.

x

Dýraverndarinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.