Stúdentablaðið - 01.02.2010, Blaðsíða 11
Netsamskipti
Þegar kemur að netsamskiptum kynjanna kennir
ýmissa grasa og nýtir fólk sér siður eins og
Facebook og einkamal.is til að komast í kynni við
bólfélaga, kærasta/kærustu eða jafnvel sélufélaga.
Spjallforrit eins og MSN, Yahoo Messenger og
Adium eru líka mikið notuð til að stíga fyrstu skrefin
í tælingunni. Það er orðinn siður hjá mörgum að
brjóta ísinn á Facebook með því að bæta þeirri
manneskju sem fólk hefur áhuga á við sem vini. Það
er auðveldara fyrir marga að eiga samskipti I skjóli
tölvuskjásins þar sem meiri timi gefst til að hugsa
vel og vanda valið á þeim orðum sem notuð eru.
Einkamal.is og aðrir sambærilegir vefir eru
sérhannaðir sem stefnumótavefir. Þar getur fólk
skráð hinar ýmsu upplýsingar um sig sjálft og ritað
lýsingu á þvi sem það leitar að. Á þeim vef finna
karlar, konur og pör það sem sóst er eftir. Þrátt fyrir
marga galla á slíkum vefjum eru margir sem hafa
fundið hinn eina sanna eða hina einu sönnu með
þessari nútímatækni.
Rjúkandi kaffi og stefnumót
Fjöldi kaffihúsa er á landinu og það er notalegt
að sitja á kaffihúsi með bolla af rjúkandi kaffi og
sýna sig og sjá aðra. Sumir mæta i þeim tilgangi að
eiga stund með sjálfum sér og jafnvel lesa bók eða
bara að fylgast með fólkinu og njóta einverunnar.
Aðrirfara ( góðum félagsskap og ræða mál líðandi
stundar eða rifja upp það sem liðið er. Svo eru
nokkrir sem líta á kaffihús sem botnlausan brunn
tækifæra til að komast í kynni við mann og annan.
Hægt er að hafa augun opin fyrir öðrum sem eru
einir á ferð eða í litlum hópi vina og biðja svo um
leyfi til að setjast hjá viðkomandi.
Heiti potturinn
(slendingar eru nokkuð duglegir við að nýta sér
sundlaugar landsins enda fátt eins notalegt á
köldum vetrarkvöldum og að skella sér í heita
pottinn og slaka á. Ófá pörin hafa kynnst í
sundlaugum landsins enda eru heimsóknir
(slendinga í laugarnar partur af íslenskri menningu.
Sameiginlegi vinurinn
Mjög góð leið fyrir þann óframhleypna í
vinahópnum er að leita á náðir vina sinna sem eiga
aðra einhleypa vini. Þar sem vinir manns þekkja
kosti manns og galla eiga þeir oft auðvelt með
að skera úr um það hvort tveir einleypir vinir geti
átt samleið. Það getur þó verið vandræðalegt að
hitta manneskju sem manni er komið á stefnumót
með. Þá er oft betra að hittast ásamt sameiginlega
vininum og jafnvel fleirum til þess að hafa
samveruna minna þrúgandi, sérstaklega ef i Ijós
kemur að éhugi er ekki fyrir hendi.
Margir eru þó á þeirri skoðun að svona pörun leiði
sjaldnast til einhvers meira vegna þess að það gæti
sundrað vinahópum ef slík sambönd ganga ekki
upp. Ástæðan er oftast sú að ef pör eiga algjörlega
sama vinahópinn þá annaðhvort hverfur annar
aðilinn eða báðir úr vinahópnum sökum þess að
þeir geta ekki verið saman. Það er hins vegar engin
regla á þessu og svona sambönd geta virkað vel og
enginn þarf að missa neina vini.
Stefnumótamenning í Danmörku
í Danmörku er mikil stefnumótamenning og
fjölmargir möguleikar í boði fyrir einhleypa Dani.
Eitt af því er það sem kallast Running Dinner.
Stofnandi fyrirtækisins sem kom þessu fyrirbrigði
á koppinn er kona að nafni Michelle Hviid.
Michelle fékk fyrir nokkrum árum hugmyndina að
gagnabankanum www.runningdinner.dk þar sem
einhleypt fólk gæti hist og skemmt sér saman. Hún
lét hugmyndina verða að veruleika og hún hefur í
kjölfarið undið upp á sig. Árið 2008 voru 18 þúsund
manns skráðir i gagnabankann og hefur þeim
vafalaust fjölgað síðan. Hugmyndin gengur út á
að fólk skráir upplýsingar um sig í gangabankann,
þar á meðal aldur, kyn og áhugamál. Stjórnandi
síðunnar sér siðan um að para fólk saman á
grundvelli þeirra upplýsinga.
Á vefsíðunni er hægt að velja um að hitta fólk
á mismunandi vettvangi. í boði eru salsatímar,
hraðkynni (e. speed dating), persónuleg ráðgjöf,
út að borða með fáum eða mörgum og svo hið
bráðsniðuga form Running Dinner. Það gengur út
á að tveir einstaklingar úr gagnabankanum sem
passa vel saman að mati stjórnanda síðunnar halda
matarboð. Þeir fara saman út að versla i matinn,
elda saman og taka á móti þrem öðrum pörum
úr gagnabankanum. Kvöldið er skipulagt þannig
að forrétturinn er á einum stað, aðalrétturinn á
öðrum og eftirrétturinn á þeim þriðja. Pörin fara á
nýja staði eftir forréttinn og hitta önnur þrjú pör og
borða næsta rétt. Nýtt gestgjafapar tekur á móti
gestum á hverjum stað. Á þennan máta hittast
18 pör og borða saman. Að eftirréttinum loknum
hittast öll pörin á ákveðnum stað á djamminu.
Þetta form hefur verið geysivinsælt. Viðmælandi
greinarhöfunda sem hefur farið á nokkur Running
Dinner stefnumót segir frelsið vera aðalkostinn. í
raun er þetta afar gott tækifæri fyrir einhleypt fólk
til að fá ferðafélaga að góðu kvöldi án nokkurra
skuldbindinga. Fólk getur hist aftur ef það vill eða
sleppt því.
Væntingar karla og kvenna
Stundum er það lostinn einn sem stjórnar gjörðum
bæði karla og kvenna en oft er það þó leitin að
framtíðarmakanum sem drtfur fólk áfram. Það er
erfitt að henda reiður á væntingum karla og kvenna
því eins og kynin eru ólík þá eru ekki allir karlar eins
frekar en allar konur. Það má þó eflaust álykta að
grunnvæntingarnar séu svipaðar hjá kynjunum því
það er í eðli okkar að vilja finna til öryggis,
hlýju og ástar.
11
STÚDENTABLAÐIÐ