Heimir : söngmálablað - 01.07.1935, Side 26

Heimir : söngmálablað - 01.07.1935, Side 26
26 Fréttir Allmjög ber nú á hinum yngri söngvurum vorum er- lendis, og berast þær fréttir af þeim hinga'ð, sem vor fámenna þjóð má vera stolt af. Einar Kristjánsson hefir undanfarin ár verið ráðinn við hina frægu óperu í Dres- den i Þýzkalandi, og getið sér góðan orðstír þar í landi. í sumar söng hann tvívegis í „Tivoli“, skemmtistað Kaup- mannahafnarbúa, við mikla aðsókn og ágætar viðtökur. Stefán Guðmundsson lagði leið sína til Kaupmannahafnar í september, og söng þar í „TivoIi“ einnig við hinar ágætustu viðtökur. Mun hann innan skamms syngja hlut- verk úr óperu eftir Verdi, í konunglega leikhúsinu, undir stjórn hins ítalska söngstjóra, Egisti Tango. Síðustu fréttir herma, að nú hafi María Markan sungið hið fyrsta óperuhlutverk sitt við Schiller-óperuna i Hamborg, þar sem hún er ráðin, og hafa þær fréttir borizt, að vel hafi tekizt og viðtökur hafi verið prýðilegar. Sigurður Birkis, söhgkenn- ari, hóf starfsemi sína á vegum Sambands ísl. karlakóra í ágúst- mánuði, með því að kenna „Iíátum félögum“ í Reykjavík. í septembermánuði dvaldi hann á Akranesi og starfaði þar með söngfélaginu „Svan- ir“, en í október kennir bann karlakórnum „Vísir“ á Siglu- firði. í nóvember hefir hann i liyggju að kenna í Reykjavík og Hafnarfirði. * Jón Léifs, sem undanfarið hefir verið tónlistarstjóri út- varpsins, lét af j)ví starfi fyrir skömmu. Þó mun hann vera ráðinn áfram við útvarpið um þriggja mánaða tíma á ári, næstu 2 ár, til að vinna við plötusafn stofnunarinnar. Tón- verk Jóns hafa á sinni tíð ver- ið flutt allvíða í útvarp í Þýzkaland og á Norðurlöndum. Hver sá, er þóknast vill fjöldanum, er aumkunarverður. Hann stritar árangurslaust, því enginn mun verða honum þakklátur. Goethe. * Enginn annar en listamaðurinn sjálfur hefir skilyrði til að skilja þá örðugleika, sem hann verður að sigrast á. Goethe. E É L A G S P R E N T S M I D .1 A N

x

Heimir : söngmálablað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimir : söngmálablað
https://timarit.is/publication/601

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.