Heimir : söngmálablað - 01.02.1938, Blaðsíða 10

Heimir : söngmálablað - 01.02.1938, Blaðsíða 10
6 H E I M I R annað slig, stig liljóðfails og raddfléttunar (polyfoni). Hljómbundna aðferðin með öllum tónum ]>ríhljómsins og einum tvisvar er oft æskileg og áferðarfalleg í einkar smá- um, lyriskum ljóðum, en hún á erfiðara með að láta í Ijósi ofsa geðshræringarinnar og dramatiskan spenning; raddfléttunin hefir og það til síns ágætis, að allar raddir eru jafn-réttháar og samgildar; hér er því útilokað, að 2. tenór og 1. bassi gegni að eins starfi uppfyllingarinnar, t. tenór syngi ávalt laglínuna og 2. bassi myndi hljóm- grunninn, háðan hinni leiðandi rödd; liver rödd liefir sína sjálfstæðu tilveru eins og strengur á bljóðfæri, en um ícið eru þær óaðskiljanlega tengdar hver annari, spunnar úr sömu efnum eins og köngulóarvefurinn, lagðar í mót. næstum því flatarmálsfræðilegt í fullkomleik sínum, þar sem sérhver þáttur og strengur styður og lykst utan uin hvern hinna og er studdur og umluktur af öllum hinuin. betta verður lil þess, að bver rödd finnur meira til síns sjálfstæðis, og við það glæðist áhuginn, að ógleymdri þroskandi byggingu slíkra tónbálka. Við höfum nú loksins eignast tónlistarskóla, og er það merkilegt spor stigið í rélta átt. Mun hann smátt og smátt bæta við sig námsgreinum; en einni námsgrein gæti hann bætt við sig slrax undirbúningslítið, og það er kórsöngur. Nemendur skólans mynduðu þá annaðhvort sjálfir með sér kór eða gengju inn í einhvern kór bæjarins og' lærðu þannig: að tónlist liljómar fyrir tilstilli heildarinnar, að tónlist myndar heild, að heildin skapar tónlist. Ætli og að hafa í buga það, sem Robert Schumann segir í „Heimilis- listar-boðorðum“ sínum: „Hafðu aldrei af þér tæki- færi til að syngja eða spila með öðrum!“ Að lokum vildi ég minna á það, að það er ekki eingöngu kórsöngurinn, sem við þurfum að leggja áherzlu á, þótt það sé ináske fyrst og fremst. Nei, til er liljóðfæratónlist, og bún krefst einnig, að henni sé gaumur gefinn. Við verðum að kappkosta aðeignastsemfyrstsjálfstæðatónlist, lagræna tónlist, gera okkur far um að móta laglínu þjóð-

x

Heimir : söngmálablað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimir : söngmálablað
https://timarit.is/publication/601

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.