Alþýðumaðurinn - 14.11.1970, Síða 27
HELGA TRYGGVADOTTIR, formaður Kvenfélags Alþýðuflokksins
Frá |)ingi AIJ)ýáuflokksins
Á 33. flokksþingi Alþýðuflokks-
ins, sem haldið var í Reykjavík
dagana 16.—18. október sl. voru
mjög hressilegar umræður og
margar góðar ræður haldnar
um þau mál, er þingið fjallaði.
Á þinginu ríkti félagslegur og
lýðræðislegur andi og voru
ræðumenn ófeimnir við að láta
álit sitt í Ijós um það sem til
mistaka mætti teljast um af-
stöðu Alþýðuflokksins til
ýmissa þjóðfélagsmála á undan-
förnum árum.
Á flokksþinginu voru saman-
komnir kringum 130 fulltrúar
víðsvegar af landinu þar af 29
konur. Umræður héldust við-
stöðulaust út 'þingið, utan
stuttra matarhléa, og voru oft-
ast mjög skemmtilegar og lif-
andi, orðið gafst sjaldan laust
án fyrirvara _og sýndu fulltrúar
vakandi málefnalegan áhuga á
þeim atriðum, sem á dagskrá
voru.
Konur þingsins voru hógvær
ar og voru fáar á mælendaskrá,
höfðu sig lítt í frammi, en þær
sem töluðu gerðu það vel.
Skipulagsleysi ríkti nokkuð
og var ekki fyrirfram auglýst
dagskrá, en sennilega hefur það
átt sinn þátt í að gera þingið
líflegt.
Ýmsar nefndir voru skipaðar
og skiluðu þær álitum og er
alltof langt mál að gera viðhlýt-
andi grein fyrir þeim. Af-
greiðsla lagafrumvarpa um
breytingar á lögum félagsins
tók allmikinn tíma.
Verkalýðsmál voru mikið
rædd og vil ég hér taka upp
Helga Tryggvadóttir.
einn lið úr áliti verkalýðsmála-
nefndar svohljóðandi:
„Þingið telur að stefna beri
markvisst að því, að rauntekjur
íslenzkra launþgea verði a. m. k.
eigi lakari en tíðkast á Norður-
löndum. Þessu markmiði verði
náð með samstilltu átaki ríkis-
valds, atvinnurekenda og sam-
taka launafólks, sem vinni
skipulega að því að auka hvers
konar hagræðingu í atvinnu-
rekstri og hverju því öðru sem
eykur samkeppnishæfni fyrir-
tækja. Rekstraröryggi fyrir-
tækja verði eflt. Stefnt verði að
því að koma á kauptryggingu
starfsfólks og tryggja þannig at
vinnufyrirtækjum þjálfað vinnu
afl að staðaldri.“
í nágrannalöndum okkar eru
háþróuð atvinnufyrirtæki og af
þeim gætu íslendingar mikið
lært ef aðstæður væru til að
senda fólk þangað til að kynn-
ast vinnuhagræðingu, verk-
stjórn, vöruvöndun, stjórnskipu
lagi og síðast en ekki sízt að-
búnaði starfsfólks.
Þá komu fram tilmæli frá
Eyjólfi Sigurðssyni um að kosn
ir yrðu menn til að kynna sér
hina nýju stefnu Danska Al-
þýðuflokksins um að koma í
framkvæmd þeim arðskiptingar
hugmyndum, sem kenndar eru
við Viggo Kampmann, en í
þeim felst að starfsfólk atvinnu
fyrirtækja fái vissan hluta af
arði þeirra í sinn hlut, þannig
skili góð rekstrarafkoma fyrir-
tækis arði til alls starfsfólks og
verður þá um leið hagur hvers
einstaklings að vinna sínu fyrir
tæki vel.
Fræðslu- og menningarmál
voru mikið rædd og kom þar
m. a. fram að nauðsynlegt væri
að fræðsla varðandi sjávarút-
veg og fiskvinnslu verði skipu-
lega tekin inn í fræðslukerfið,
og skipi þar verðugan sess, allt
frá barnaskólum upp í Háskóla.
Þingið taldi að stöðugrar endur
menntunar kennara sé þörf og
benti í því sambandi á hvort
ekki væri hagkvæmt að taka
einn héraðsskólann yfir sumar-
ið og reka þar sumarskóla í þess
um tilgangi.
Hér fer á eftir síðasti liður í
áliti fræðslu- og menningar-
málanefndar þingsins:
„33. flokksþing Alþýðuflokks-
ins vill að bætt verði aðstaða
alls almennings til þess að njóta
menningarverðmæta og þau
gerð að almenningseign, það
verður að búa vel að þeim, sem
vinna að sköpun þeirra og koma
þarf á samstarfi þeirra, sem
njóta lista og hinna, sem skapa
þær. Alþingi og ríkisstjórn ættu
árlega að fjalla um og taka
ákvörðun um, með hverjum
hætti megi bæta aðstöðu alls al
mennings til þess að njóta menn
ingarverðmæta, m. a. hvernig
bæta megi skilyrði til þess að
njóta góðra bókmennta, t. d.
með bættri aðstöðu og endur-
skipulagningu almenningsbóka-
safna, sem eru í hraðvaxandi
mæli aðalmenningarstofnanir
almennings. Hvernig auka megi
kynni almennings af tónlist, m.
a. með auknu tónleikahaldi og
meiri hagnýtingu sjónvarps og
hljóðvarps í þessu skyni og efl-
ingu tónlistarskóla og tónlistar-
iðkunar í heimahúsum, hvernig
auka megi áhuga almennings á
myndlist, m. a. með skipulagn-
ingu myndlistasýninga og efl-
ingu myndlistaskóla, hvernig
leiðbeina megi varðandi notkun
tómstunda, auka iðkun almenn-
ingsíþrótta, stuðla að aukinni
útivist og nánari tengslum við
náttúruna, jafnframt því, sem
náttúruvernd verði aukin og
unnið gegn hvers konar meng-
un.“
Að lokum vil ég vekja athygli
á eftirfarandi ályktun stjórn-
málanefndar:
„Flokksþingið bendir á nauð-
syn þess að þeir jafnaðarmenn,
sem eru jafnandvígir kommún-
isma og kapítalisma, fylki sér
um einn flokk. Með því eina
móti geta þeir unnið málstað
jafnaðarstefnunnar á íslandi og
íslenzkum launþegum það gagn,
sem til þess dugar, að íslenzkt
þjóðfélag mótist í æ ríkara mæli
af þeim hugsjónum, sem eru
kjarni jafnaðarstefnunnar.“ 1
cHreinsimjólk^
ctfMsmo íonoH
— cleansing lotion. —
Ný gæðavara, framleidd a£ EKKOFARM, Akureyri
AKUREYRAR APÓTEK
HEILBRIGÐI
HREINLÆTI
VELLÍÐAN
badedas-
bað
Vítamín
í hverjum
dropa
b a d e d a s •
vítamín
er mest selda
bað Evrópu
í dag
H. A. Tulinius
heildverzlun
INGÓLFS
ALMENNAR VEITINGAR FRÁ KL 2 E. H.
HEITUR MATUR FRAMREIÐDUR FRÁ KL. 6-8 Á KVÖLDIN
ÓDÝR OG VISTLEGUR VEITINGASTAÐUR
INGÓLFS CAFÉ BÝÐUR GESTI SÍNA VELKOMNA
Mælið ykkur mót í INGÓLFS CAFÉ