Dýraverndarinn - 01.10.1975, Síða 14
Bréfum svarað
Kæri Dýraverndari.
Ég er áskrifandi þinn og aðdá-
andi og mikill áhugamaður um vel-
ferð allra dýra. Ég ætla ekki að fjöl-
yrða um það sem miður fer í með-
ferð hús- og heimilisdýra hér á
landi, heldur víkja að hinum
gleymda flokki dýra, þ. e. villikött-
unum.
Um daginn rakst ég á grein í
dönsku blaði, sem fjallaði um villi-
ketti í Esbjerg. Ahugamenn þar
í bæ komust að þeirri niðurstöðu,
að villikettir væru í raun og veru
nauðsynlegir í hverju bæjarfélagi.
Hinsvegar þyrfti að halda fjöldan-
um í skefjum til að allir hefðu nóg
að éta. í úrgangsmat var sett hin
fræga P-pilla með góðum árangri
þannig að fæðingartalan snarlækk-
aði.
Ég get varla lýst hrifningu minni
á þessu framtaki dýravina í Esbjerg.
í Bretlandi eru starfandi margir
klúbbar sem stuðla að velferð villi-
katta þar í landi, og eru þeir að
mestu, ef ekki öllu leyti reknir fyrir
frjáls fjárframlög félagsmanna og
annarra velunnara.
Mér hefur oft dottið í hug hvort
ekki væri hægt að setja á stofn slík
samtök hér á landi, og þá undir
forystu Dýraverndunarfélags ís-
lands.
Mér þætti vænt um að fá að
heyra þitt álit á þessari hugmynd
minni og örugglega margra ann-
arra.
Með kveðju,
Páll Heimir Einarsson.
Svar:
Kceri Páll Heimir.
Þakka þér innilega fyrir þitt góða
bréf og hlýleg orð um Dýravernd-
arann.
Þú ert ekki einn um það að hafa
áhyggjur og áhuga á velferð flæk-
ingskatta og það er nokkuð af fólki
sem hefur sýnt því áhuga að
stofna kattavinafélag.
Þú skalt hringja í Svanlaugu
Löve, sem er stjórnarmaður í Dýra-
verndunarfélagi Reykjavíkur, hún
er sá sem mest berst fyrir því nu að
stofna kattavinafélag. Síminn hjá
Svanlaugu er: 14594.
Kæri Dýraverndari.
Við eigum hvítan fallegan kött,
sem er næstum því orðinn tveggja
ára. Hann var geltur á sínum tíma
og er því mjög rólegur og skemmti-
legur. Eitt amar þó að honum, hann
er nefnilega alltaf að fara úr hár-
unum. Hvar sem hann legst skilur
„Og hér sjáum i’ið svo Egil frá ísafirði."
hann eftir sig hvít hár. Það er ekki
hægt að strjúka honum, nema allt
vaði út í hárum, hvað þá að taka
hann í fangið. Hvað er hægt að
gera við þessu? Hann borðar aðal-
lega fisk, en lepur lítið af mjólk.
Hann var mikið veikur þegar
hann var u.þ.b. 5 mánaða, þá fékk
hann spóluorma. Síðan hefur ekk-
ert amað að honum, hann braggað-
ist fljótt eftir veikindin og er nú
nokkuð feitur.
Ég vonast eftir svari sem fyrst.
Bylgja Kristín Héðinsdóttir
Tangagötu 20, ísafirði.
Ég sendi ykkur mynd af Agli, en
það heitir kisi. Það væri gaman að
sjá hana í blaðinu.
Svar:
Kæra Bylgja Kristín.
Þakka þér innilega fyrir gott
bréf. Eg er þér sammála, þetta er
mjög fallegur köttur sem þú átt og
ég er ennþá meira áncegð með að
hann skuli vera geltur.
En það er þetta með lausu hárin.
Fáðu þér fíntennta stálgreiðu og
vendu köttinn á að greiða af hon-
um lausu hárin. Svo skaltu fá þér
LYFJAGER (það fœst í apóteki)
og gefa honum eina töflu á dag af
því. Annað hvort mulið saman við
matinn, eða að troða töflunni ofan
í hálsinn á honum og halda svo
saman á honum munninum á með-
an hann er að kyngja. Það gengur
vel.
14
DÝRAVERNDARINN