Stúdentablaðið - 01.05.1995, Page 4
Bls.4
STUDENTABLAÐIÐ
STBL. • Maí 1995
&
3 í viðbót
Strák-
arnir
okk-
ar
Þessir
djöfuls-
ins strák-
ar þurftu
náttúru-
I e g a
endilega
að byrja í
þ e s s a r i
heimsmeist-
arakeppni í
miðjum próf-
lestri. Það á
að varða við
lög að starta
s v o n a
keppni rétt
fyrir próf og keyra
upp þjóðrembuna með trumbuslætti og
lúðrablæstri þannig að heiðarlegir há-
skólanemar eru komnir niður í höll að
hvetja, í stað þess að standa í próflestri.
Þessir strákar klúðruðu ekki bara þess-
ari keppni, heldur líka prófunum okkar.
Ekki lítil ábyrgð það. Réttast væri að
ráða Bogdan afturtil að refsa þeim.
Sólin og blíðan
Á landi sem hefur um 20 sólardaga á ári,
hittist það endilega þannig á, að þessir
sólardagar raðast á próflestrartímann
— og það eftir dimman og skítkaldan
vetur. Áuk þess hefur viðrað prýðilega
fyrir hvers konar sprikl og fát, og í raun
allt annað en fræðilega viðveru innan-
dyra. Og svo er nokkuð öruggt, að júní,
júli og ágúst verða annálaðir rigningar-
mánuðir.
Ebola-
veiran
Það er
e k k i
b e i n t
þægi-
leg til-
h u g s u n
að vita af
bráðdrep-
andi veiru í
Afríku sem
breiðist hraðar út en dæmi eru til um. Og
æsifréttir í fjölmiðlum um að veiran
kynni hugsanlega að ná til íslands eru
síst til þess fallnar að skerpa einbeitingu
og auka þol á örlagatímum. Vitað er um
fjölmarga stúdenta sem hafa hreinlega
ekki getað setið við og lesið, vitandi að
Ebola-veirunni á hraðferð til íslands, og
hreinlega orðið að verja sig — og loka
bókunum.
Útskrift ferfram í Laugardalshöll
Hnllnmhæ í höllinni!
Þann 17. júní næstkomandi brautskráir Háskóli íslands um 500 kandídata — athöfnin fer fram í Laugardalshöll
Allar götur síðan í byrjun áttunda ára-
tugarins hefur útskriftarathöfn Há-
skóla íslands farið fram í Háskóla-
bíói. En bamið vex en brókin ekki og
síðustu ár hefiir skapast hálfgert ó-
fremdarástand við útskrift, einkum í
júni, þar eð mun fleiri hafa viljað sækja
samkomuna en stóri salur Háskólabíós
rúmar. Iðulega hafa foreldrar, ættingjar
og jafhvel makar kandídata þurft ffá að
hverfa vegna plássleysis. Jafnffamt hafa
hinir „lánsömu" sem fengu sæti, þurft
að sitja í miklum þrengslum í langan
tíma. Af þessum sökum hefur rektor á-
kveðið að næsta útskriff fari ffam í
Laugardalshöll.
Ástæðan er fyrst og fremst
plássleysi
Amalía Skúladóttir á skrifstofu rektors
sagði í samtali við Stúdentablaðið, að eiginlega
eina ástæðan fyrir þessari nýbreytni væri hinn
mikli fjöldi kandídata sem munu útskrifast. „Þann
17. júní em um 500 kandídatar að útskrifast og
það liggur í augum uppi að Háskólabíó rúmar
ekki þann fjölda kandídata og gesta. Þess vegna
var ákveðið að leita hófanna hjá Reykjavíkurborg
og taka Laugardalshöllina á leigu,“ sagði Amalía.
Aðspurð sagði hún útskrift í haust og í febrúar
fara fram í Háskólabíói eins og áður, enda um
minni útskriffarhópa að ræða. En kom ekki til
greina að skipta upp útskriffinni eftir deildum?
Amalía sagði það hafa komið lítillega til tals.
„Við veltum upp öllum hugmyndum varðandi
þessa útskriff og skoðaðir vom möguleikar. En
háskólaráð fól rektor að leita eftir samningum við
Reykjavíkurborg. Háskólaráð vill halda í þá hefð,
að útskrifa úr öllum deildum samtímis. Þá kemur
Háskólinn fram sem ein heild, og því viljum við
halda.“
Laugardalshöll: Nægi-
lega virðuleg húsa-
kynni?
