Heimir : söngmálablað - 01.02.1938, Blaðsíða 21
HEIMIR
F R É T TI R.
17
Engar söngfréttir hafa bor-
ist utan af landi og vill því
„Heimir“ cnn einu sinni beina
því til söngstjóra utan Reykja-
víkur, og annara manna i
kauptúnum og sveitum úti á
landi, aö senda fréttir af því,
sem við ber hjá þeim. — Ilér
á eftir birtast ummæli um
hljómleika i höfuðstaðnum
síðasta ársfjórðunginn 1937.
Hljómleikar Tónlistarfélagsins.
Tónlistarfélagið er stofnað
árið 1932 af 12 áhugamönnum.
Það starfrækir bæði Tónlistar-
skólann og Hljómsveit Reykja-
vikul’, og hefir gengist fyrir
hljómleikum og óperettusýn-
ingum (Meyjarskemman og
Systirin frá Prag).
Allan veg og vanda af fyrstu
hljómleikum félagsins á þess-
um vetri höfðu þeir Páll ísólfs-
son og Hans Stepanek, kenn-
íirar við Tónlistarskólann.
Hljómleikarnir voru haldnir i
Fríkirkjunni 10. nóv. síðasll.,
«g voru leikin verk fyrir orgel
og fiðlu. Þau voru eftir meist-
arana J. S. Bach, Brahms og
Reger. Fyrsta verkið var „Pre-
lúdía og Tripelfúga“ í es-dúr
eftir Bach. Dr. Guðmundur
Finnbogason myndi nefna
verkið: forleik og þrístefja-
hljómþulu. Mér flngu í hug orð
ritningarinnar, er ég vissi að
leika átli þetta verk: „Ef ein-
hver hefir eyru að heyra með,
hann heyri!“ Verkið gerir
miklar kröfur, og verður á-
heyrandinn að geta gert sér
grein fyrir þessu stórformi
tónlistarinnár, svo það veiti
honum Jistarunað. Páll ísólfs-
son lék verkið snilldarvel og
í anda Bachs. Allar línur voru
skýrt dregnar, því stílvitund
lians er sterk. Meðferð Páls á
„Introduktion og Passacaglia“
i f-moll eftir Reger, var einkar
snjöll og glæsileg. Á milli stóru
verkanna lék hann nokkur kór-
alforspil eftir Bach og Brahms,
blið og innileg, og var hvíld
i þeim. — Hans Stephanek lék
fiðluhljómleik i e-dúr eftir J.
S. Bach, með undirleik
strengjasveitar og orgelsins.
Hann er duglegur fiðluleikari,
vaxinn erfiðum viðfangsefnum,
sem hann túlkar stílhreint.
2, hljómleikar félagsins voru
haldnir i Gamla Bió 15. des.
síðastl. Var vel til þeirra vand-
að og voru þeir fjölbreyttir og
að mörgu leyti nýstárlegir.
Fyrst lék Illjómsveit Reykja-
víluir undir stjórn Dr. Franz
Mixa hljómdrápu (symphonia)
nr. 3 i c-dúr eftir Philip Ema-
núel Bach, sem nefndur er ým-
ist „Berlinar-Bach“ eða „Ham-
borgar-Bach“, til aðgreiningar
frá tveim bræðrum sínum, sem
einnig eru heimsfrægir tón-
snillingar,, „Londonar-Bach“
og Friedemann Bach. Þeir eru
synir Joli. Seb. Bach, hins