Alþýðumaðurinn - 14.11.1970, Page 4
Þeir, sem liafa ritstýrt Alþýðumannmum frá uppliafi:
loka október árið 1964. Þá tók
við ritstjórn Steindór Steindórs
son frá Hlöðum og var hann rif
stjóri blaðsins þar til í október-
byrjun árið 1965. Tók þá við
ritstjórn Sigurjón Jóhannsson,
er gegnt hefir því starfi síðan.
ERLINGUR Friðjónsson og
Halldór Friðjónsson frá stofn-
degi blaðsins, þar til í janúar-
byrjun 1947. Þá tók Bragi Sigur
jónsson við ritstjórn blaðsins og
hélt við stjórnvöl þess allt til
Erlingur Friðjónsson.
Halldór Friðjónsson.
Bragi Sigurjónsson.
Steindór Steindórsson.
Sigurjón Jóhannsson.
— ■-.. V,
Alþýðumaðurinn þakkar
S —.........
Fyrsfa ávarp Alþýðumannsins
ALÞÝÐUMAÐURINN flytur
hér með öJlum þeim fjölmörgu
þakkir er lagt liafa fram lið-
veizlu sína til þess að AM gæti
minnzt fertugsafmælis síns sem
þetta blað er helgað að megin-
efni. Þakkir blaðsins eru heilar
SUÐRÆN ALDIN!
VÍNBER
EPLI
MELÓNUR
CITRÓNUR
BANANA
APPELSÍ N U R
Sendum heim!
HAFNARBÚÐSN
Sími 1-10-94.
og eiga að ná til allra er eiga
þar hlut að rnáli um efni, jafnt
greinarhöfundum, auglýsend-
um, árnaðarkveðjur livort sem
þær koma fyrir augu lesenda
sem greinar, eða í auglýsinga-
formi. Undantekningalítið hefir
blaðið allsstaðar mætt velvild
og hlýju þar sem það hefir bank
að að dyrum og beðist liðsinnis.
Þessar góðu undirtektir eru
blaðinu ómetanlegar — og því
heilsar AM fimmtugasta ára-
tugnum af bjartsýni. Hafið þið
öil heila þökk fyrir. En góðir
Iesendur. Þótt blaðið sé 32 síðutf
nú, bíða margar greinar næsta
blaðs. — s. j.
UM LEIÐ og „Alþýðumaður-
inn“ hefur göngu sína, þykir
hlýða, að honum sé fylgt úr
hlaði með nokkrum orðum. Fyr
ir 13 árum síðan stofnuðum við
Halldór bróðir minn blaðið
„Vei'kamaðurinn“ með tilstyrk
og áeggjan ýmsra áhugasamra
verklýðssinna hér á Akureyri,
en þegar Verklýðssamband
Norðurlands var stofnað, tók
það við útgáfu blaðsins og hefir
haft hana síðan. Varð þó lítil
breyting á yfirstjórn „Verka-
mannsins", þó Verklýðssam-
bandið hefði útgáfu hans með
höndum, því Halldór sá um út-
gáfu blaðsins en ég' var ábyrgð-
J 7ST’ Ritstjóri: SIGURJÓN JÓHANNSSON (ób.). M . m\ nfc\ /gg Ötqefandi: ALÞÝÐUFLOKKSFÉLAG AKUR- j 'a\ / g EVRAR. — Afgreiósla og auglýsingar: m B I w/ H Strandgötu 9. II. hæ3, sími (96)11399. — BBl / W Prentverlc Odds Biörnssonar h.f., Akurevri ALÞÝÐUMAÐURINN
armaður þess og sá um fjár-
reiður. Sú breyting varð þó á
blaðinu, að nýir kraftar bættust
því og það fór að koma út
tvisvar í viku, í stað þess, sem
það hafði ekki komið út nema
einu sinni í viku áður, og meira
fór að bera á þeim skoðunum í
blaðinu, sem sumir yngri menn
verklýðshreyfingarinnar hallast
að. Bar eftir því meir á'þessu
sem lengra leið á síðasta ár. Mér
er það ljóst, að meginþorri al-
þýðu í landinu hallast ekki að
kommúnisma, og taldi ég því
ekki rétt, að blað, sem gefið er
út í nafni verkalýðsins, gleymdi
sínum aðaltilgangi, að tala máli
alþýðunnar, en kommúnistarn-
ir, sem eru í meirihluta í stjórn
Verklýðssambands Norður-
lands, þoldu ekki að dregið væri
úr áhrifum þeirra í blaðinu og
gerðu kröfu til að ég léti þeim
í hendur yfirráð yfir því. Tóku
því kommúnistarnir að öllu
leyti við „Verkamanninum" í
fyrradag og komum við bræður
því ekkert við útgáfu hans meir.
Gætnari menn verklýðshreyf
ingarinnar hér um slóðir telja
hins vegar ófært að una því, að
ekki sé til blað, sem sé í sam-
ræmi við vilja fjöldans. Hefir
því ráðizt, að þetta blað yrði
gefið út að tilhlutun þeirra og
ég yrði ábyrgðarmaður þess
fyrst um sinn.
Stefna blaðsins verður sama
og stefna Alþýðuflokksins í
verklýðsmálum. Mun það leggja
mesta áherzlu á, að ræða kaup-
gjaldsmál og önnur þau mál,
sem nátengdust eru alþýðunni.
Nafn blaðsins, „Alþýðumað-
urinn“, hefir í meðvitund fólks
lílsa þýðingu og orðið „Verka-
maðurinn“ en þó öllu víðtæk-
ari. Teljum við, sem að útgáfu
blaðsins stöndum, nafnið all vel
tilfallið.
Blaðið kemur út einu sinni í
viku fyrst um sinn, á þriðju-
dögum, og aukablöð ef ástæða
virðist til. Vænta útgefendur
þess, að blaðinu verði vel tekið.
Erlingur Friðjónsson. i
HÓTEL VARÐBORG
- AKUREYRI - SÍMI 1-26-00 -
Ferðafólk!
Bjóðum yður
1. EL. GISTINGU og VEITINGAR
í VISTLEGUM HÚSAKYNNUM
* -K ★ * *
FUNDARSALIR
FUNDARHERBERGI
* * ★ -K *
Heitur og kaldur
VEIZLUMATUR
HÓTEL VARÐBORG
- AKUREVRI - SÍMI 1-26-00 —