Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.02.1975, Qupperneq 35

Dýraverndarinn - 01.02.1975, Qupperneq 35
Bróðir okkar höfrungurinn Það er sannarlega skemmtileg og furðuleg skepna höfrungurinn. Við gætum til að mynda byrjað að tala um íþróttaafrek hans. Hann er nefnilega mestur sundmeistari a jörðinni. Honum tekst að fara fram úr jafnvel hraðskreiðustu skipum, siglandi með þrjátíu hnúta hraða. Enda er öli líkamsbygging hans ágætt dæmi um það, hvaða arangri náttúran getur náð í við- leitni sinni til fullkomnunar. Hann hefur langan skrokk og mjúkan og an minnstu ójöfnu - höfrungurinn er fimm sinnum „sléttari" en sá góði fiskur styrjan. Fullkomið jafn- mæli (symmetri) í öllu - nema höfðinu. Náttúran hefur nefnilega tekið upp á því, að gera vinstri helming höfuðsins miklu minni en þann hægri. Mönnum þótti þetta ein- kennileg ráðstöfun þar til eðlis- fræðingur einn kom fram með ný- stárlega kenningu um hreyfingar höfrungsins: það er sem hann skrúfi sig niður í vatnið. Og um leið hleypur alda eftir líkama dýrs- ms og stækkar eftir því sem nær chegur sporðinum. Ef höfði þess væri jafnskipt, þá tæki dýrið að snúast um sinn eigin ás - og þeim yanda er semsagt afstýrt með þessu sérkennilega höfuðlagi. Annað er það sem gerir höfr- ungnum kleyft að synda svo hratt. ffúð hans er þakin efni, er húð- þekjan gefur frá sér, og það smyr hann að utan. Auk þess er ákaf- 'ega þétt fitulag undir húðinni, sem DvRaverndarinn gerir hana fjaðurmagnaða og ákaf- lega næma fyrir minnstu snertingu. Eralda mætirslíkri húð með slíku „fóðri", þá hrekkur hún ekki frá eins og af harðari hlutum, heldur breytist hún í jafnan og rólegan flaum, sem leggst létt að líkaman- um. Allt þetta varð til þess, að kafbátasmiðir hafa lengi öfundað höfrunginn ákaflega - ef þeim tækist að búa til slíka húð utan um kafbáta, myndi hraði þeirra aukast stórlega. Þegar fyrir stríð hafði þýzki verkfræðingurinn Krammer stungið upp á „húð" sem minnti á höfrungshúð. En það kom á daginn að þessi uppfinning kom að næsta litlu gagni kafbátum. Hinsvegar var hún aftur prófuð eftir stríð, og þá á tundurskeytum. Og með hennar aðstoð tókst að auka hraða þessara drápsfiska mannsins um helming. Höfrungshúð er semsagt þeim mun gagnlegri sem hraðinn er meiri. Lengi hafa náttúrufræðingar deilt um það, til hvers höfrungur- inn opnar stundum kjaftinn þegar hann syndir. Ekki gat hann verið að gleypa loft, því lengi hafa menn vitað, að öndunarleiðir hans eru ekki tengdar kjaftinum. Sumir gáf- ust hreinlega upp, og sögðu höfr- unginn gapa þetta einfaldlega til að sýna að hann væri í góðu skapi. Þar til sovézki líffræðingurinn Kleinenberg tók að rannsaka til hvers þær einkennilegu holur væru sem finnast við tungurætur hans. Eftir alllanga mæðu komst hann að því, að þessar holur væru ekki annað en — rannsóknarstofur. Or- smáar rannsóknarstofur þar sem höfrungurinn gerir frábærilega ná- kvæmar efnafræðilegar athuganir. Og ekki hann einn heldur aðrir hvalir. Hann opnar kjaftinn til að taka prufu af sjónum og ákveð- ur fljótt og örugglega efnafræði- lega samsetningu hans, og hefur hann sér síðan að stefnuljósi. En það er önnur tilgáta um stýrismennsku höfrungsins: sumir álíta að hann taki stefnu af sól, tungli og stjörnum . . . eins og hinir fyrstu sæfarar. Ttaka stefnu af sól og stjörnum.. Við mennirnir erum sífellt að láta okkur dreyma um að mæta lifandi bræðrum okkar í skynsem- inni. Og hugsum þá oftast til annarra hnatta, annarra sólkerfa. En máske eru skynsemdarverur hér við hlið okkar, máske við leitum langt yfir skammt. Það álítur að minnsta kosti John Lilly. Lilly þessi varð dag einn fyrir furðulegri reynslu: á nokkrum augnablikum breyttist hann úr til- raunastjóra í tilraunadýr. Þetta gerðist á þann hátt, að vísinda- maðurinn var að reyna að fá afa- línu (þekkt höfrungategund) til að gefa frá sér blístur af ákveðinni tónhæð. Höfrungurinn blístraði, og Lilly launaði honum með einhverju góðgæti. Aftur heyrðist blístrað, og aftur var verðlaunað. En nú tek- ur vísindamaðurinn eftir því, að 35

x

Dýraverndarinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.