Alþýðumaðurinn - 14.11.1970, Side 13
HREGGVIÐUR HERMANNSSON, héraSslæknir, Ólafsfirði:
Spjallaá um heilbrigá ismál
í SIÐUÐU nútíma þjóðfélagi er
tryggt heilbrigðiskerfi einn snar
asti þátturinn til að skapa þegn
um þess öryggi. Því má segja
að líf hvers einstaklings er bein
línis háðara læknisfræði en
nokkurri annarri vísindagrein,
því hún er vísindin um mann-
inn og ætlunarverk hennar í
þjóðfélaginu er líkamleg og and
leg velferð hans, frá því að
hann er getinn og til grafar. Ein
sterkasta stoð hvers þjóðfélags,
hvers bæjar- eða sveitarfélags
er því öruggt heilbrigðiskerfi.
Það þarf á hverjum tíma að
vera framlag ráðamanna þjóð-
arinnar til heildarinnar. Ef þess
um undirstöðuatriðum er ekki
fylgt, þá er vá fyrir dyrum.
Því miður er nú víða orðið það
kreppt að í þessum efnum í sum
um héruðum að liggur við neyð
arástandi, ekki sízt að vetrar-
lagi, og er þegar farið að hafa
áhrif á búsetu manna. Það get-
ur því orðið örlagaríkt fyrir hin
ýmsu byggðarlög, hvernig þau
byggjast upp, hvernig fram úr
þessum vanda verður ráðið.
Fjölmörg fagleg og félagsleg
rök hníga í þá átt, að almenn
heilbrigðisþjónusta verði í ná-
inni framtíð bezt rekin með því
að koma á stofn læknamiðstöðv
um. Allt bendir til, að með
læknamiðstöðvum fáist yngri
læknar til starfa út um byggðir
landsins um lengri tíma og þar
með fáist lausn á hinum mikla
læknaskorti í dreifbýlinu, sem
yrði bæði heilbrigðisyfirvöld-
um og læknastétt til sóma.
Byggi ég þar á skoðanakönnun
um þessi mál, sem fram hefur
farið meðal yngri lækna. En
það ber að móta ákveðna stefnu
— heildarstefnu í þessu máli
fyrir landið allt. Mundi hún
geta komið í veg fyrir dýrar
byggingaframkvæmdir á stöð-
um, þar sem engar líkur eru á
að læknar sitji í náinni fram-
tíð. Einnig gæti hún komið í
veg fyrir hugsanlega togstreitu
Hreggviður Hermannsson.
milli einstakra svæða. Heil-
brigðisyfirvöldum hefur verið
kynnt mikilvægi þessa máls, því
öllum má vera Ijóst, að fram-
gangur þess er fyrst og fremst
undir þeim komið. En umfram
allt verður þetta að gerast eftir
einhvei'ju ákveðnu skipulagi út
frá heildinni, en ekki eftir ein-
hverjum tilviljunum eins og
manni finnst hafa átt sér stað,
eða til að bjarga einhverju
vandræðaástandi sem upp hefur
komið. Læknamiðstöðvar eru
þó engin allra meina bót og
leysa ekki bráðan vanda lækna
skortsins. í dreifbýli, og á þeim
stöðum, sem starfandi eru hér-
aðslæknar og verða enn um
ókomin ár, vegna samgangna,
þarf að verða gjörbreyting.
Kveða verður á um lágmarks-
ALÞÝÐUPRENTSMIÐJAN
við VITASTÍG, REYKJAVÍK, SÍMI (96) 1-16-45
Tekur að sér prentun
BÓKA
BLAÐA og
TÍMARITA
og ennfremur alls konar
SMÁPRENTANIR.
Fljót og góð afgreiðsla. — Reynið viðskiptin.
ALÞÝÐUPRENTSMIÐJAN
Húsbyggj endur!
BJÓÐUM ÚRVALS
INNIHURÐIR
Á SÉRSTAKLEGA
HAGSTÆÐU VERÐI.
LEITIÐ UPPLÝSINGA.
TRESMIÐJAN FJALAR
- HÚSAVÍK - SÍMI 4-1S-46 -
útbúnað og aðstöðu bæði hvað
vaiðar starfslið og tækjabúnað
og gefa honum kost á fastmót-
aðri framhaldsmenntun. Ákveð
in skipting verði á stofn og
rekstrarkostnaði milli ríkis og
viðkomandi byggðarlaga. Ná-
kvæm athugun og úrbætur fari
fram á samgöngutækni og nýt-
ingu nýrra samgöngutækja við
sjúkraflutning t. d. þyrluflug.
Er þetta ekki sízt brýnt í þeim
byggðarlögum sem snjóþyngst
eru og samgöngur við nærliggj-
andi héruð tepptar svo vikum
skiptir bæði á sjó og landi.
