Stúdentablaðið - 01.02.2010, Blaðsíða 19
niður og þar með greiðsla á láninu. Hinn fyrirvarinn
sem kenndur er við Ragnar H. Hall, hann var
afdráttarlausar orðaður í eldri lögunum. Þá var gert
ráð fyrir því að það væru íslenskir dómstólar sem
myndu eiga úrlausn um þetta atriði. Nýju lögin gera
hins vegar ráð fyrir að úrlausn sé I höndum EFTA-
dómstólsins og niðurstaða íslenskra dómstóla megi
ekki vera í andstöðu við ráðgefandi álit hans."
Almennt séð, telur þú að dómstólar
Evrópusambandsins séu hlutlausir og
sjálfstæðir?
„Evrópusambandið hefur á að skipa dómstólum
sem hafa dómara sem eiga að vera sjálfstæðir og
óhlutdrægir. Ég dreg ekkert í efa að dómararnir séu
það en hins vega hefur það verið tilhneiging hjá
Evrópudómstólnum að dæma sambandinu í hag.
að dæma sambandinu i hag vegna þess að það er
eitt af þeim atriðum sem dómurum ber að taka tillit
til, það er samstaða sambandsins og að menn virði
sameiginleg markmið. Þetta kann að hafa áhrif á
niðurstöðu dómstólsins og i þeim skilningi er hann
ekki eins sjálfstæður og óhlutdrægur þegar í hlut
eiga ríki sem standa utan Evrópusambandsins."
Framhald málsins
„Það er mín skoðun að það sé mjög erfitt fyrir
okkur pólitískt að söðla núna um og lýsa því yfir
að við munum ekki greiða nema málið verði lagt
fyrir dómstóla. Þá liggur beinast við að málið verði
lagt fyrir íslenska dómstóla því það er enginn annar
alþjóðlegur dómstóll bær nema með samþykkt allra
aðila. Bretar og Hollendingar gætu þó hugsanlega
farið fyrir dómstóla þar sem er að finna eígnir
íslenska ríkisins og að minnsta kosti freistað þess
að fá viðurkennda sína kröfu þar. Þá held ég að
verði þetta fellt í þjóðaratkvæðagreiðslu þá þurfum
við að leita samninga um málið. Það er einmitt
það sem menn þurfa að meta, er líklegra að við
fáum betri samning að lokinni synjun en við höfum
nú eða gæti synjun leitt til þess að það næðust
ekki samningar og skapast myndi óvissuástand?
Svo er einnig spurning, hvernig munu önnur riki
og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn bregðast við þeirri
stöðu?"
séð, hvorki frá ríkisstjórninni né stjórnsýslunni,
almennilega útskýringu á efnahagslegu og pólitísku
ástæðunum. Það vantar ákveðna heildarmynd þar
sem hægt væri að sjá hverjar hinar raunverulegu
afleiðingar væru fyrir þjóðfélagið. Ég trúi Jóhönnu
og Steingrími þegar þau segja að það séu engar
aðrar leiðir í stöðunni, aftur á móti er lagaleg óvissa
mjög mikil."
Atti ekki að geta gerst
„Regluverk Evrópusambandsins er máttvana
gagnvart lcesave því svona mál átti aldrei að geta
komið upp. Það voru engar viðeigandi reglur, því
má segja að hér sé ákveðin glufa ( málinu. Það sem
er að gerast hér er að tvö lönd {Bretland og Holland}
eru að túlka Evrópulögin sér í vil. Lönd þessi hafa
ekki lagalegt vald til þess, slíkt vald er í höndum
Evrópudómstólsins fyrir ESB-lönd eða EFTA-
dómstólsins fyrir EFTA-lönd. Framkvæmdastjórnin
gæti einnig gefið frá sér túlkun sem hefur eitthvert
lagalegt gildi. Ríkisábyrgð er ekki sjálfgefin í
evrópskum lögum, aðstæður skipta máli. Það segir
hvergi í lögum að þegar innistæður (Tryggingarsjóði
klárist þurfi ríkið að borga."
til um. Þetta staðfestir að mínum dómi að ESB
hefur ekki vald til að setja reglur fyrir endurreisn
efnahagslífs þjóða eftir bankarhrun."
