Stúdentablaðið

Ukioqatigiit

Stúdentablaðið - 01.02.2010, Qupperneq 22

Stúdentablaðið - 01.02.2010, Qupperneq 22
Sóknaráætlun Islands Fjöldi hagsmunahópa kom saman á ráðstefnu á Hótel Sögu á dögunum þar sem umfjöllunarefnið var sóknaráætlun íslands kennd við árið 2020. Hagsmunaaðilar fengu tækifæri til að bera framtíðarsýn sína saman við sóknaráætlun ríkisstjórnarinnar. Markmið sóknaráætlunarinnar er að mótuð verði heildstæð stefna í þágu samfélags og atvinnulífs. Ætlunin er að koma íslandi í fremstu röð í verðmætasköpun, menntun, velferð og lífsgæðum. Stórum spurningum var svo varpað fram í opinni umræðu á ráðstefnunni. Þar var meðal annars spurt: Hvernig endurvinnum við traust í samfélaginu? Hvernig tökumst við á við kreppuna og byggjum upp öflugt atvinnulíf í sátt við samfélag og umhverfi? Hver eru brýnustu verkefnin fram undan? Almennt var jákvætt andrúmsloft á ráðstefnunni og greinilegt að hefja á landið til vegs og virðingar á ný. Jóhanna Sigurðardóttir rorsætisróðnerra: Framtíðin „Framtíðin verður sjaldnast eins og við höfum vænst en það sem við hugsum og tölum í dag hefur áhrif á komandi tíma." Lyktir lcesave-málsins hafa mikil áhrif á framtíðina „Meðan efnahagslif á heimsvísu er á leið upp úr öldudalnum eigum við á hættu að keyrast en lengra niður í öldudalinn. Seðlabanki (slands varar við því að linni óvissunni ekki á næstu vikum séu horfur á því að efnahagslíf taki seinna við sér og samdráttur og atvinnuleysi verði meira en nú er spáð." Guðjón Már Guðjónsson frá Hugmyndaráðuneytinu: Þetta er hægt „Allir sem komu að þjóðfundi fóru með því hugarfari að þetta sé hægt. Á fundinum komu fram tæplega 12 þúsund almennar hugmyndir sem byggðu á átta þúsund gildum. Gildin voru svo leiðarljós fyrir þá vinnu sem átti sér stað síðar um daginn. Níu ráðandi gildi voru ákveðin á fundinum en þau voru heiðarleiki, virðing, réttlæti, jafnrétti, frelsi, kærleikur, ábyrgð, fjölskylda og lýðræði." Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnuli'fsins Byrjunarreiturinn dökkur „Byrjunarreiturinn er ekki glæsileg mynd þegar nú er spáð 11 % samdrætti á árunum 2010 og 2011 samanlagt. Kaupmáttur er að falla um fjórðung, atvinnuleysi 9-10% og við sitjum uppi með 120 milljarða króna nýjan vaxtareikning hjá ríkinu sem mun falla á okkur ár eftir ár þar til við þyrjum að greiða skuldir okkar." Hagvöxtur mikilvægastur „Aðeins eitt svar er til við því hvar við viljum vera eftir fimm ár og hvar við viljum vera eftir 10 ár og það er hagvöxtur. Við verðum á þessum tíma að endurheimta okkar lífsskjör, skapa ný störf og við þufum að byggja upp nýjar útflutningstekjur. Það er atvinnulífið sem þarf til þess að komast upp úr þessum öldudal." Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambands Islands: Fordómalaust uppgjör, samfélagsleg ábyrgð og öflugt atvinnulíf „Það er þrennt sem að mér finnst skipta máli. I fyrsta lagi krafan um fordómalaust uppgjör við fortíðina og það á þæði við um hlutverk fjármálastofnana og líka hlutverk ríkisstofnana, Seðlabankans og annarra stofnana. Ég vænti þess að þetta verði partur af þeirri skýrslu sem væntanleg er. Það er líka Ijóst að við verðum að setja okkur skýrari reglur hvað varðar siðferði. Það er líka Ijóst að við verðum að setja skýrari reglur um samfélagslega ábyrgð fyrirtækja. svo stjórnendur fyrirtækja viti þá betur hvers er vænst og hvers er vænst að ekki sé gert. Það er líka Ijóst að vð þurfum að vinna að þvf með mjög skýra stefnu um bráðaaðgerðir í atvinnumálum. Eins og Keynes gamli sagði það þá getur vel verið að menn hafi það gott í framtíðinni en við verðum líka að lifa skammtímann af til að komast þangað. Við verðum að komast í gegnum þetta atvinnuleysi sem er núna til þess að njóta þess sem er í framtfðinni. Þegar við erum búin að komast I gegnum skammtímavandann þá viljum við sjá öflugt atvinnulíf sem verður á sjálfþærum grunni. Við höfum algjörlega stokkað okkar atvinnustefnu upp og dregið sterkt upp græn og sjálfbær gildi. Við verðum líka að horfast í augu við það að við þurfum stöðugleika bæði í efnahags- og félagslegu tilliti." Við verðum að gefa unga fólkinu tækifæri til að móta framtíðina með okkur, ekki vera besservisserar". Það þarf að skapa tækifæri og hvata til þess að efla fólk til menntunar og endurmenntunar á vinnumarkaði." Kristján Andri Jóhannsson 22 STÚDENTABLAÐIÐ

x

Stúdentablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.