Heimir : söngmálablað - 01.07.1935, Qupperneq 9

Heimir : söngmálablað - 01.07.1935, Qupperneq 9
Söngmót í Osló og Stokkhólmi ipgj 9 legt lag eða bráðfjörugur „halling". En þetta liefir áhrif á lireimblæinn og „steinninguna“. Brosið er gleði-votlur, og það er áríðandi að skapa samræmi á milli orða og tóna.“ — Um kvöldið var allfjölmennt samsæti og flutti eg þar kveðju frá Sambandi íslenzkra karlakóra og þakk- aði heimboðið og þau hlýlegu orð, sem forseti landssam- bandsins liafði mælt til mín sem fulltrúa frá fslandi. Eg drap á þau vandkvæði, sem á því væri fyrir okkur, að taka virkan jiátt i framkvæmdum bræðraþjóða vorra á Norð- urlöndum og samstarfi i sönglegum efnum, þó að okkur skildisl vel liverja þýðingu það hefði og fylgdum því með athygli og samúð. Þá minntist eg á þau kynni, sem við hefðum baft af norskri tónlist fyrr og síðai’, og liversu mikilvægur þáttur hún befði löngum verið i sönglífi voru, or af eðlilegum áslæðum þarfnaðist stuðnings og vakning- ar utanað. Vék eg þvinæst að heimsóknum hinna norsku söngflokka og þá einlcum að komu „Handelsstandens Sangforening“, sem hefði orðið lil þess fyrst allra erlendra söngfélaga að sækja okknr lieim. Endaði eg ræðu mína á árnaðaróskum til „Norges Landsanger forbund“. Sam- kvæmi þetta var hið prýðilegasta og veitingar fram Iiorn- ar af mikilli rausn. En alvarleg störf biðu manna daginn eftir, og var því farið heim í báttinn á skikkanlegum tíma. Næsli dagur var hvitasmmudagur, og hófust þá konsert- ar i þremur stærstu kirkjum borgarinnar kl. 1. Eg blýddi u sönginn i dómkirkjunni (Vár Frelsers kirke). Á undan söngnum lék Arild Sandvold forleik á hið nýja orgel í kirkjunni, sem mun vera annað mesta kirkjuorgelið á Áorðurlöndum. Sandvold er söngstjóri og organisli við kirkjuna og kannast það söngfólk okkar við hann, sem hík þátt í Norðurlandamótinu í Kaupmannahöfn sumarið 1929. Hann var söngstjóri norska kórsins við það tækifæri. Hér mátti heyra söng ýmsra flokka og fylkjasambanda, (,r ekki höfðu sungið í Þjóðleikhúsinu kvöldið áður, en Framliald á bls. 13.

x

Heimir : söngmálablað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimir : söngmálablað
https://timarit.is/publication/601

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.