Stúdentablaðið

Volume

Stúdentablaðið - 01.02.2010, Page 4

Stúdentablaðið - 01.02.2010, Page 4
Leiðari Hver verður hvar? Sú áhugaverða staða er komin upp í kjölfar kosninga til Stúdentaráðs að hið nýja framboð Skrökva er í lykilhlutverki við myndun nýrrar stjórnar. Spennandi verður að fylgjast með þróun mála næstu daga en það þykir Ijóst að breytingar eru í vændum. Kosningar til Stúdenta- og háskólaráðs koma Stúdentablaðinu vissulega við og er í blaðinu rætt við forsvarsmenn Vöku og Röskvu um helstu baráttumálin. Við komum víða við eins og venjulega og eru framtíðarmöguleikar Islands fyrirferðamiklir í blaðinu að þessu sinni. Spurningum um hvort við verðum Eyland eða komum til með að búa í Eden koma upp við lesningu greinar Kristjáns Ara um þetta efni, en upplýsingar sótti hann í vinnuhefti frá Nýsköpunarmiðstöð Islands sem unnið var í samvinnu við stjórnvöld í september síðastliðnum. Miðað við upplýsingarnar þar megum við eiga von á ansi miklum breytingum. Það er margt sem vekur athygli í þeim sviðsmyndum sem dregnar eru upp i umræddu vinnuhefti og eins er margt sem kallar á frekari umræðu og spurningar. Við erum ekki bara á alvarlegu nótunum í blaðinu og má í því samhengi nefna skemmtilegt viðtal við Pál Óskar Hjálmtýsson, tónlistarmann með meiru. Hann svarar því hvort hann ætli sér að verða næsti forseti vor og rekur aðdragandann að skemmtilegri innkomu sinni I Áramótaskaupið. Ástin virðist vera í loftinu og því tilfallið að fjalla örlítið um stefnumótamenningu (slendinga og nýjar leiðir í leit að ástinni. Skammdegisþunglyndi er umræðuefnið í Sálartetrinu að þessu sinni og eflaust eiga margir eftir að ná sér í góð ráð við lestur greinarinnar í þessum dimma febrúarmánuði, Vísindavefurinn svarar því hvað sé lýðræði og Ómar Ragnarsson ritar áhugaverða grein sem gestapenni blaðsins. Ekki má gleyma viðburðarskránni góðu en þar er að finna alla helstu viðburði mánaðarins og margt fleira. Sem sagt stútfullt blað af fróðlegu og skemmtilegu efni sem höfðar vonandi til sem flestra. Áslaug Baldursdóttir ritstjóri STUDENTABLAÐIÐ Súsanna Gestsdóttir Blaðamaður sojalatte@gmail.com Ritstjórn Naomi Lea Grosman Blaðamaður nlg@hi.is Ásdís Auðunsdóttir Blaðamaður asa24@hi.is Steinunn Björk Bragadóttir Blaðamaður sbbl 4@hi.is Edda Sigurðardóttir Blaðamaður edsl 3@hi.is Kristrún Ósk Karlsdóttir Blaðamaður kriskar@hi.is Þorgerður Ösp Arnþórsdóttir Blaðamaður tha50@hi.is Margrét Ágústsdóttir Blaðamaður margret@oddi.is Björn Gíslason Prófarkalesari bgisla@hi.is Karl Emil Guðmundsson Umbrot skemill@gmail.com Kristján Andri Jóhannsson Blaðamaður kajl 7@hi.i Þórdís Reynisdóttir Ljósmyndun www.thordis.tk flickr.com/tordis Jón Júlíus Karlsson Ljósmyndun jjk 1 @hi.is

x

Stúdentablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.