Alþýðumaðurinn


Alþýðumaðurinn - 14.11.1970, Qupperneq 7

Alþýðumaðurinn - 14.11.1970, Qupperneq 7
VIÐSKIPTAVINIR ! VIÐ HOFUM FLUTT PRENTSMIÐJU VORA í NÝ HÚSAKYNNI AÐ GLEÁRGÖTU 24 GJÖRIH SVO VEL AÐ LITA INN ALBERT SÖLVASON, stjórnarformaður Ú.A.: Um sjávarutveg og fiskiánaS ALLT frá landnámsöld hefir lífs afkoma íslendinga verið háð sjávarafla, bæði sem fæðuöflun og til útflutnings. í fjárhags- kerfi þjóðarinnar voru verð- mæti metin til fiska, sem bend- ir ótvírætt á snaran þátt fiskj- arins í þjóðarbúskapnum. Snemma á öldum myndast orð- takið „svipull er sjávaraflinn“ og er eflaust sprottið af biturri reynslu kynslóðanna, sem gengnar eru, en sýnist enn í fullu gildi, sé litið til áranna 1967—68. Snemma hefir þjóð- inni orðið ljóst mikilvægi sjávar aflans sem fæðuöflun, mæðurn- ar hafa hvatt syni sína til að sækja sjóinn, þótt ljós væri þeim hættan, sem því var sam- fara, þá varð tiL orðtakið „sætur er sonar aflinn“. Enn í dag er þjóðinni sætur afli sona sinna, og enn er sjávaraflinn svipull, þrátt fyrir tækni nútímans, og ef til vill vegna hennar. Hver kynsllóð á sin vandamál, sem krefjast úrlausna, okkar kyn- slóð hefir svo fullkomin fisk- leitartæki og stórvirk veiðiskip að hætta er á, að sumar fisk- tegundir verði upprættar með öllu ef ekki er gripið í taumana af festu og þekkingu, og alþjóða samningar gerðir og haldnir um rétt strandríkja til óskoraðra yfirráða yfir landgrunni sínu, Albert Sölvason. og fiskveiðalögsögu á því svæði. Jafnframt þurfum við íslend- ingar að endurskoða ýmis atriði í okkar eigin fiskveiðimálum. Hve lengi á aflamagnið, en ekki aflagæðin að. ráða heitinu afla- kóngur? Hve lengi á að stunda Þeir, sem hafa í hyggju að fela okkur, fyrir sína hönd, fram- > kvæmdir á vori komandi, hafi samband við okkur sem fyrst. TRÉSMIÐJAN REYNIR SF. - VERKTAKAR í BYGGINGAIÐNAÐI - Símar (96) 1-10-82 og (96) 1-22-19 SIQÐI TEG. SKIÐABINDINGAR - STAFIR SKAUTAR OG SKÓR M I K I Ð Ú R V A L SPORTVÖRU- 06 HLJÓDFÆRAVERZLUN AKUREYRAR Sími 1-15-10. netaveiði á sama hátt og nú, þann að bátarnir hafi svo mörg net í sjó, að þeir komist aldrei yfir að vitja um þau öll í einu, og verði þannig alltaf með tveggja og þriggja nátta fisk í aflanum, sem má heita óhæft hráefni? Hve lengi á að gera svo lítinn mun í fiskmatinu á fiskverðinu að það borgi sig betur að koma með mikið magn, sem er lélegt, en lítið magn sem er fyrsta flokks? Hvenær verða gerðar rannsóknir á ýmsum sjávardýrum og öðrum þeim fisk tegundum, sem nú eru algeng- astar í aflanum, sem hægt verð- ur að byggja veiðar á? Er nægi- legt magn fyrir hendi í sjónum við strendur landsins af, skötu- sel, háf, keilu, lúðu, hákarli, hámeri, skötu, svo þessar veið- ar gætu orðið arðgæfar fyrir nokkurn hóp manna sem vildu stunda þær? Þessum spurning- um er varpað fram, vegna þess að fyrir nokkrum árum töldu- margir að ekkert verðmæti væri í því að veiða grálúðu, hörpudisk, kúskel