Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.11.1972, Page 13

Dýraverndarinn - 01.11.1972, Page 13
DAUÐAGILDRA Fljótt á litið er hann myndarlegur kollótti hrútnr- inn á myndinni. En ef betur er að gáð, er hann ekk.'i lengur í fullu fjöri. Myndin er tekin fyrir nokkrum árum suður í Hafnarfirði. Sauðfé sótti mjög á beit undir harðfiskhjallana á árunum þegar sem mest var hert. Gras greri mjög undir hjöllunum og þangað sótti féð. Litlir strákar höfðu gert sér rólu í fiskhjalli nœrri bœnnm, en ekki tekið niður róluna, þegar leiknum lauk. Hrúturinn á myndinni hafði gengið í róluna, en snúið uþþ á meir og meir til að losa sig, en árangurs- laust. Að lokum hengdist hann. Eitt dœmi af mörgum um hve illa á heima að beita húsdýrum í þéttbýlinu. Lézt risaþvottabjörninn úr ástarsorg? Fyrir nokkru lézt í dýragarðinum í Moskvu heims- frægt dýr, en það er pandan eða risaþvottabjörninn An-An. Þar ríkti því mikil sorg — og ekki síður í dýragarðinum í London.. Þar dvaldi nefnilega An-An um nokkurt skeið, svo sem frægt var. „Við munum minnast An-An sem einstaklega elskulegs dýrs,” sagði einn af starfsmönnum dýra- garðsins í London í viðtali við blað eitt nýlega. Helzt er álitið, að An-An hafi dáið af hjartaslagi, en dauða hans bar að réttum þrem mánuðum eftir að vinkona hans, Ch-Chi í Lundúnagarði, hafði látizt fyrir aldurs sakir. Ymsir muna sjálfsagt eftir því þegar dýragarður- inn í London vildi gera tilraun til að fá „undir" fyrsta vestræna risaþvottabjörninn með því að fá An-An frá Moskvu. Hinn rússneski hreifst þegar í stað af hinn brezku og var til í tuskið, en öðru máli gegndi um Chi-Chi. Hún sneri ætíð upp á sig og vildi ekkert hafa, með þennan rússneska bangsa að gera. I dýragarðinum í London segja þeir: „Þau An-An og Chi-Chi áttu ekki geð saman. Hún var alltaf svo kuldaleg, en hann aftur á móti svo hress og kátur." En allar ástir fóru út um þúfur hjá björnunum, svo An-An var sendur heim aftur. — En sögur herma, að hann hafi aldrei borið sitt barr eftir Lundúna- ferðina. Risaþvottabjörnum eða pöndum fer stöðugt fækk- andi í heiminum. Það eru aðeins fáeinir á kreiki í Kína, og það eru sagðir vera aðeins til tveir í Norður- Kóreu og svo aðrir tveir á hvorum staðnum, Japan og Bretlandi, og eins og marga rekur minni til, þá fékk Nixon forseti tvo risaþvottabirni að gjöf, þegar hann heimsótti Kína, en það eru þeir tveir einu, sem til eru í Norður-Ameríku. DÝRAVERNDARINN 77

x

Dýraverndarinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.