Heimir : söngmálablað - 01.07.1935, Blaðsíða 5

Heimir : söngmálablað - 01.07.1935, Blaðsíða 5
Söngmót i Osló og Stokkliólmi 1935 Svíþjóð) — lillu síðar í Stokkliólmi. Sneru Norðmenn sér til „Sambands íslenzkra karlakóra“, en Svíarnir fengu máli'ð í liendur sendilierra íslands i Kaupmannahöfn oj< hann síðan Stjórnarráðinu hér. Þólti nú illl að liafa þessi boð að enf>u, eins og stundum fyrri, og jafnvel ekki með öllu vansalaust. Varð það þvi úr, að eg réðst lil fararinn- ar að tilhlutun og fyrir atbeina Salómons Heiðar, for- manns íslenzka karlakórasambandsins, og Páls ísólfsson- ar, formanns i Bandalagi íslenzkra listamanna. Eg lagði af stað héðan til Bergen, ásamt konu minni, 30. maí síðastliðinn og þaðan, cins og leið liggur, með há- fjallabrautinni til Osló. Mun eg liafa komið fyrstur boðs- gesta til mótsins, að undanskildum Rikhard Larsen rit- stjóra í Minnesota, en hann var fulltrúi hinna norsku söngfélaga í Bandaríkjunum. Það var búizt við því, að 3000 söngmenn tækju þátt í mótinu, og áttu margir langl að sækja. Heilir flokkar komu úr nyrztu héruðum Noregs og 5 söngmenn komu alla leið norðan frá Svalbarða. Þótti það vel af sér vikið. Sumir þessara langferðamanna voru 3—5 daga á leiðinni, og má nærri geta, að slíkt fcrðalag befir liafl almikinn kostnað i för með sér. Var mér sagt, að þeir söngmenn myndu ekki allfáir, er yrðu að borga nálægt 200 krónum úr eigin vasa, og sumir af litlum efn- um. Sýnir það bæði mikinn áhuga og óvenjulega fórn- fýsi. En nú rann upp sá mildi dagur laugardagur fyrir hvílasunnu er 12. landsmól norskra karlakóra skyldi liefjast. Höfðu menn vonað, að sá dagur yrði bæði bjart- ur og hlýr, en það fór á annan veg. Um morguninn var kalsarigning, en ekki bar á þvi, að menn létu það á sig fá, enda skánaði veðrið, þegar á daginn leið, og fór reyndar sibatnandi upp frá því, svo að mótinu lauk i glampandi sólskini. Árla dags, kl. 9Vé, liafði öllum þátttakendum ver- ið stefnt saman á liltckinn slað — Festningsplassen — en þaðan var gengið i fylkingu um Kirkjustræli og Karl Johansgötu til háskólabyggingarinnar, en fvrir framan

x

Heimir : söngmálablað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimir : söngmálablað
https://timarit.is/publication/601

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.