Heimir : söngmálablað - 01.02.1938, Síða 20
16
H E I M I R
G L E T T U R.
ítalska söngkonan Francesca
Cuzzoni, „gullna lyran“, eins og
hún var kölluð í föðurlandi
sínu, var komin til London, til
þess að syngja aðalhlutverkið í
söngleiknum „Otto“ eftir Han-
del. Ilún var lítil og ljót, en
söng eins og engill. Hún var
ekki ánægð með eitt lagið, fór
háðsyrðum um það og harð-
neitaði að syngja það. Iiandel
rann í skap. Hann var bráður
maður og stórlyndur og hann
vissi, að söngkonan var mis-
yndismanneskja og hafði illt
orð á sér. Hann sagði við hana:
„Víst veit eg, að þér eruð hreinn
og beinn djöfull, en eg skal
segja yður, að eg er Belzebub,
sjálfur erkidjöfullinn.“ Síðan
þreif hann söngkonuna, — þvi
hann var rannnur að afli, — bar
hana iit að opnum glugga og
gerði sig líklegan til að fleygja
henni út um hann. Söngkonan
varð skelkuð og baðst vægðar
og lofaði að syngja lagið. Það
gerði hún líka.
*
Ekki var hrokinn litill i ensk-
um söngvara einum, Gordon að
nafni. Einu sinni á æfingu leit
hann með fyrirlitningarsvip til
Handels, sem sat við hljóðfær-
ið fyrir neðan leiksviðið, og
kvaðst ekki geta notast við jafn
lélegan undirleik. Hann ])óttist
vera svo gramur, að hann gæti
varla stilt sig um að stökkva
niður af leiksviðinu og mölva
hljóðfærið. Handel svaraði þá:
„Góði minn! Segið mér, á hvaða
stað í söngleiknum þér ætlið að
stökkva, svo ég geti auglýst það.
Ég er sannfærður um, að þeir
eru miklu fleiri, sem vilja sjá
yður stökkva niður af söngsvið-
inu, en heyra yður syngja.“
(Hándel, tónskáldið mikla,.
var einhver mesti orgelsnilling-
ur sinnar tiðar, og auk þess
snjall á önnur liljóðfæri, eins
og harpsichord (einskonar pí-
anó). Matteson segir á einum
stað í ritum sínum: „Ég þekki
engan orgelsnilling meiri en
Hándel, nema það væri þá Bach
í Leipzig.“
*
Tollskoðun. Hinn rússneski
bassasöngvari Cjaljapin var að
fara frá Ameríku, og tollverðir
rannsökuðu farangur hans
mjög grandgæfilega. Þar var
frú ein viðstödd, sem þekkti
söngvarann, og þótti henni nóg
um. Hún hnippti í einn loll-
vörðinn og sagði:
„Sjáið þér ekki, að þetta er
hinn heimsfrægi Cjaljapin,.
maðurinn með milljónirnar i
barkanum.“
„í harkanum?“, spurði toll-
vörðurinn grallaralaus. Síðan
sneri hann sér að söngvaran-
um og sagði:
„Viljið þér koma hérna inn
fyrir, það verður að taka rönl-
genmynd af yður.“