Dýraverndarinn - 01.02.1975, Page 11

Dýraverndarinn - 01.02.1975, Page 11
Við stjórnina vegna þess að hann hafði áhuga á að stofna dýravernd- unarfélag á Suðurnesjum. Voru allmiklar viðræður við hann um þessi mál og bað hann um að sér yrðu send nýju búfjárræktarlögin og ýmis gögn önnur. Var það gert. Einnig var honum boðin aðstoð við stofnun dýraverndunarfélagsins. Dýraverndunarfólag í Fcereyjum. Færeysk kona Nomi Jul að nafni snéri sér til sambandsins vegna fyr- irhugaðrar stofnunar dýraverndun- arfélags í Færeyjum. Viðræður voru við hana um málið og henni síðan send lög sambandsins, nokkur ein- rök af Dýraverndaranum og ýmis- legt fleira. Þótti stjórn sambands-, ins ákaflega skemmtilegt og vænt um að fá þessa bón frá vinum okk- ar færeyingum. Dýraverndunarfélag Akureyrar. Laugardaginn 14. september s. 1. bringdi séra Pétur Sigurgeirsson vígslubiskup á Akureyri til for- manns sambandsins og sagði frá því að ónefnd kona á Akureyri hefði gefið 100 þús. krónur til endur- teisnar Dýraverndunarfélags Akur- eyri. Var áætlað að halda stofnfund bráðlega og bað séra Pétur Sigur- geirsson um að formaður S. D. í. yrði viðstaddur fundinn. Nokkrum dögum síðar hringdi hann aftur og tilkynnti að halda ætti fundinn á Hótel KEA þann 22. sept. Þann dag flaug formaður sambandsins svo norður til Akureyrar í hinu feg- ursta veðri og tók séra Pétur á móti honum. Voru móttökur allar hinar hlýlegustu og snæddi formaður há- hegisverð á heimili séra Péturs. Hlukkan fjögur hófst svo fundur- 'nn. Mættir voru uin þrjátíu manns °g gerðust 25 manns stofnfélagar. Eormaður sambandsins flutti erindi DVRAVERNDARINN um dýraverndunarmál og svaraði fyrirspurnum. Voru fyrirspurnirnar og allar umræður hinar skemmti- legustu og fróðlegustu og um hin ólíklegustu málefni innlend og er- lend. Formaður hafði með sér á fundinn nokkur eintök af tveim árgöngum Dýraverndarans, sem fundarmenn fengu að kynna sér. Stjórn Dýraverndunarfélags Akur- eyrar dreifði þeim síðan til félags- manna, en þeir er ekki fengu blað- ið með þeim hætti, fengu það sent að sunnan. Eftir fundinn flaug formaður sambandsins aftur suður til Reykja- víkur og að baki var ógleyinan- legur gleðidagur. Þann 17. nóv. s. 1. var svo hald- inn framhaldsstofnfundur fyrir Dýraverndunarfélag Akureyrar og voru þar samþykkt lög félagsins. Þar var einnig sýnd fræðslumynd sein stjórn S. D. í. hafði lánað norður. Spurt og svarað. í þættinum „Spurt og svarað" í útvarpinu kom fram spurningin: „Hvernig er hægt að refsa mönn- um fyrir níðingslega meðferð á dýrum?" í samráði við ritara sam- bandsins tók formaður að sér að svara þessu í þættinum. Var fluttur úrdráttur úr þeim lögum og reglu- gerðum er varða spurninguna svo og ýmislegt annað er talið var að varðaði málið. European Animal Protection Society. S. 1. sumar gekk S. D. í. í Euro- pean Animal Protection Society. Hafði formaður sambandsins rætt það við formann dönsku dýra- verndunarsamtakanna sumarið 1973. Hann heitir Hans Hvass. Dýraspítalinn. Undirbúningi að stofnun dýra- spítalans hefur verið haldið áfram. Hægt hefur miðað, en alltaf áfram þó. Svo sem kunnugt er eru það sex aðilar sem eiga spítalann og bera ábyrgð á rekstri hans. Það eru: Samband dýraverndunarfélaga ís- lands. Dýraverndunarfélag Reykja- víkur. Hundavinafélag íslands. Hestamannafélagið Fákur. Samtök sveitarfélaga í Reykjanesumdæmi. Reykjavíkurborg. Reykjavíkurborg tók að sér að koma spítalanum upp. Gaf lóð und- ir hann og hefur séð um fram- kvæmdir. Síðan munu allir eigend- ur spítalans taka við rekstrinum að jöfnu. Það þarf ekki að segja frá því hve það ríður á miklu að sam- bandið sem og hinir aðilarnir geti staðið við sínar skuldbindingar og hefur í því skyni verið haldið áfram söfnun styrktarineðlima fyrir spítal- ann. Fulltrúi S. D. í. í hinu fyrir- hugaða sjálfseignarfélagi um rekst- ur dýraspítalans er ritari sambands- ins Ólafur Jónsson lögfræðingur. Sairð dýr. í framhaldi af frásögninni um dýraspítalann má geta þess til þess að fólk átti sig á hve nauðsynlegur hann er, að miklar hringingar eru til sambandsins út af veikum eða gærðum dýrum. Virðist fólk oft ekki átta sig á hvar það geti náð í dýralækni. Mikið af þessum dýr- uin hefur verið komið með heim til formannsins, þegar ekki hefur náðst í dýralækni og má t. d. nefna særðan smyril. Hann hafði fengið högl í annan vænginn, en eins og kunnugt er er þessi fugl alfriðaður. Einnig hefur verið komið með særðan lirafn, ketti, sem orðið hafa fyrir bíl, smáfugla af ýmsum teg- undum o. s. frv. Reynt hefur verið 11

x

Dýraverndarinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.