Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.02.2010, Síða 9

Stúdentablaðið - 01.02.2010, Síða 9
MIKILVÆGT AÐ SOFNA EKKI Á VERÐINUM Síðasta ár var viðburðaríkt fyrir Stúdentaráð Háskóla íslands. Mikill niðurskurður hefur legið fyrir í Háskólanum og hefur Stúdentaráð eftir bestu getu reynt að beita sér fyrir því að það komi sem minnst niður á stúdentum. Jóhann Már Helgasson, framkvæmdarstjóri Stúdentaráðs, fór yfir síðasta ár og ræddi við blaðamann Stúdentablaðsins um það hvað stóð upp úr og hvað hefði betur mátt fara. „Ég myndi segja að það sé tvennt sem við höfum áorkað síðastliðið ár. Það þekkja þessi mál flestir en það er annars vegar að sumarönn var í fyrsta sinn í boði og það gerði mörgum stúdentum kleift að stunda nám allan ársins hring. Það var mjög mikilvægt þar sem atvinnuleysi var mikið meðal námsmanna. Hins vegar var það hækkun námslána, við náðum að semja um 20 prósent betri lánakjör fyrir um 80 prósent námsmanna sem er alveg ótrúlegt á tímum kreppunnar," segir Jóhann. Sjáum eftir að hafa treyst skólanum fyrir stúdentakortunum Það var ýmislegt sem Jóhann telur að betur hefði mátt fara. „Það var mjög erfitt að koma í veg fyrir ýmsa hluti en við hefðum mögulega átt að geta fengið Háskólann ofan af því að fella niður upptökuprófin í janúar og júní. Einnig sjáum við mikið eftir því að hafa treyst Háskólanum fyrir að taka yfir stúdentakortin, þau voru nánast eyðilögð að okkar mati. Sem dæmi er ekki lengur sólarhringsaðgangur að háskólabyggingunum. Það er hins vegar enginn rekinn út úr byggingum skólans en þeim er læst á miðnætti á virkum dögum og klukkan tvö á próftíma. Þegar við sáum um kortin gátu stúdentar komist inn i skólann allan sólarhringinn. Þau bera fyrirsig sparnað, það eru ekki til peningar fyrir vaktmönnum til að sinna þessum opnunum. En það hafa aldrei verið menn á vakt og það hefur aldrei komið neitt fyrir þannig að við skiljum ekki alveg þessa ákvörðun. Ég hef verið að tala mikið við öryggisnefndina sem tók þessa ákvörðun einhliða og við höfum verið að reyna að ráða þeirri nefnd frá þessu," segir Jóhann. I haust var Stúdentaráð beðið um að koma með hugmyndirað sparnaðaraðgerðum Háskóla Islands. Hvaða hugmyndir voru það og hvernig var þeim tekið? „Okkar helstu sparnaðarhugmyndir voru að skera niður i stjórnsýslu Háskóla Islands, hún er ansi stór og mikið bákn. Það var allt tekið til greina og rætt á fundum en meginstefið hjá okkur var að skera ekki niður i kennslu. Það var ágætlega hlustað á það. Við vorum sammála um að það yrði það síðasta sem yrði skorið niður. Við hefðum til dæmis aldrei breytt sjúkra- og upptökuprófunum," segir Jóhann. „Það er mikilvægt að hafa sumarönn aftur. Það er ekkert hægt að segja til um hvernig ástandið verður næsta sumar. Námsmenn hafa ekki lengur rétt á atvinnuleysisbótum, það setur marga í erfiða stöðu. Þar af leiðandi er mjög mikilvægt að bæði Háskóli íslands og ríkisstjórnin, axli þá ábyrgð og að fólk geti þá verið í námi allt árið um kring." Láta ekki deigan síga Jóhann segir að Stúdentaráð muni halda áfram að berjast fyrir því að upptökuprófin verði tekin aftur upp í janúar og júni í öllum deildum. „Já, við látum ekkert deigan siga, það er nú þegar búið að taka þetta mál upp einu sinni aftur. Þetta er ekki bara óhagstæðara fyrir nemendur heldur braut skólinn sin eigin lög. Það liggur fyrir kvörtun til umboðsmanns Alþingis i öllum þeim deildum sem brutu lögin. Það var látið vita alltof seint að prófunum yrði breytt en það er bannað samkvæmt lögum skólans. Við settum fram harða baráttu i þessu máli og ætlum ekkert að hætta fyrr en við fáum þetta til baka. Ég hef fulla trú á að umboðsmaður Alþingis taki þetta fyrir, þá er þetta mjög einfalt. Þetta voru lög sem skólinn setti og þau voru brotin. Lögin mega náttúrulega ekki bara gilda einhliða, þau verða að gilda tvíhliða, gagnvart skólanum sjálfum og nemendum skólans. Það er ekki gott ef Háskóli Islands stendur ekki við sín eigin lög. Svo þarf að halda áfram að tryggja atvinnumál stúdenta. Það er mikilvægt að hafa sumarönn aftur. Það er ekkert hægt að segja til um hvernig ástandið verður næsta sumar. Námsmenn hafa ekki lengur rétt á atvinnuleysisbótum, það setur marga i erfiða stöðu. Þar af leiðandi er mjög mikilvægt að bæði Háskóli Islands og ríkisstjórnin axli þá ábyrgð og að fólk geti þá verið í námi allt árið um kring. Síðast en ekki sist hafa verið mjög harðar Lánasjóðsumræður. Þetta er í fyrsta sinn sem við höfum látið þetta verða alvöru Lánasjóðsviðræður og fólk gerði sér grein fyrir því að þetta var í raun okkar kjarabarátta. Við verðum að passa okkur að gefa ekki neitt eftir, það er alltof oft sem við höfum látið undan. Á góðæristímanum hækkuðu laun allra í landinu nema stúdenta og þó við höfum unnið þetta gríðarlega afrek að bæta lánakjör 80 prósent stúdenta þá má ekki sofna á verðinum, við verðum að passa að við gleymumst ekki," segir Jóhann. kók STÚDENTABLAÐIÐ

x

Stúdentablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.