Dýraverndarinn - 01.02.1975, Síða 4

Dýraverndarinn - 01.02.1975, Síða 4
Dýraverndarinn sextugur Allgóður og farsæll aldur það, mun einhver hugsa, og það hjá ekki stærra blaði en Dýraverndarinn er. Ekki er þó því að neita, að oft hef- ur verið alldokkt í álinn hjá blað- inu á undanförnum árum, bæði hvað fjárhag og kaupendafæð snert- ir. Hitt hefur svo verið happ blaðs- ins, eða höpp, að ýmsir merkir og ágætlega ritfærir menn hafa lagt blaðinu lið og annast ritstjórn þess á þessum mannsaldri, sem blaðið hefur nú lifað. — Skulum við nú fletta árgöngum blaðsins, skyggn- ast í löngu lesin blöð og staldra þá helst við í afmælis-blöðunum og sjá hverju þar hefur verið sagt frá. — í blaðinu 1925 (1. bl. 11. árg.) segir ritstjórinn svo: „í júlí í fyrrasumar var í fám orðum minst 10 ára afmælis „Dýra- verndunarfjelags íslands". Nú eru komnir út 10 árgangar málgagns þess. „Dýraverndaranum" var frá upp- hafi vel tekið, og hann hefir ávalt verið nokkur byrði á fjelaginu öll þessi ár, nema síðastliðið ár. Má ýmsar orsakir til þess finna. Fyrstu árin var verð blaðsins svo lágt, að það borgaði ekki prentunarkostnað, og varð f jelagið þá auðvitað að bera hallann. Seinni árin hefir þrengt að almenningi með gjaldeyri,og heimt- ur andvirðis því orðið allmisjafnar. Dýraverndunarfjelög annara þjóða á Norðurlöndum, og eflaust víða annarstaðar, þó að oss sje síð- ur kunnugt, njóta mikils styrks úr ríkissjóði. Svo mikils þykir þar um vert dýraverndunarmálið. Alþingi hefir eitt ár veitt 1000 krónur til fjelags vors, og var það því góður styrkur það árið. Fjárkreppan háir framkvæmdum hjer sem annarstað- ar. Sjálfsagt mundi þessi blaðsnepill fjelagsins fá misjöfn eftirmæli, ef hann væri nú úr sögunni, meðal annars af því, að blaðið hefir stundum þurft að koma dálítið óþægilega við einstaka menn, en sje dæmt óhlutdrægt, mun álitið, að það hafi ekki verið gert um skör fram. Og þó að ófullkomnara hafi verið en skyldi, þá mun mega fullyrða, að það hafi gert hitt til að nálgast takmark fjelagsins, sem enn er að vísu langt framundan. Ef til vill ættum vjer enn engin dýra- verndunarlög. Ef til vill færi deyð- ing búfjárins enn fram á sama hátt og áður. En„hælumst minst í máli." Dýra- verndaranum er skapaður langur aldur. Hann kann að hafa hama- skifti, eða breyta nafni. En dýra- verndunarmálið mun ávalt eiga sjer málgagn, eins og öll mikils verð þjóðmál hljóta að gera." — Þetta skrifaði Jón Þórarinsson, fræðslumálastjóri, fyrsti ritstjóri Dýraverndarans. — Næst skulum við svo grípa niður í 1. tölubl. 1935, en þá er blaðið orðið 20 ára: — „Dýraverndarinn, málgagn fé- lagsins, hóf göngu sína 15. marz 1915, og byrjar því með blaði þessu tuttugasta og fyrsta ár sitt. Hefir blaðið vissulega átt aðal þátt sinn í því, að bæta meðferð manna á smælingjunum og glæða mannúð- legan hugsunarhátt fjöldans í garð málleysingjanna, olbogabarna lífs- ins, dýranna. Með blaðinu er hægt að ná til fleiri manna um land alt, heldur en félagsmenn eiga nokkur tök á að hitta að máli, og þannig túlka áhugamálið: mannúð gagnvart dýr- um og miskunsemi. Það er ekki ástæða til þess nú, að rekja sögu félagsins, enda ekki ætl- unin með línum þessum. Hins veg- ar þótti rétt að láta ekki alveg undir höfuð leggjast, að vekja athygli á þessum tímamótum starfsára fé- lagsins og útgáfu málgagns þess. Dýraverndun er áhrifaríkt menn- ingarmál, og stórvægilegt hags- munamál, fyrir íslendinga, eins og aðrar þjóðir, sem byggja afkomu sína og tilveru, að miklu leyti, á húsdýrunum. Það lýsir menningu og hagsýni hjá þeim, sem gerir vel við húsdýrin: sér þeim fyrir nægri og hollri fæðu, björtum og góðum húsakynnum. Nærgætni og hlýju kunna dýrin, einkum húsdýrin, að meta, engu síður en mennirnir. Dýraverndun er því uppeldismál, og jafnframt eitt hið göfugasta, fegursta og nytsamasta málefni, sem hug barna og unglinga verður beint að. En mestu varðar nú, að því er snertir framtíð félagsins og hug- sjónamál, hvernig þeir, sem unna dýraverndunarmálinu, vinna að 4 DÝRAVERNDARINN

x

Dýraverndarinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.