Alþýðumaðurinn - 14.11.1970, Síða 3
BRAGI SIGURJÓNSSON, alþingismaður:
Alþýáuflokkurinn og þjóömálin
3
ALÞÝÐUFLOKKUR íslands er
flokkur þróunar, ekki byltingar.
Hann leitast við að koma stefnu
málum sínum áleiðis með því að
afla þeim fylgis með þjóðinni,
ekki knýja þau fram með of-
ríki og valdi. Þar sem hann hef-
ir aldrei orðið meirihlutaflokk-
ur með þjóðinni, fremur en
raunar aðrir flokkar nú um 40
ára skeið, hefir hann átt um þá
kosti að velja að vera sífellt í
stjórnarandstöðu eða taka þátt
í stjórnarsamstarfi eftir aðstæð-
um og freista þannig að þoka
málum fram. Alþýðuflokkurinn
hefir valið síðari kostinn sem
sóknarleið: Hann hefir tekið
þátt í stjórnarsamstarfi, hvenær
sem hann hefir átt þess kost og
fundizt hann ná áleiðis til
stefnumarka með þeirri þátt-
töku.
Alltaf hefir þessi valkostur þó
verið nokkuð umdeildur innan
flokksins og þá ekki síður hitt,
að hverju mætti lúta sem rétt-
lætanlegum árangri af stjórnar-
samstarfi hverju sinni, því að
innan raða Alþýðuflokksins,
eins og raunar allra flokka, hafa
verið og eru bæði harðsæknir
og seigsæknir menn, og lengi
má um það þrátta, hvort þol-
gæðið eða harðsæknin skilar
lengra. Staðreyndin er hins veg
ar þessi: Alþýðuflokkurinn hef-
ir haldið sig við þolgæðisleiðina,
tekið þátt, samið, þokað, slegið
af, ýtt á, allt eftir því sem hann
hefir metið vígstöðuna hverju
sinni. Enginn neitar nú, að hann
hafi komið mörgum stefnumál-
um sínum ótrúlega langt áleiðis
á rúmlega 50 ára starfsferli sín-
um, en hann hefir engu fjölda-
fylgi náð. Til þess liggja á yfir-
borði augljósar ástæður: þrí-
vegis hafa fjöldahópar klofið sig
út úr Alþýðuflokknum og geng
ið til annarrar flokksmyndunar.
Slíkt hefir enginn annar stjórn-
málaflokkur landsins mátt þola,
og fullyrða má, að slíka blóð-
töku hefði enginn annar flokk-
ur en Alþýðuflokkurinn þolað:
flokkur með mjög ákveðna
grundvallarstefnu og flokkur
með ákaflega traustan flokks-
kjarna, þolgóðan innsta hring.
Samt sem áður mega engir Al-
þýðuflokksmenn leyna sig því,
að fyrir hinum endurtekna
klofningi í flokknum hljóta að
liggja fleiri ástæður en sú ein,
að þeir, sem burtu hafi gengið,
hafi ekki verið þróunarmenn,
heldur byltingamenn. Þetta var
veigamesta ástæðan fyrir klofn
ingnum 1930 og vísast einvörð-
ungu, en 1937 og 1956 mun sókn
arleiðin og sóknaraðferðin hafa
valdið meiru: harðsæknina og
þolgæðið greindi fastlega á og
lag brast til að halda sóknar-
orkunni í einum farvegi. Þessa
hefir íslenzk alþýðuhreyfing
ekki borið bætur. Sem þróunar
flokkur verður Alþýðuflokkur
íslands alltaf að byggja höfuð-
starf sitt á þolgæðinu, en stjórn
list hans stendur og fellur með
því að finna því rétt mörk,
hvenær skuli sverfa til stáls og
hvenær bíða færis.
