Alþýðumaðurinn


Alþýðumaðurinn - 14.11.1970, Blaðsíða 23

Alþýðumaðurinn - 14.11.1970, Blaðsíða 23
BJÖRN FRIÐFINNSSON, bæjarstjóri, Húsavík: Hvers parf nátfma MEÐ hugtakinu „m'ithna þjóðjé- lag“ eigura við íslendingar venju- lega við vestræut háneyzluþjóðfé- lag, — „allsnægtaþjóðfélag" — þjóðfélag íslendinga í dag. Ég mun einnig taka mið af þeirri skilgreiningu í þessum fáu línum, sem ég festi á blað í tilefni af tímamótum í útgáfusögu Alþýðu- mannsins. Það „nútíma þjóðfélag", sem við tölurn um, er hins vegar algjör andstæða þeirra þjóðfélaga, sem meirihluti mannkyns býr enn við á okkar tímum, — örbirgða- og misréttis þjóðfélög þriðja heims- ins og ófrelsissamfélög einræðis- ríkjanna. Um þau þjóðfélög mætti rita langt mál, en vandamáf þeirra eru einnig okkar vandamál, eða verða það í náinni framtíð. í okkar þjóðfélagi hefur tekizt að hagnýta nýjustu tækni, mennt- un og vinnusemi almennings á- samt hagstæðum náttúruskilyrð- um til þess að afla okkur margra gæða og efnast á viðskiptum við önnur lönd. Hér býr samstæð þjóð, tengd sameiginlegri tungu, trú og venjum, á afmiirkuðu eig- in landssvæði við fullt sjálfstæði og lýðræðisskipulag. Á ýmsan hátt hefur þjóðfélag okkar sérstöðu. Þar má til dæmis nefna fámennið. Við myndum eitt fámennasta ríki á þessari jörð. Þegnarnir þekkja óvenju vel hver til annars, og hér tíðkast ekki þau múgstjórnartæki, sem mjög setja svip sinn á stærri þjóðfélög. Þá erum við vopnlaus þjóð. — Réttur okkar til að lifa óáreitt í eigin landi og 'halda yfirráðum Jiess, byggist á því að friður ríki í okkar heimshluta og alþjóða- reglur taki tillit til okkar og séu virtar. íslenzka ríkið þarf að hafa friðsamlega sambúð við allar þjóðir og það þarf að sigla milli skers og báru í deilum annarra ríkja. En hvaða þróun er þetta og hvað stýrir henni? Frumhvati þróunar þeirrar, sem ég geri að umtalsefni, er tækni- bylting samtímans. Samgöngu- byltingin. fjölmiðlarnir og sjálf- virknibyltingin valda nú örari breytingum á samfélögum jarðar- búa, en þeir áður hafa þekkt á jafnskömmum tíma. Breytingar, sem áður tók tugþúsundir ára að breyta lífi mannsins, samsvara nú breytingum, sem náð hafa til allra jarðarbúa á hluta úr mannsævi. Dæmi um þetta eru flugsamgöng- urnar, geimferðirnar og byltingin í læknisíræði. Og það er fleira, Björn Friðfinnsson. er styður að þeirri þróun, sem ein- kennir síðari hluta okkar aldar. Sérsaklega vil ég minnast á á- hrif stjórnmálakenninga, sem nú móta hugi fólks um heim allan. Við þekkjum öll áhrif ýmissa al- þjóðlegra kenninga um stjórnmál á þjóðfélög samtímans. Þar er bæði um að ræða kenningar heims spekinganna frönsku og ensku, um eðli og skipulag ríkisvaldsins og kenningar þeirra Marx og Eng- els um efnahagslegt eðli þjóðfé- lagsins. Fleiri slíkar stjórnmála- kenningar, sent alþjóðlegt gildi hafa, mætti nefna. En kenning- unum er það sammerkt, að þær hafa komið róti á hugi fólks í fjölmörgum þjóðfélögum, þær hafa kollvarpað gömlum venjum og valdastofnunum. Þjóðskipulag allra ríkja heims mótast í ein- hverju af þessum kenningum, þótt útfærlsan sé sín með hverju lagi. Jafnaðarstefnan er ein slík al- þjóðleg kenning. Flestir íslend- ingar játa hana í einhvérju. Al- þýðuflokkurinn hefur haft for- ystu um útfærslu jafnaðarstefn- unnar í íslenzkri þjóðfélagsþró- un, og það er öllum Ijóst, að hún hefur þar fundið mikinn hljórn- grunn. Framieiðum: FREÐFISK SALTFISK SKREIÐ LÝSI FISKIÐJUSAMLAG HÚSAVÍKUR SÍMAR: 4-12-47 - 4-12-57 - 4-13-88. J)jóðfélag En hvert stefnir þróun íslenzka þjóðfélagsins í dag? íslendingar hafa lengi verið veiðimannaþjóð. Veiðar hafa skapað lífsviðurværið að verulegu leyti, og þótt þær hafi stundum orðið meiri en lífsviðurværið þarfnaðist í strangasta skilningi, þá höfum við oft haldið veiðun- um áfram að miklu leyti ánægj- unnar vegna. Þannig fór t. d. fyrir síldarstofnunum okkar sálugu, sem mokað var upp