Alþýðumaðurinn - 14.11.1970, Side 17
ar beztu- ámaðaróskir ogv-um<Jeið þá ósk, að Al-
þýðuflokkurinn og verka 1 ýðs]ireyfingin megi njóta
krafta hans og ráðlegginga um.ókomin ár.
. ,:i3
T. SVANLAUGSSON
- , - • • -.i- ___..*yáw»gr'.
I
ÞANN 9. nóvember varð Bragi Sigurjónsson sex-
tíu ára. Hann er fæddur að Einarsstöðum í Reykja-
dal, S.-Þingeyjarsýslu, sonur Sigurjóns Friðjóns-
sonar skálds og bónda þar, og konu hans Kristínar
Jónsdóttur. .Eöðurætt Braga eryalþekkt í Þingeyj-
arsýslu, qg hefir hagmælska og, orðkyngi þótt rík
kynfylgja .með ættinni. Þeir yoru ömmubræður
Braga Jónas bqndi á.Sílalæk, Þcakell á Syðra-Fjalli,
afi prófessors Þorkells Jóhannessonar, og Jóhannes
afi Þorsteins,-sem var prófastur í N.-ísafjarðar-
prófastsdæmi til 1955. Allt voru þetta gáfumenn,
og mun systirin,. Sigurhjörg Guðmundsdóttir, ekki
hafa verið undantekning þar írá. Sigurjón, faðir
Braga, var elzta-barn Friðjóns Jþnssonar frá Hafra-
læk í Aðaldal og albróðir Guðmundar á Sandi. Er
ættin traust .þingeysk bændateít, með föst ættgeng
skapgerðareinkenni og skáldskaparhneigð, — en
einnig óvenjulegt næmi fyrir íslenzku máli og vilja
veg þess sem mestan, þar er Bragi engin undan-
tekning, og fúslega mun hann taka undir með
Stefáni G. Stefánssyni, þegar liánn segir:
- - - ..-.-.'’i
„Ið greiðasta skeið fíi-að-skrílmenna þjóð
er skemmdir á tungunni að vinna“.
Bragi byrjar nám í Laugaskóla 1927, tekur kcnn-
arapróf 1931, stúdentspróf frá M.A. 1935 og Cand.
phil. frá Háskóla íslands 1936, gerist þá kennari í
Reykdælaskólahéraði, en flyzt til Akureyrar 1938
og verður kennari við gagnfræðaskólann hér. —
Síðan hefir starfa vettvangur hans verið bundin
Akureyrarbæ. Auk kennslunnar liefir hann verið
fulltrúi við Ahnannatryggingarnar, setið í bæjar-
stjórn og bæjarráði, verið endurskoðandi Tunnu-
verksmiðju ríkisins og Síldarútvegsnefndar, átt sæti
í Raforkuráði ríkisins, og gefið út ritið Stíganda,
og er nú bankastjóri við útibú Útvegsbankans hér
í bæ, og þingmaður Norðurlandskjördæmis eystra.
Þetta virðist nú mikill starfi og er það, en þó er
þetta aðeins einn þátturinn af starfi Braga hér í
bæ. Ungur að árurn skipaði hann sér í sveit ís-
lenzkra jafnaðarmanna og hefir verið óhvikull í
Alþýðuflokknum síðan, og ávallt í fremstu víg-
línu; setið í bæjarstjórn á hans vegum, og verið
ritstjóri Alþýðumannsins í nær 20 ár, án endur-
gjalds. Sjaldnast er það tilviljun, eða óverðskuld-
að, þegar rnenn veljast þannig til forustu, heldur
liggur þar að baki hæfni viðkomanda og trú manna
á að þeim sé treystandi, og hvorutveggja á Bragi í
ríkum mæli. Hann á og til þeirra að telja. Sagt er,
að þegar fór að bera á þeirn Sandsbræðrum, Sigur-
jóni og Guðmundi,,í opinberum málum, hafi Sig-
urður Jónsson á Yzta-Felli sagt, að mest vit væri
samankomið á Sandi af öllum bæjum Þingeyjar-
sýslu. Þessi orð eru mikil viðurkenning, sé litið til
þess, að þá voru margir spakir menn þar í sveit.