Útskrift úr Háskóla íslands er
hátíðlegur viðburður og því
e.t.v. eðlilegt að menn hvái og
reki í rogastanz þegar nafn
Laugardalshallar heyrist nefnt í
sömu andrá. Ásta Kr. Ragnars-
dóttir, forstöðumaður Náms-
ráðgjafar, er verkefnisstjóri út-
skriftarinnar. Aðspurð sagði
Ásta að þeir sem að útskriff
standa myndu gera mikið til að
lífga upp á ásýnd hallarinnar.
„Það er auk þess búið að gera
afar miklar breytingar á Laugar-
dalshöll og ég tel ágætar líkur á
því að þetta geti orðið tignarleg
húsakynni og útskriftinni fyllilega sæmandi,“
sagði Ásta. Helsti kosturinn við Laugardalshöll
er sá, að nú getur hver útskriffarkandídat boðið 4-
6 manns til útskriffarinnar og allir rúmast í sama
salnum. Þá er það úr sögunni að fólk þurfi að
fylgjast með útskriff af skjá úr hliðarsölum.
„Þetta mun vafalítið verða til þess, að samkennd-
in eykst og stemmningin verður betri," sagði Ásta
að lokum.
Undur tækninnar í anddyri FS
Hraðbanki
á háskólasvæðinn
i
Íú geta kortaglaðir stúdentar nýtt sér kortin á
nýjan hátt á háskólasvæðinu, því í anddyri FS
við Hringbrautina (þar sem Bóksalan, Ferða-
skrifstofan og allt stúdentabáknið er til húsa)
hefur verið komið upp hraðbankamaskínu.
Nú geta þeir sem eru félausir en ríkir af
kortum, komið og tekið út peninga í hrað-
bankavélinni og keypt bækur og flugmiða.
Þess má aukinheldur geta, að Bóksalan
verður að sjálfsögðu opin í allt sumar, sem
og Ferðaskrifstofan. Á skrifstofu SHÍ verður
svo kaffi á könnunni og allir velkomnir til
skrafs og ráðagerða.
ii ro
erða-
sa)
il
ATHil
íslenskunemi óskast.
Mímir, félag stúdenta í íslenskum fræð-
um, óskar effir þátttakendum í vorferð
félagsins sem verður farin þann 13. maí
næstkomandi. Ö1 leyff og mjöður. Verði verður
stillt i hóf. Hóf eftir ferð með söngvakeppni evr-
ópskra sjónvarpsstöðva. Ö1 leyft og mjöður. Und-
ur og furður Þjórsárdala könnuð. Æskilegt er að
þeir sem taka vilja þátt í þessu áhugaverða verk-
efni skrái sig fyrir 10.05. Á þartilgerðan lista í
anddyri Ámagarðs. Heiðursgestir úr hópi kenn-
ara. Ö1 leyft og mjöður. Lagt verður af stað (þ.e.
af Ámagarði) klukkan 13.30. umræddan laugar-
dag. Þetta er þinn ávinningur! Ekki gleyma öli og
miði.
Attention all foreign students! You are kindly in-
vited to join the Mímir, iceland students union on
our annual spring-trip to Tjorsardalur next sat-
urday at 13.30. Please register in Arnagardur
before 10.5. Don 't forget the booze like last lime
you idiots!
Styrkjum úr Nýsköpunnarsjóð námsmanna úthlutað 8. maí
Af hverju er uthlutað svona seint?
Þann 31. mars síðastliðinn rann út umsóknarfrestur
um styrk úr Nýsköpunarsjóði námsmanna. Þrátt fyrir
að úthlutunarvinna hafi gengið vel, dróst nokkuð að
svara umsækjendum og var ákvörðun um úthlutun tekin
endanlega helgina 6.-7. maí og bámst umsækjendum svarbréf mánudag-
inn 8. maí. Nokkurrar óánægju hefur gætt með það fyrirkomulag að um-
sóknum skuli hafa verið svarað svo seint, enda um að ræða í mörgum til-
vikum sumarvinnu viðkomandi.