Fróðlegt verður að fylgjast
með ffamvindu þessara mála á
næstu árum, en allir þeir, sem
áhrif geta haft á þau ættu að
kynna sér þau frá grunni ekki
sízt alþingismenn. Taka þau
föstum tökum eftir beztu föng-
um, en láta ekki þröng smöl-
unarsjónarmið ráða afstöðu
sinni.
%\\v
P —
KRISTJÁN SIGURÐSSON, bæjarfulltrúi:
"s
ÍSLENZK verkalýðshreyfing á
merkilega og lærdómsríka sögu
að baki. Þar hafa skipzt á sigrar
og ósigrar, skin og skúrir, eins
og gerist og gengur í lífi ein-
staklinga og þjóða.
En þegar á heildina er litið,
þá er árangur verkalýðsbarátt-
unnar stórum þyngri á metun-
um en það, sem mistekizt hefir.
Engin þjóðmálasamtök hafa
átt farsælli eða ríkari þátt í end
urreisn og uppbyggingu íslands,
bæði í efnahagslegu og menn-
ingarlegu tilliti en verkalýðs-
VERIÐ VELKOMIN
Bjóðum yður:
HAMBORGARA
Franskar
KARTÖFLUR
Alls konar ÍSRÉTTI
NIÐURSUÐUVÖR-
UR, KEX, ÁVEXTI,
SNYRTIVÖRUR,
SOKKA,
SOKKABUXUR.
Opið til kl. 23.30.
FERÐANESTI
— gegnt flugvelli
— sími 1-24-66.
hreyfingin. Með þrotlausri og
einarðri baráttu sinni, er sótti
vaxtarmátt sinn og baráttuþrek
í boðskap jafnaðarstefnunnar
um frelsi, jafnrétti og bræðra-
lag, tókst alþýðusamtökunum
að slíta fjötra fátæktar og rétt-
Kristján Sigurðsson.
indaleysis af alþýðu landsins og
leiða hana til virkrar hlutdeild-
ar í framfarasókn þjóðarinnar.
Sókn jafnaðarstefnunnar og al-
þýðusamtakanna hefir umbylt
frumstæðu og snauðu þjóð-
félagi, sem sinnti svo til ein-
göngu sérhagsmunum fárra út-
valdi'a stóreignamanna, í nú-
tíma velferðarríki, sem stöðugt
stefnir að fylh'i mannréttind-
um almennings og almennu
öryggi borgaranna. Verkalýðs-
hreyfingin hefir skilað þjóð-
félaginu miklu og glæsilegu
dagsverki. Þess vegna stendur
íslenzka þjóðin i mikilli þakkar
skuld við forvígismennina, sem
hófu á loft merki jafnaðarstefn-
unnar og verkalýðshreyfingar-
innar, og báru það fram til
sigurs. Þjóðin á ennfremur
skuld að gjalda þeim nafnlausu
hetjum, sem stóðu að baki for-
ingjanna, svo og öllum þeim
mörgu alþýðumönnum, sem
hertust í hverri raun og með
æðruleysi sínu, áræði og festu,
stæltu baráttuvilja leiðtoga
sinna.
En þessi framsókn verkalýðs-
hreyfingarinnar og jafnaðai'-
stefnunnar hefði ekki getað átt
sér stað, nema hún ætti sér mál
gögn, er túlkuðu vilja hennar
og stæðu við hlið hennar í blíðu
og stríðu.
Eitt af málgögnum jafnaðar-
stefnunnar og verkalýðshreyf-
ingarinnar á íslandi er blaðið
Alþýðumaðurinn á Akureyri,
sem nú hefir komið út í fjörutíu
ár.
Blaðið Alþýðumaðurinn hefir
verið skelegt málgagn þeirra,
sem minna mega sín í þjóð-
félaginu, enda ætíð haft á sín-
um snærum hugdjarfa og fórn-
fúsa starfskrafta og ritstjóra, og
má þar tilnefna bræðurna Er-
ling og Halldór Friðjónssyni.
Siglfirzkir jafnaðarmenn árna
Alþýðumanninum heilla á þess-
um merku tímamótum blaðsins
með beztu óskum um, að Al-
þýðumaðurinn megi um ókom-
in ár vera áfram sannur mál-
svari íslenzkrar verkalýðshreyf
ingar og jafnaðarstefnu.
Sparisjóður
Glæsibæjar-
hrepps
hefur starfað í meira en sextíu ár.
Hann ávaxtar fé yðar örugglega.
Vaxandi viðskipti sanna góða reynslu.
AFGREIÐSLA:
Brekkugötu 7, Akureyri, sími 2-15-90.