Sagt er, að „fjórðungi bregði til fósturs“. Svo er
um Braga. Ekki fer hjá því, að menn, sem eru í
forystu fyrir stjórnmálaflokki, og öft þurfa að
berjast hart, og stundum óvægilega, eignist liar'o-
snúna andstæðinga, en þeir eignast þá einníg góða
samherja og málsvara, já, vini, sem eru uppbóí
fyrir hitt. Það vona ég, að Bragi finni á þessum
tímamótum ævi sinnar; geti því glaður liorft yfir
farinn veg og með bjartsýni og trausti til framdo-
arinnar um, að málum skipist þann veg sem lif^
starf lians til þessa hefir mótað. Þá mun hann og
telja sér fullaunað það mikla og óeigingjarna starf,
sem hann hefir leyst af hendi í félagsmálum sam-
tíðarinnar. Enn einn þáttur í ævistarfi Braga Si -
urjónssonar er skáldskapurinn, og bregður nor..-
um þar til áa sinna; formið meitlað, frjó hugsun
og limlega farið með málið.
Af því, sem sagt er hér að framan um störf
Braga, er auðsætt, að til skáldskaparins hafa aðeins
gefizt stopular stundir, því rneiri undrun sætix
það, að hann hefir ort fimm ljóðabækur, sem út
eru komnar, og eitt smásagnasafn; hefir nokkuð
annast þýðingar og safnað og búið til prentunar
mikið sagnfræðirit, þ. e. Göngur og réttir. Slik’
afköst, sem hjáverk, geta því aðeins átt sér stao, ati
brennandi áliugi og mikið starfsþrek fari saman
með fjölbreyttum gáfum og reglusemi. Ég vil, í
þessu sambandi, taka hér upp eitt erindi ettrr
Braga; það er úr ljóðabók hans: Undir Svörtuio: ■
urn, og úr kvæðinu Aldarminning Stephans G.
Stephanssonar, að undanteknu bóndanafninu má
heimfæra þetta snjalla erindi á höfundinn sjálfan:.
„Þú varst bóndi, þér var aðalsmerki
það, að búa stórt á tvennan hátt:
alúð leggja að hverju hversdagsverki
hviklaust stefna þó í sólarátt,
vera æ í bóndans starfi og striti
stólkonungum jafn að reisn og viti
taka sér að dagsins önnurn úti
i andans riki snerpusldtt.“
Bragi! Ég óska þér til hamingju með afmælið og
þakka góð kynni og vinsemd á liðnum árum. Það
tekur og einnig til konu þinnar, barna og sifjalíöa,
ALBERT SÖLVASON
A SIGURJÓNSSONAR
Elzta tryggingafélag landsins, býður upp á allar
tegundir trygginga
Hér eru þær íielztu nefndar:
„S J Ó V Á“
Ábyrgðar-
Bruna- og heímilis-
Bifreiða- og dráttarvéla-
Búfjár-
Ferða-
Gler*
ís- og óveðurs-
Húseigenda-
Jarðskjálfta-
Líf-
Lífeyris-
Reksturs- og vélstöðvunar-
Rúðu-
Rúðuísetningar-
Sjó-
Skipa-
Slysa-
Trillubáta-
Vatnsskaða-
TRYGGINGAR
r r
SJOVA tryggt er vel tryggt
SJOVATRYGGINGARFELAG ISLANDS HF.
Umboðsmenn:
KRISTJÁN P. GUÐMUNDSSON
Geislagötu 5
Símar: 1-10-80 og 1-29-10
JÓN GUÐMUNDSSON
Geislagötu 10
Símar: 1-10-46 og 1-13-36
* :>i..