Hver er þá grundvallarstefna
Alþýðuflokksins? Þetta mætti í
fám orðum orða svo: Alþýðu-
flokkur íslands vill koma á vel-
ferðarríki, þar sem frelsi, jafn-
rélti og samhjálp er í heiðri
haft. Þetta táknar, að Alþýðu-
flokkurinn leggur áherzlu á at-
vinnu fyrir alla, hún sé svo
launuð, að allir hafi þóknanlega
fyrir sig, svo sem það táknar
að mati almennings hvei-ju
sinni, menn hafi frelsi til að
velja sér atvinnu og menntun
og tjá sig og fylgja skoðunum
Bragi Sigurjónsson.
sínum, og samhjálp alþjóðar sé
slík, að sjúkir og aldraðir þurfi
ekki að óttast um afkomu sína
né sinna. Hér eru að sjálfsögðu
aðeins útlínur stefnunnar teikn
aðar upp.
Tií frekari glöggvunar skul-
um við líta snöggvast um öxl
og virða fyrir okkur, hvernig
Alþýðuflokkurinn hefir sótt
fram til stefnumarka sinna, en
fyrst skulum við þó minna okk-
ur á, að hugatkið velferðar-
ríki breytist að sjálfsögðu alltaf
með nýjum tíma og nýjum við-
horfum. Velferðarríki er eitt af
eilífðarmálum mannsins, það
hvernig mennirnir skuli búa
saman, svo sem bezt má á kjósa.
Sama gildir um hugtökin frelsi,
jafnrétti og samhjálp. Þau taka
alltaf hop af ríkjandi skilningi
á þeim með hverri kynslóð. Það
er ekki hægt að leggja algilda,
óumbreytanlega merkingu í
þau. Frelsis- og jafnréttismörk-
in víkka og krefjast annarra
sóknaraðgerða, eftir því sem
nær er komið mörkunum, sem
fyrst blöstu við.
Eitt af fyrstu baráttumálum
Alþýðuflokksins var rýmkun
kosningaréttarins. Frá því að
vera bundinn við 25 og 35 ára
aldur og nokkra eign, er hann
nú orðinn almennur og hefst
með 20 ára aldri. Alþýðuflokk-
urinn mun á yfirstandandi þingi
flylja frumvarp að lögum um,
að kcsningaaldurinn hefjist
með 18 ára aldri.
Næst skulum við nefna orlof.
Alþýðuflokkurinn hóf það
merki, að allir vinnandi menn
skyldu njóta tiltekins orlofs frá
starfi með fullum launum. Þetta
þótti fáheyrð krafa í upphafi.
Hún hlaut þó staðfestingu Al-
þingis í svonefndum orlofslög-
um, sem löngu þykja sjálfsögð
mannréttindi, réttindi, sem nú
þurfa rýmkunar og umbóta við,
og mun Alþýðuflokkurinn einn-
ig flytja um það frumvarp á Al-
þingi í vetur.
Þá skulum við víkja að sam-
hjálpinni við sjúka, örkumla og
aldraða. Við setningu laga um
þau mál hefir Alþýðuflokkur-
inn haft forgöngu, svo sem al-
kunna er: fyrst 1936, næst 1946
og loks 1960, svo að stærstu
áfangar séu nefndir, hvað al-
mannatryggingar snertir. Nú
eru tryggingalögin í gagngerri
endurskoðun, svo sem breyttir
tímar og þjóðfélagshættir krefj-
ast. Framlög ríkisvaldsins til
tryggingamála hafa vaxið stór-
lega frá upphafi, en auk þess
hafa svonefndir lífeyrissjóðir
hinna ýmsu þjóðfélagsstétta ris
ið á legg. Fyrstu stefnumörk A1
þýðuflokksins í tryggingamál-
um voru þau, að sjúkir,
örkumla og aldraðir skyldu
njóta styrks og stuðnings eftir
samhjálparleiðum hins opin-
bera og þannig hafa málin þró-
azt fram, unz nú er kröfumark-
ið, að þessir aðilar njóti fullrar
efnahagsumsjár með tilstyrk líf
eyrissjóða og almannatrygginga.
Að þessu marki stefnir Alþýðu-
flokkurinn nú og heitir á lið-
sinni til að ná því hið fyrsta.