úr hafnu, enda þótt lítið gagn væri af veið- inni að hafa, annað en að setja hana í gúanó fyrir lágt verð. Ég hef oft ekki komizt hjá því að draga samanburð af þessum veiðiskap og því neyzlukapp- hlaupi óg lifsþægindagræðgi, sem einkennir þjóðfélag okkar í dag. Einstaklingar og starfsstéttir stunda nú þann veiðiskap af lífi og sál að kraka til sín sem mestu af þeim efnahagslega ávinningi, sem tæknibyltingin skapar þjóð- félaginu í heild. Enginn spyr að því, hvar mörkin séu fyrir veið- unum og það verður svo árvisst verkefni hverrar ríkisstjórnar að reyna að ná einhverju aftur af yiá? veiðinni eða reyna að finna veiði í stað þeirrar, sem uppurin er. Þessi veiðimannaaðferð við skiptingu þjóðartekna og þjóðar- auðs hefur í sér fólgna þá hættu, að stórir hópar þjóðfélagsþegna verði útundan. Þeir, sem ekki geta hótað því að hætta að lækna sjúka, hætta að veiða fisk, hætta að hreinsa sorptunnur, sigla skip- um eða loftförum, þeir sem ekki hernema sendiráð eða vekja á sér athygli með afbrigðilegum hætti, missa alveg af veiðinni, ef ekki kemur annað til. Gamla fólkið, sem hætt er störfum, getur t. d. ekki hótað þjóðfélaginu neinu, þótt sparifé þess og ellilaun verði lítils virði í hita neyzlukapp- hlaupsins. Og sama má segja um aðra stóra hópa þjóðfélagsþegna. Veiðimenn elta veiðina uppi og því hafa íslenzkir veiðimenn í stórum stíl flutt sig til í land- inu, þangað sem „mest er að hafa“ af neyzluvörum nútímans. Þannig er íslenzkt þjóðfélag smám saman að bindast búsetu á einu 'borgarsvæði á sv.-landi. Það er markmið stofnunar ís- lenzka ríkisins að hafa stjórn á málum þjóðarinnar, sinna sam- eiginlegum þörfum hennar og jafna niður skyldum þjóðfélags- þegnanna. Það er líka hlutverk ríkisvaldsins að láta þjóðfélagið ekki þróast skipulagslaust. Lýðræðið krefst leiðtoga og leiðtogarnir þurfa að fylgja ákveð- Inni stefnu í störfum sfnum. Við, sem jafnaðarstefnuna aðhyllumst teljum, að leiðtogum ríkisvaldsins beri að gæta þess, að allir þegnar þjóðfélagsins fái sinn hlut í arð- sköpun þess, en ekki einungis þeir, sem í lykilaðstöðu eru eða frekastir til fóðursins. En þótt bætt efnahagsleg skil- yrði almennings leiði að jafnaði til betra lífs, þá er alls ekki víst, að svo sé í mörgum tilvikum. — Aukin neyzla skapar ekki aukna hamingju út af fyrir sig og ærið margt í samfélagi nútímans er ásókn eftir lofti. Þjóðfélagsumbætur næstu ára- tuga hljóta því í æ víðtækari mæli að beinast að því að skapa feg- urra mannlíf og bætta lífsnautn þjóðfélagsþegnanna. — Auknar tómstundir og aukin tækifæri til þess að nýta þær við að auðga andann og styrkja líkamann. — Bókasöfnoga ðstað a til mennt- unar fyrir alla aldursflokka, tón- list, myndlist og aðrar listgreinar, þurfa að skapa fleirum lífsánægju og lífsfyllingu en nú er. íþrótta- atSstaða allra aldursflokka þarf að batna. Bæta þarf skilyrði fólks til að njóta fegurðarinnar í umliverfi okkar og á fjarlægum slóðum. — Bæta þarf heilbrigðisþjónustu o. s. frv. Menn þurfa líka að finna sjálfa sig betur, en komist aukinn jöfnuður lífskjaranna milli starfs- hópa og landshluta á, hlýtur æ fleirum að verða ljós þau lífsgæði, sem fólgin eru í búsetu í návist ómengaðrar og óspilltrar náttúru og við aðstæður, sem lokka fram •ýtrustu hæfileika hvers einstakl- ings á sem flestum sviðum. Slíkar umbætur koma ekki a£ sjálfu sér. Þær verða einungis til með styrkri forystu samhentra þjóðfélagsafla. Það er lilutverk ís- lenzkra jafnaðarmanna að veita þá forystu. Nútíma þjóðfélag þarf þess við. HÖFUM FYRIRLIGGJANDI: KRAFT-PAPPÍR, 1 m breiðan UMBtJÐAPAPPÍR, 20, 40 og 57 cm PAPPÍRSPOKAR, 1 / 8 til 10 kg SMJÖRPAPPÍR í örkum, 50x70 cm CELLOPHANEPAPPÍR, 60x70 cm SERVÍETTUR, hvítar PLASTPOKA, margar stærðir PLASTFILMU í rúllum W.C.-PAPPÍR, „Nokia“ „SELLOT APE“-LÍ MBÖND TÓMAS STEINGRÍMSSON & CO.

x

Alþýðumaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.