Heimir : söngmálablað - 01.02.1938, Síða 22
18
H E I M I R
mikla tónsnillings. Hljómdráp-
an er frisk og lifandi, og hefði
notið sín betur, ef hljómsveit-
in hefði getað leyst það af
hendi, sem stjórnandinn reyndi
að laðá úr henni. — Síðan var
leikinn „Konsert fyrir 3 kla-
ver“, í d-moll, eftir Joh. Seb.
Bach. Einleikarar á klaverin
voru Arni Kristjánsson, Páll
Isólfsson og ungfrú Helga Lax-
ness. Hljómsveitin, lék undir
pianóleiknum, en dr. Mixa
stjórnaði. Hér voru góðir kraft-
ar að verki. Tónsmíðin er fög-
ur og merkileg. Hún fékk vand-
aða meðferð. — Síðast var upp-
færð messan í g-dúr eftir Franz
Schuþert, citthve'rt yndisleg-
asta kirkjutónverk í sinni röð,
samin af höfundinum 18 ára
gömlum, á fimm dögum. Mess-
an er stórform við latneskan
texta. Hún var sungin af 26
manna úrvalskór karla og
kvenna, með undirleik Hljóm-
sveitar Reykjavíkur, en Dr.
Mixa stjórnaði. Einsöngvarar
voru frú Svanhvít Egilsdóttir,
sópran, Pétur Jónsson óperu-
söngvari, tenór, síra Garðar
Þorsteinsson, barítónn og Arn-
ór Halldórsson, bassi. Hjálpað-
ist allt að, góðir söngkraftar,
góður undirleikur hlj'ómsveit-
arinnar og skilmerkileg söng-
stjórn, til þess að þetta fagra
söngverk fengi notið sín. Þetta
er i fyrsta sinn, sem söngmessa
er uppfærð hér á landi.
Dr. Franz Mixa stjórnaði
þessum hljómleikum, og sýndi
það sem fyrr, að hann er starf-
inu vel vaxinn.
Starf Tónlistarfélagsins er
gott og gagnlegt og til menn-
ingarauka. Með sama áfram-
haldi er þess að vænta, að ]iað
bæti smekk manna og geri þá
hæfari til að njóta góðvar tón-
listar en áður, og er það vel
farið.
Itögnvaldur Sigurjónsson er
einhver efnilegasti píanónem-
andinn, sem í Tónlistarskól-
ann hefir komið, og er þegar
orðinn áheyrilegur píanóleik-
ari. Hann hélt hljómleika í
Gamla Bió G. okt. síðastl. fyrir
fullu húsi. Hann spilaði fyrst
tvö forspil og hljómþulur eftir
Bach og sýndi strax í þessum
verkum, að hann hefir náð
miklu valdi yfir hljóðfærinu.
Þar næst spilaði hann 32 til-
brigði í c-moll eftir Beethoven,
sem er einhver merkilegasti
lilbrigðaþáttur í píanólist heið-
stefnunnar (klassiskri píanó-
tónlist). Þar næst spilaði hann
„Kirkjan á mararbotni" 'eftir
Debussy, sem hánn dró upp
skýrt og lifandi, svo maður sá
fyrir sér eins og málverk, það
sem tónverkið átti að tákna,
en skýring á því var prentuð
i söngskránni. liru verk þess-
arar tegundar kölluð hermi-
tónljst] „Skyndi,sýnir“ eftir
Prokoviev er nýtízkutónlist, og
mun hafa farið fyrir ofan garð
og neðan hjá flestum. Meðferð
hans á „Grand Etude“ eftir