Finnst þér sem Aiþjóðagjaldeyrisjóðinn sé
hlutiaus í málum aðildarríkja sinna?
„Þeir segjast vera það en ef þú lest
gagnrýni Josephs Stieglitz og Amartya
Sen um nútímahagkerfi og verkefni
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins þá gætirðu farið að
efast um það. Enginn sem ég hef hitt hefur
enn sagt að rangfærslur séu ( bókum þessara
fræðimanna. Ég hafði enga sérstaka skoðun
gagnvart Alþjóðagjaldeyrissjóðnum en eftir að ég
las mér frekar til þá er ég orðin áhyggjufull. Svo ég
myndi frekarfá lánaðan pening frá Evrópulöndum
eða Evrópusambandinu heldur en frá
Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Ég hvet fólk eindregið til
þess að lesa sér til um þetta því heimurinn er ekki sá
sami eftir að þú lest gagnrýni þessara fræðimanna."
Kristján Andri Jóhannsson
Maria Elvira Mendez Pinedo,
dósent í Evrópurétti
Rök með:
Efnahagsleg. „Hugsanlegur kostnaður við að fallast
ekki á samninginn fyrir gjaldmiðil, skortur á lánum
o.s.frv."
Pólitísk. „Evrópusambandið vill að við stöndum
við skuldbindingar okkar og séum hluti af hinu
evrópska samfélagi."
Rök á móti:
Lagaleg. „Lagaleg óvissa ( þessari deilu er fyrir það
fyrsta mjög mikil. Stærstu óvissuþættirnir snerta
ríkisábyrgð og hugsanlega mismunun varðandi
neyðarlögin. Frá lögfræðilegu sjónarhorni geta
þessi rök fallið ( báðar áttir sökum efnahagshruns á
íslandi.
Er þetta framtíðin?
„Skýrsla sem Seðlabanki Evrópu gaf út árið 2009
er mikilvæg til að skilja málið betur. Hægt er að
benda á að nokkrar ríkisstjórnir sögðust einungis
ætla að bjarga gjaldfærum bönkum. írlandi var
auk þess gert skylt að bjarga bönkum sem höfðu
kerfisbundna tengingu við hagkerfi landsins. Það er
ákveðin mismunun þar. Árið 2010 sé ég því miður
að þetta mál gæti verið utan valdssviðs ESB og það
gæti verið ósamræmi innan Evrópusambandsins
hvað þetta varðar. Því spyr ég, fyrst okkur hefur ekki
verið gefið tækifæri til að færa lögfræðileg rök fyrir
máli okkar er það sú framtíð sem við viljum fyrir
evrópsk ríki, að stór og valdamikil ríki geti stjórnað
smáríkjunum? Hvort möguleiki sé á að breyta um
stefnu og ná betri samningi skal ég ekki segja til
um. Það er eitthvað sem ríkin ættu að ræða sín á
milli."
Telur þú að Evrópusambandið sé hlutlaust í
þessu máli?
Upplýsingaflæði mætti vera betra
„Mér sýnist að af efnahagslegum og pólitlskum
ástæðum hafi verið ákveðið í október 2008 að
(sland ætti að borga. Lagalegar ástæður lágu þeirri
ákvörðun ekki til grundvallar. Efnahagsleg rök
geta vegið þungt og kannski er betra að gangast
við lcesave-samningnum. Ég hef þó ekki enn
STÚDENTABLAÐIÐ
„Fyrir mér þá hefur Evrópusambandið verið of
hlutlaust því þetta er viðkvæmt mál og mér finnst
sem þeir hafi ákveðið að halda sig frá því. Það er þó
með öllu óviðeigandi að land í Evrópu sem hefur
verið í samningum Evrópusambandsins (16 ár sé
svipt öllum lagalegum réttindum. Hvort Islendingar
hafi mótmælt þessu nægilega skal ég ekki segja