Menntunar- og menningar-
mál hafa frá upphafi verið rikur
þáttur í baráttusögu Alþýðu-
flokksins, því að skoðun hans
er að menntun og menning sé
lykillinn að auðugu og farsælu
lífi. Um 14 ára skeið hefir Al-
þýðuflokkurinn farið með yfir-
stjórn skólamála í landinu og
orkað þar grettistaki til fram-
fara: skólabyggingum hefir
fleygt fram, menntunarsókn hef
ir stórvaxið, endurskipan alls
skólakerfisins hefir verið í hrað
fara mótun, framlög ríkisins til
alls konar menningarmála hafa
stóraukizt. Það hefir gustað um
þessa forystu, hún hefir verið
gagnrýnd harðlega af andstæð-
ingum og ugglaust hefði hún
sumsstaðar mátt fara betur úr
hendi. Svo er um allt. En hitt
orkar ekki tvímælis, að hún hef
ir markað þáttaskil, hún hefir
verið átakamikil og hennar sér
lengi stað. Enn hefir Alþýðu-
flokkurinn þar meira á döfinni.
En aukin menntun, aukin frí
til að njóta tilverunnar, auknar
tryggingar til öryggis sjúkum
og öldnum verða ekki almenn-
ingseign nema þjóðin njóti al-
mennrar hagsældar. Þess vegna
eru atvinnu- og kaupgjaldsmál
úrslitaatriði fyrir almenning:
að allir hafi vinnu og hún sé
svo vel launuð, að þeir, sem
inna hana af hendi, séu vel
haldnir af. Hér skulum við enn
líta á viðhorf Alþýðuflokksins. |
í fyrstu, meðan kaupgjald hér-
lendis var raunverulega hungur
laun, barðist Alþýðuflokkurinn
sífellt fyrir kauphækkunum.
Seinna, þegar kaupgjald var
komið yfir nauðþurftarmörkin,
fór flokkurinn að leggja aukna
áherzlu á kaupmátt launanna.
Það er skoðun Alþýðuflokks-
manna, að hann skipti nú laun-
þegann meira máli en krónu-
fjöldinn, en því er ekki að
neita, að flokkurinn hefir reik-
að nokkuð til á þeirri stefnu í
kapphlaupi verkalýðsforingja
verkalýðsflokkanna um fylgi.
Alþjóð er ekki alltaf nógu ljós
munurinn á kaupmætti og
ki’ónufjölda. Af þeim sökum
hefir kaupgjald gjarnan hækkað
í rykkjum, sem hafa dregið efna
hagslega röskun á eftir sér.
Enginn vafi er á, að almenningi
væri farsælla, að kaup hækkaði
fremur eftir fyrirfram gerðum
samningi um lengri tíma, svo
sem varð, er launajafnrétti
kvenna við karla komst á í
áföngum. Þar lýsti sér dæmi-
gerð Alþýðuflokksstefna í kaup
gjaldsmálum.
Og svo er það atvinnan. Hátt
kaup er gagnslítið, ef vinnuna
skortir. Því er grundvallarkrafa
Alþýðuflokksins: næg vinna
fyrir alla vinnufæra. Þessu
marki telur Alþýðuflokkurinn
fært að ná með samátaki einka-
reksturs, félagsreksturs og ríkis
reksturs atvinnuveganna. Þar
sem Alþýðuflokkurinn er fyrst
og fremst félagshyggjuflokkur,
hefir áhugi hans í atvinnu-
rekstri opinberlega beinzt mest
að félagsrekstri og ríkisrekstri,
en að sjálfsögðu viðurkennir
hann gildi vel rekins einka-
reksturs. Alkunna er þáttur Al-
þýðuflokksins í bæjarrekstri
togara og báta, ríkisrekstri síld
arverksmiðjanna og upp'oygg-
ingu hraðfrystiiðnaðarins og
niðursuðuiðnaðarins. Allra síð-
ustu árin hefir Alþýðuflokkur-
inn staðið að eflingu stóriðnað-
ar í landinu með aðild erlends
fjármagns að vissu marki. Allt
byggist þetta á grundvallar-
nauðsyninni: nægri vinnu fyrir
alla.
