Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.01.1927, Síða 14

Dýraverndarinn - 01.01.1927, Síða 14
12 DÝRAVERNDARINN Prati. var hestur nefndur, sem jeg hefi átt. Jeg fjekk hann 10 vetra hjá Kolbeini Eiríkssyni í Stóru-Mástungu í Gnúpverjahreppi, merkum bónda á sinni tiö. En sagöur var Prati ættaöur frá Skaröi í sama hreppi, orölögöum góöhestabæ. Prati þótti líka og var alla sina tí'ð meö bestu hestum til reiðar, og var sjerstaklega snillingur á skeiöi; fór helst ekki annan gang. Var hann því talinn tilvalinn kvenhestur, enda . ])ótti og konum mesta hnossgæti aö sitja á baki honum. Fór hann og mætavel undir sööli; í stærra meðallagi á hæð, og' heldur langur, rennilegur og strykinn með gljáandi búk, jarp- an, prúður á fax og tagl, og auk ]iess stinnur vel og stöðugur undir, vel viljugur, einkum í samreið, og hinn hressilegasti að sýnum og tilburðum. Prati var einn þeirra hesta, er sýna mjög mikið vit um þaö, að gera sjer mannamun og skynja hugarþel þeirra, sem við hann skiftu af svip þeirra, oröum og hreyfingum. Hann var mjög vel tanlinn og þægur í „brúkun", en styggur í haga, svo að hann náðist ekki, nema heimrekinn vanalega, og allra síst, ef hann þá varð var við kulda eða gremju í svip og fasi þess, er ætlaði að ná honurn. Hestur ])essi var ánafnaður konu minni og hún hafði yfir- ráöin á honum, eins og til var ætlast, enda notaði hún hann einan og vildi engan hest annan en hann, hvenær sem hún fór eitthvað á hestbaki, og hafði á honum hinar mestu mætur. Sýndi hún honum því marga og mikla blíðu, bæði í orði og verki, og hændi hann að sjer með því. En hann kunni þá líka að meta það og þakka. Sýndi hann það á margan hátt, vit- samlegan og vinsamlegan, þar á meöal með því, aö gegna henni í haga, koma alveg til hennar og þig'gja að henni góð atlot eða þá bita eða sopa. Á yngri árum miun hann hafa veriö nokkurn veginn jafn viljugur og skemtilegur undir karli senr konu, enda þá oftar verið karlmannsreiðskjóti. En á efri, og einkum efstu árum sínum, um tvítugsaldurinn, gerði hann sjer meiri mannamun, eftir hugarþeli og viðgerðum þess, er við var að skifta, enda var hann þá og eðlilega tekinn að stirðna

x

Dýraverndarinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.