Dýraverndarinn - 01.02.1975, Side 30
Hundurinn, vinur okkar
Gegnum starf mitt, sem er að
annast hunda fyrir aðra, hef ég orð-
ið vör við mikinn skort á hald-
góðum upplýsingum, sem gætu
komið væntanlegum hundaeigend-
um til góða.
Því langar mig nú, með þessum
orðum, að reyna að bæta úr því
og gefa verðandi hundaeigendum
nokkur heilræði. Þau ættu heldur
ekki að skaða þann, sem þegar hef-
ur orðið sér úti um hund. Allt of
margir fá sér hund án þess að gera
sér nokkra grein fyrir hvað það
þýðir í raun og veru að fá slíkt
dýr inn á heimili.
Uppeldi hunds er frábrugðið
uppeldi barns, og er ekki hægt að
beita sömu reglum við hann. Strax
og hundurinn komur inn á heimilið
verður að fyigjast mjög náið með
honum. Best er að hann sé þá
8-10 vikna gamall. Þó hefur oft
heyrst að uppeldi hunds ætti ekki
að hefjast fyrr en hann væri orðinn
6-10 mánaða, en slíkar fullyrðingar
eru alger bábilja.
Hvolpur, sem lærir að gegna þeg-
ar húsbóndi hans kallar á hann, vit-
andi að í staðinn fái hann hrós
eða góðgæti, strýkur ekki að heim-
an. Mjög gott ráð er að kenna hon-
um með leik. Þá gengur uppeldi
hans miklu élttar.
Ég legg höfuð áherzlu á að sá
sem ætlar að fá sér hund, geri sér
ljósa grein fyrir því í upphafi
hvernig uppeldi hans skuli háttað.
Einnig er ákaflega mikilvægt að
allir í fjölskyldunni umgangist
hundinn á sama hátt og beiti sömu
uppeldisaðferðum, annars er mikil
hætta á að hann ruglist og verði
óöruggur í athöfnum sínum. Slík-
ur ruglingur getur gjörsamlega
eyðilagt efnilegan hvolp.
Til þess að ná vel til hunds er
nauðsynlegt að skilja tilfinningar
hans. Hundurinn hefur tilfinninga-
líf eins og mannlegar verur, en
hann hefur engar hömlur. Tilfinn-
ingar hans eru hreinni. Hann gefur
og þiggur af dýpstu einlægni.
Það er vandasamt verk að velja
sér hund. Fyrst ber að velja sér
tegund, sem gæti fallið vel að til-
finninga og athafnalífi hins til-
vonandi eiganda, síðan er að velja
einstaklinginn úr hvolpahópnum.
Og að lokum, gleymið því ekki,
það kostar peninga og mikla fyrir-
höfn að eiga hund.
Sérstaklega ber að hafa í huga,
fóður, bólusetningar og reglulegar
skoðanir hjá dýralæknum. Þá má
ekki gleyma því að hundurinn
krefsts mikils tíma. E'j alit þetta
fellur í skuggann ef hundur og
eigandi öðlast traust hvor á öðrum
og títt verða þeir óaðskiljanlegir
vinir.
Tveir hundar eru ekki eins,
jafnvel þó þeir séu af sama kyni,
sama foreldri. Hver hundur hefur
30
DÝRAVERNDARINN