Þess var áður getið, að Al-
þýðuflokkurinn hefði ekki náð
því marki að verða fjöldaflokk-
ur. Samt hefði hann þokað
stefnumálum sínum furðulangt.
Þetta hefir hann gert í sam-
vinnu við aðra flokka og með
tilstyrk þeirra: Upphaf elli- og
sjúkratrygginganna var sam-
átak Alþýðuflokks og Fram-
sóknar, hið aukna og endur-
bætta form þeirra, almanna-
tryggingarnar, samátak Alþýðu
flokks, Sósíalistaflokks og Sjálf
stæðisflokks, og síðari stórbreyt
ingar Alþýðufl. og Sjálfstæðis-
fl. Mesta átak íslendinga í tog-
aramálum var samátak Alþýðu-
fl., Sjálfstæðisfl. og Sósíalistafl.,
síldarverksmiðjur ríkisins voru
í upphafi samátak Alþýðufl. og
Framsóknarfl., stærstu átökin í
húsnæðismálum samátak Al-
þýðufl. og Sjálfstæðisfl., í
menntamálum Alþýðufl. og
Sjálfstæðisfl. og í stóriðjumál-
um og nýrri sókn í markaðs-
málum samátak Alþýðufl. og
Sjálfstæðisfl.
Enginn getur borið Alþýðu-
flokknum á brýn, að hann hafi
haldið að sér höndum á starfs-
ferli sínum, og svo mun heldur
ekki verða um framtíð. Þar er
til sanninda stefnumörkun
flokksins á nýafstöðnu flokks-
þingi fyrir næsta áratuginn.
Þess vegna heitir Alþýðuflokk-
urinn á lið sitt til nýrrar sókn-
ar, öflugri en nokkru sinni fyrr,
til aukins jafnréttis, meira
frelsis, virkari samhjálpar og
meiri velferðar. Hann heitir á
nýtt lið sér til aukins fulltingis,
hann heitir á aðra flokka til
samvinnu að þessum sóknar-
mörkum, og enn sem fyrr mun
hann láta málefnin ráða um þá
samvinnu, sé hennar völ, það
ráða, hvaða samstarf þyki lík-
legast til að bera stefnumál
hans lengst áleiðis að dómi
beztu manna flokksins, eða
hvort hófstillt, en stefnuþung
stjórnarandstaða kunni að vera
áhrifameiri um sinn.
Hitt á ekki að þurfa að segja
neinum, að flokki er fylgiafl
þeirra hluta, sem gera skal. Því
meira fylgi, sem Alþýðuflokkur
inn fær við kosningar, því
meira er afl hans til sóknar að
marki velferðarríkis á íslandi,
til aukins frelsis, aukins jafn-
réttis, meiri samhjálpar, hinna
eilífu stefnumarka karla og
kvcnna, er sækja fram.
s
Heillaóskir frá Jóni Áxel Péturs-
syni íil ÁSþýðumannsins 40 árai
Jón Axel Pctursson.
ALÞÝÐUMAÐURINN, Akur-
eyri. Á fertugsafmæli Alþýðu-
mannsins er mér ljúft og skylt
að tjá ánægju mína og þakklæti
fyrir útkomu hans. Það er hress
andi og göfgandi fyrir okkur
hér syðra, að sjá hve vel ykkur
þarna fyrir norðan tekst að sam
eina gagnrýni á andstæðingana,
viðtöl við þá og hóflegar heilla-
óskir, en berjast þó jafndjarft
fyrir málstað jafnaðarstefnunn-
ar.
Við lifum í landi víðáttunnar
og fámennisins. Hvílík dýrð
fyrir land okkar og þjóð.
Enn er loftið okkar lítt meng-
að, stöndum vörð uni það um-
fram allt. Varanleg lífshamingja
og mengunar- og náttúrurösk-
un fer ekki saman, þegar til
lengdar lætur.
Bcztu kveðjur og heillaóskir.