Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.11.1972, Blaðsíða 14

Dýraverndarinn - 01.11.1972, Blaðsíða 14
Minning Þorsteins Erlingssonar Það var á síðastliðnu vori, þegar sólskríkjan söng sem glaðlegast, að afhjúpaður var og afhentur Reykja- víkurborg að gjöf, minnisvarði Þorsteins Erlingssonar skálds. Það voru Erlingur Þorsteinsson læknir og syn- ir Svanhildar heitinnar, systur hans, dr. Þorsteinn og Stefán Sæmundssynir, sem létu gera þessa brjóstmynd af Þorsteini og gáfu Reykjavíkurborg, en henni var val- inn staður á Miklatúni. Myndin er gerð af Ríkharði Jónssyni myndhöggvara og er talin mjög lík skáldinu. — A fótstalli brjóstmyndarinnar standa þessar ljóð- línur: „Ég trúi því sannleiki, að sigurinn þinn að síðustu vegina jafni." — Geta má þess, að árið 1958 — á aldarafmæli skálds- ins — lét Rangæingafélagið reisa, minnismerki um Þorstein í Hlíðarendakoti í Fljótshlíð. Sú stytta var gerð af Nínu Sæmundsson. — Við minnumst Þorsteins Erlingssonar fyrst og fremst sem hins ágætasta ljóðskálds, en eldri kynslóð þessa lands minnist hans einnig, og ekki síður fyrir það, að hann var á sínum tíma, einn skeleggasti málsvari dýr- anna og má segja að hann og Tryggvi heitinn Gunn- arsson hafi verið brautryðjendur dýravina og dýra- verndunar hér á landi fyrir og eftir aldamótin síðustu. Það voru þeir, sem aðallega sáu um að rita um marg- vísleg efni í ritið Dýravininn, sem á þeim tíma var all- útbreitt rit og mikið lesið, og minnast margir eldri kynslóðarmenn hinna gullfallegu ævintýra eftir Þor- stein Erlingsson, sem komu í Dýravininum á árunum 1893—1914, en Þorsteinn heitinn dó á því ári. — „Og það er víst, ef dýrin mættu mæla, þá mundi verða blessað nafnið þitt." Þessar ljóðlínur eru úr kvæði, sem Þorsteinn sendi Tryggva Gunnarssyni á sjötugsafmæli hans. — Og núna, löngu seinna, er vaxinn upp ný kynslóð, kynslóð, sem sennilega hefur ekki lesið dýrasögur Þorsteins Er- Minnisvarði Þorsteins Erlingssonar á Miklatúni. lingssonar, einfaldlega vegna þess, að gamli „Dýravin- urinn" er nú orðið sjaldgæft rit og í fárra höndum. Bók Þorsteins „Málleysingjar" er einnig fyrir löngu uppseld. Dýraverndarinn hefur því fengið góðfúslegt leyfi sonar skáldsins — Erlings Þorsteinssonar til þess að birta nokkrar af sögunum og er það trú blaðsins, að unga fólkið í dag fái notið þessara ágætu sagna Þorsteins, ekki síður en ljóða hans. 79 DÝRAVERNDARINN

x

Dýraverndarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.