Dýraverndarinn - 01.02.1975, Side 7

Dýraverndarinn - 01.02.1975, Side 7
skemmtilegast -— eins og það væri sérstaklega ætlað fólki til að lesa sér til dægrastyttingar — og hjá okkur öllum hefur það orðið meira eða minna á kostnað okkar góða tnálefnis — því miður. Þó er það ef til vill enn lakara, að eins og nú standa sakir virðast ekki vera skil- yrði fyrir neina stórhuga baráttu í þarfir þess. En tímarnir breytast. -— Að því getur komið, áður en varir, að vinir dýranna rísi upp til nýrra átaka í þeirra þarfir. Þá verður aftur þörf fyrir markvisst málgagn, eins og Dýraverndarinn var einu sinni. —" Við lok fertugasta árgangs Dýra- verndarans lét Sigurður Helgason af starfi ritstjóra, en við tekur annar rithöfundur, Guðmundur Gíslason Hagalín. — Hann átti eftir að láta mikið til sín taka ritstjórnarstörfin næstu 17 árin, því að hann var rit- stjóri til ársins 1972. — í fyrsta tölubl. blaðsins árið 1965 ritar Guð- tnundur langa og ítarlega grein um fimmtíuára afmæli Dýraverndarans. — í henni segir hann m. a.: „Árin 1955—1964. Þegar ég tók við ritstjórn Dýra- verndarans, var mér það ljóst, að mig skorti sitthvað til að stjórna slíku blaði. Ég hafði ávallt haft yndi af dýrum, verið mjög hneigður fyrir að kynna mér sem nánast alla háttu þeirra og hafði liðið við það, að aðstæður mínar voru árum sam- an þannig, að ég gat ekki notið sarnvista við dýr. En ég var svo sem enginn fræðimaður í náttúru- vtsindum, og ég var ekki svo kunn- ugur dýraverndunarmálum sem skyldi. En það brann í mér að sjá °g vita, hve ennþá var illa farið með dýr og hve illa voru ræktar skyldur yfirvalda um gæzlu þeirra hÝRAVERNDARINN laga og reglugerða, sem tryggja skyldu dýrunum mannúðlega með- ferð. Ég setti mér þrjár reglur, þegar ég hóf ritstjórnina. í fyrsta lagi að leggja áherzlu á baráttuna fyrir dýravernd og hlífast þar hvergi við, hvort sem í hlut ættu stjórnarvöld, gæzlumenn laga eða einstaklingar. í öðru lagi að freista þess að hafa í blaðinu sem fjölbreyttastan fróð- leik um dýr og frásagnir af þeim, vel og skemmtilega framsett, og ef slíkt efni reyndist ekki fáanlegt í rituðu formi, sem fullnægði kröf- um mínum, yrði ég að skrifa það eða þýða og gefa því eins aðlaðandi form og mér væri unnt, því að auk þess sem ég vissi, að fjölmargt af fullþroska fólki hefur yndi af slíku efni, vissi ég, að þess var brýn nauðsyn til að laða að blaðinu hinar ungu og uppvaxandi kyn- slóðir. í þriðja lagi að hafa sem nánasta samvinnu við forráðamenn blaðsins — og þá einkum ritara dýraverndunarsamtakanna, sem ég komst brátt að raun um, að er raun- verulega ólaunaður framkvæmda- stjóri þeirra, sívökull um allt, sem fram fer á vettvangi dýraverndar, utan lands og innan, fylgist eins vel með og ástæður leyfa hvers kon- ar misbrestum á dýravernd og hvað efst er á baugi, þar sem togast á hagsmunir og tillit til dýranna — og auk alls þessa er sannfróður um lög og reglur, sem að einhverju leyti varða líf og líðan dýra, fer- fætlinga sem fugla, og um margt í náttúrufræði og náttúruvernd. En mér varð brátt ljóst, að fram- tíðarskilyrði fyrir því, að unnt væri að gera blaðið úr'garði á nokkurn veginn viðhlítandi hátt, allt í senn skeleggan málsvara dýra og dýra- verndar, fróðlegt um dýr og dýra- vernd, utan lands og innan, og að skemmtiefni og myndakosti við hæfi barna og unglinga, var stækk- un þess, og í árslok 1956 var ég ákveðinn í að hætta ritstjórn Dýra- verndarans nema ég fengi tvöfaldað lesmál hvers tölublaðs, hvað sem liði auknu lesmáli alls árgangsins. Ég ákvað svo að fara fram á, að blaðið yrði framvegis að lesmáli 16 blaðsíður í stað 8, en blöðunum yrði hins vegar fækkað í 6. Með því móti varð hægara um fjölbreytt efni í hverju blaði og lesmál ár- gangsins jókst úr 64 blaðsíðum í 96. Sem varatillögu hugsaði ég mér, að blaðið kæmi aðeins út fjór- um sinnum á ári, en hvert blað yrði 16 lesmálssíður. Loks hugðist ég leggja til, að verð blaðsins hækk- aði að minnsta kosti upp í 25 krón- ur á ári. Ég þurfti enga baráttu að heyja fyrir þessum málum. Umsvifa- og eftirtölulaust var samþykkt sú stærð blaðsins, sem það hefur enn, og verðið var hækkað í 25 krónur. Og Guðmundur heldur áfram: „Framtíð Dýraverndarans Um framtíð Dýraverndarans mætti margt segja. Hlutverk hans til framgangs málum og til varð- gæzlu þess, sem þegar hefur unnizt, hefur aldrei verið meira en nú, svo ört sem allt breytist og margt gam- alt gengur úr skorðum. Sú tillaga 7

x

Dýraverndarinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.