Heimir : söngmálablað - 01.02.1938, Blaðsíða 27
H E I M I R 23
dansa eftir því. Birtist árlega
nokkuð af dægurlögum eftir is-
lenzka höfunda, en hér er ekki
ástæöa til að telja þau.
Erling Blöndal Bengtsson
heitir cellosnillingur af ís-
lenzkum ættum, sem vakið hef-
ir athygli á sér i Kaupmanna-
höfn. Hann er nú 5 ára gam-
all og er undrabarn. Hann er
yngsti cellóleikarinn í Dan-
mörku og sennilega yngsti
hljóðfærasnillingurinn í öllum
heiminum. Móðir hans er Sig-
ríður Nielsen, systir Frithiofs
umboðssala og Hjartar fyrv.
bryta. Hún er af Egilsen-ætt-
inni og er systurdóttir Bene-
dikts Gröndal skálds. — „Pole-
tiken“ segir meðal ann-
ars um Erling, eftir að hann
hafði haldið fyrstu hljómleika
sína í Kaupmannahöfn haust-
ið 1936, þá rösklega 4 ára gam-
all: „.... Við ætlum engu að
spá um framtið Erlings. Við
ætlum aðeins að segja frá þvi,
sem við sáum og heyrðum. Við
sáum litinn og grannvaxinn
glókoll, með dvergvaxið celló,
sem þó var næstum því jafn-
stórt og hann sjálfur. Hann
sat á skemmli og spilaði þann-
ig, að manni kom ósjálfrátt i
hug kerlingin, sem sagði, þeg-
ar hún sá giraffa í fyrsta sinn
á æfinni: „Þetta getur ekki
verið. Sjónin glepur mig. Svona
dýr er ekki til!“ En hér var þó
ekki um neina missýningu að
ræða, því að drengurinn er
undrabarn, lireint og beint við-
undur. Annar eins tónn, boga-
dráttur, hljóðfall, öruggt og
karhnannlegt .... Það var eng-
in furða, þótt öll lögin tækj-
ust ekki jafn vel, en enginn
vissi þó betur um það en hann
sjálfur, þegar honum fataðist
listin. Það mátti sjá á augun-
;um hans og öllum svipnum.
Hann fékk ágætar viðtökur, var
margkallaður fram og varð að
spila aukalög og hneigja sig á
söngpallinum, eins og virkilega
miklir snillingar gera.“
Eftir því, sem við höfum
frétt, mun Reykvikingum gef-
ast kostur á að heyra þetta
undrabarn næsta sumar.
Látnir merkismenn.
Maurice Ravel, franska tón-
skáldið, dó 28. desember sið-
astl., 62 ára gamall. Hann var
einn af merkilegustu tónsnill-
ingum 20. aldarinnar. Vilhelm
Herold, óperusöngvarinn danski,
sem alkunnur er hér á landi,
dó úr hjartabilun í desember
síðastl. 72 ára gamall. Hann
var um skeið talinn einhver
glæsilegasti söngvari Dana, og
allra listamanna vinsælastur.
Orðsending til söngstjóra.
Vegna samþykktar síðasta
aðalfundar S.Í.K. um námsskeið
fyrir söngstjóra á sumri kom-
anda, óskar Sambandsstjórn-
in eftir, að þeir söngstjórar
Sambandskóranna, sem taka
vilja þátt í slíku námskeiði,
sendi henni tilkynningu þar að
lútandi fyrir 1. april næstk.