Dagur B. Eggertsson er framkvœmdastjóri Nýsköpunarsjóðs. Stúdenta-
blaðið spurði Dag af hverju umsœkjendum hefðu borist svör svo seint.
„Við erum meðvituð um þetta vandamál og í október sendi Stúdentaráð
menntamálaráðuuenytinu erindi þessa efnis og óskaði eftir því að
úthlutun færi fyrr fram. Það hefur að nokkm leyti tekist því í í ár var
úthlutað þremur vikum fyrr en í fyrra og meira en einum mánuði fyrr en
árið þar áður. í stjóm Nýsköpunarsjóðs sitja Baldur Hjaltason frá
menntamálaráðuneytinu, Hellen Gunnarsdóttir frá HI og Brynhildur Þór-
arinsdóttir frá SHI. Stjómin kom seinna saman en við vildum, m.a.
vegna þess að kosið var til Alþingis þann 8. apríl og við fengum nýjan
menntamálaráðherra. Þess má líka geta, að svör frá ráðuneytum og
sveitarfélögum um ijárveitingar hafa borist seinlega og takmarka úthlut-
unarmöguleika sjóðsins. En við reyndum allt sem
að flýta fyrir afgreiðslu.“
okkar valdi stóð til
En var ekki hœgt að haga því svo til, að umsóknarfresturinn um Nýsköp-
unarsjóðsstyrki, rymni út miklu fyrr, t.d. i febrúarlok. Hefði þá ekki verið
hœgt að taka ákvörðun um styrkveitingar fyrir kosningar?
„Umsóknarfresturinn var í ár færður fram um einn mánuð og á næsta ári
er stefnan að færa hann enn ffekar fram á árinu. Þá ætti að vera mögulegt
að fjalla fyrr um umsóknimar. Síðasta stjóm tók þá ákvörðun að gera
þetta í tveimur skrefum, m.a. vegna þess að námsmenn eru vanir því að
sækja um á sama tíma. Margir námsmenn vom t.d. ekki með á nótunum
í ár, þegar umsóknarfresturinn var færður fram
Hve langan tíma tekur það stjórnina að fjalla um umsóknir?
„Það fer að miklu leyti eftir verklaginu. Margir skila áfanga- eða loka-
skýrslum með umsóknum og margar umsóknir em ítarlegar. Sjóðurinn
hefur takmörkuð fjárráð svo það þarf að gera upp á milli umsókna. Það
er oft erfitt því umsóknir eru margar mjög góðar og menn vilja því vanda
sig við valið til að sofa rólegir á eflir. Úthlutunarvinnan getur því tekið
nokkrar vikur, eins og hún gerði núna. En við munum reyna að flýta
úthlutun eins og kostur er.“
Nu skal vi alle hoppe i bussen og se os rundt om
Þjórsárdalur. Det skal helt ikke koste mycket.
Stjórn Mímis.
’TTessi auglýsing villtist inn á ritstjórnarskri
/ Jstofur Stúdentablaðsins og vakti athyg
J- blaðamanna og vonandi hefur verið gan
an í Þjórsárdalnum. Hér er einkar skemmtile
auglýsingasálfrœði á ferðinni. Fyrirsögnin „í.
lenskunemi óskast “ gefur afar ranga mynd af þ
sem verið er að auglýsa og skirskotar á lymski
lega hátt til bágs atvinnuástands hjá íslenski
nemum. Textinn sjálfur er fullur af allskyns orðc
leikjum og málbrellum, s.s. „ verði verður stillt
hóf. Hóf verður . . , “ auk þess sem setningin „<
leyft og mjöður, “ er endurtekin í sifellu, og vin
ar sem nokkurs konar þrástef í textanum. Skilc
boðin eru á endanum skýr: Fólk á að mœta me
öl og mjöð og teyga hvort tveggja. Ekki síður ei
skilaboðin til erlendra stúdenta kúnstug. Ens,
textinn minnir óneitanlega á setningar sem men
heyra jafnan óma úr hátalarakerfum ájlugstöð'
um úr barka einhverrar íðilfagurrar yngismeyja
Skandinavíski textinn höfðar hins vegar beint i
pyngjunnar og er hress eins og pá norsk. Mím
lœtur ekki að sér hœða, fyrst Óli Gé, og ,n
þetta. Gaman að þessu, gáum að því.