og jafnvel rækju og humar, nú i dag er sumt af þessu styrkar stoðir í atvinnulífi ýmissa byggðalaga og kauptúna landsins. Gætum við ekki enn fjölgað þeim stoð- um, og aukið fjölbreytnina í framleiðslu sjávarafurða okkar, og bætt með því atvinnuástand og þjóðarhag? Alltaf er gott að eiga eitthvað af verkefnum óleyst, þau geta verið eins og sparifé, eða sjóðeign, en ekki má þó draga úr hömlu of lengi, að koma þeim í framkvæmd þv: oftast er tjón að því.' Sumai þeirra fisktegunda sem minnzl er á hér að ofan, eru á erlend- um markaði dýr vara og eftir- sótt, það eru því kjörin aðstaðe fyrir fiskiðnaðinn að fá þessai fisktegundir til meðferðar og gera þær sem eftirsóttastar Allur fiskur og sjávardýr err fljót að skemmast í skipum og bátum, það verður því aldrei o: oft kveðin sú vísa, að brýna fy) ir öllúm sjómönnum að gæt; þess að fylgja öllum reglum urr meðferð aflans, hver sem hanr er, og fyrir útgerðarmönnum ac ERUM AÐ BYRJA AÐ TAKA UPP jólavörur ALDREI MEIRA ÚRVAL BLÓMABÚÐIN LAUFÁS Tæki og efni fyrir SMYRNA og RÝA mottur og púða. ÁRÓRUGARN í feikna úrvali. Verzlun Ragnheiðar 0. Björnsson vanda allan útbúnað og með- ferð aflans eftir að hann er kom inn að landi, því í harðnandi samkeppni um mai'kaði, hlýtur gæðavaran að bera sigur af hólmi, en gæðavara verður aldrei framleidd úr lélégu hrá- efni. í þessum efnum er enn þörf mikilla umbóta. Eins og nú er háttað fæðuöflun í heimin- um, eru stórir hlutar hans í þörf fyrir meiri eggjahvítu í fæðinu en nú er, finna þarf leið ir til að koma eggjahvítuauð- ugri fæðu til þeirra, og fiskur er í flokki þeirra fæðutegunda, það ætti því ekki að verða mark aðsörðugleikar nema að þeir stafi af því að fiskverðið verði of hátt fyrir þær þjóðir sem helzt þarfnast eggjahvíturíkrar fæðu, því margar þeirra eru fátækar, en þar er þá enn eitt viðfangsefnið, sem fiskiðnaður og útflutningsaðilar þurfa að huga að fyrr en síðar. Strangt skipulag og örugg framkvæmd er forsenda þess að veiðar verði arðgæfar ef um lítið magn teg- undaripnar er að ræða, sem veiða skal. Ekki dugar að heill floti safnist á, ef til vill lítið svæði, svo allt verði uppurið á skömmum tíma og éngin beri neitt verulegt úr býtum, ákveð- in skipting verður að vera, og gæti bátastærð og lega miðanna ráðið verulega um þau atriði, en einnig aðstaða til vinnslu. Við þurfum að keppa að því að fullvinna sem allra flestar teg- undir sjávaraflans áður en þær eru fluttar út, en til þess vantar okkur tilfinnanlega fleiri fisk- iðnaðarmenn, vel menntaða, hugkvæma og framkvæmda- sama, hver veit nema einhvei'j- um þeirra takist í framtíðinni að gera íslenzka hákarlinn að jafn góðri útflutningsvöru og t. d. styrjuhrognin eru fyrir Rússa. / • • KAUPMENN - KAUPFELOG CAMPBELLS-súpiír SELVA-saft - ÁVALLT EYRIRLIGGJANDI JOHN LINDSAY HF. GARÐASTRÆTI 38 - SÍMI (91)2-64-00

x

Alþýðumaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.