Stúdentablaðið - 01.02.2010, Síða 10
Stefnumótamenning
Islendinga
Þegar talað er um stefnumótamenningu íslendinga kemur við fyrstu skoðun ekki margt upp í hugann. Margir telja að hún sé
nánast ekki fyrir hendi. Þrátt fyrir skort á sviðum stefnumótamenningarinnar þá eru íslendingar langt frá því að vera latir við að
eiga samskipti hver við annan. Við nýtum okkur fjöldamargar leiðir og aðstæður til að komast í samband hvert við annað. Þar ber
helst að nefna næturlífið, Netið, kaffihús, sundlaugar, partí og sameiginlega vini. Stefnumótamenning íslendinga er fyrir hendi að
einhverju marki ef maður leitar aðeins undir yfirborðinu og er það umfjöllunarefni þessarar greinar.
Einnar nætur gaman
Ef við berum ísland saman við önnur lönd
eins og Bandarikin erum við enn nýgræðingar
á sviði stefnumótanna. í Bandaríkjunum lifir
stefnumótamenningin góðu lífi og telst það hinn
mesti dónaskapur að bjóða ekki stúlku út að borða
áður en lengra er haldið.
Ástæða þess að okkur skortir hefðir og reynslu á
sviði stefnumóta gæti verið sú að við erum alin upp
við það að blása ekki upp tilfinningar okkar heldur
snúa okkur frekar að efninu á hlédrægari hátt og
helst með sem fæstum orðum. Þegar karlmaður
á skemmtistað í Reykjavfk sér áhugaverða konu
er hann ekki lengi að snúa sér að henni og grfpa
um mjaðmir hennar í von um það að fá blíðar
móttökur. Oftar en ekki líður stuttur tími þar til að
fyrsti kossinn er kominn í höfn og stefnan fljótlega
eftir það tekin í átt að svefnherbergi þess sem býður
upp á besta húsakostinn. Eftir nóttina er svo skiptst
á nöfnum og númerum fyrir kurteisissakir. Einnar
nætur gaman er algengt fyrirbæri þótt stundum
breytist þessi eina nótt í fleiri nætur. Einhvers konar
samband myndast þótt fólk hafi ekki borðað saman
nema þá kannski pítsusneið á leiðinni heim með
leigubílnum.
Þessi mynd er svo sannarlega langt frá þeirri
draumaveröld stefnumótanna sem Hollywood
predikar. Þar gengur maðurinn með grasið í skónum
á eftir stúlkunni sem í fyrstu þykist áhugalaus
en fer samt á stefnumót með manninum. Eftir
nokkur skipti í félagsskap hvort annars er komið
að fyrsta kossinum sem samkvæmt forskrift
Hollywood-myndanna á alltaf að vera einstakur og
tilfinningaríkur. Tilfinningar vakna og allt er eins
og á bleiku skýi því lífið er svo Ijúft þegar fólk er á
stefnumótastiginu. Einnig gefa sjónvarpsþættir eins
og Sex and the City konum ýmsar ranghugmyndir
um hvers skal vænta þegar kemur að því að hafa
samskipti við hitt kynið. Sumir myndu segja að sú
mynd sem dregin er upp I slíkum sjónvarpsþáttum
sé sú að stefnumót og kynlíf sé einhvers konar
stundarlþrótt sprottin af hvatvfsinni einni saman.
Það gæti þó hugsanlega verið ástæðan fyrir
vinsældum þáttaraða sem þessa, að margar konur
láta sig dreyma um að geta upplifað það sem þessi
vinkvennahópur í New York gerir. Það skal þó látið
liggja á milli hluta í þessari umfjöllun. Eitt er þó víst
að gamaldags gildi og hefðir hafa ekki beint rutt sér
til rúms hér á landi og eigum við því margt ólært i
þeim efnum.
STÚDENTABLAÐIÐ