Stúdentablaðið - 01.02.2010, Side 27
Ljósmyndir: Þórdís Reynisdóttir
Þjónar landinu með
tónlist og jákvæðni
Blaðamaður settist niður með tónlistar- og athafnamanninum Páli Óskari á veitingastaðnum Nauthóli þar sem spjallað var um lífið
og tilveruna yfir dýrindismáltíð. Pál Óskar þarf vart að kynna fyrir nokkrum manni en hann hefur um langa hríð verið einn vinsælasti
tónlistarmaður Islands.
Hvað varð til þess að þú tókst þátt í
Áramótaskaupinu?
Ari Eldjárn, sem var einn af höfundum Skaupsins,
kom í heimsókn til mín og kom með þá hugmynd
að Michael Jackson yrði eiginlega að vera með
í Skaupinu þvi þetta hefði nú verið hans ár að
mörgu leyti því þrátt fyrir að hann sé ekki einu sinni
lengur á meðal vor þá var hann mjög áberandi allt
síðasta ár. Stóra spurningin var hvernig hægt væri
að blanda saman Michael Jackson og lcesave og
allri þessari vitleysu sem er að gerast hérna heima.
Hvað á Michael Jackson að syngja? Billie Jean kom
ekki til greina, Heal the World hefði verið allt of
væminn endir á Áramótaskaupinu og það var svo
kærastan hans Ara Eldjárns sem kom með Smooth
Criminal hugmyndina af því að I upprunalega
myndbandinu gengur Michael Jackson inn (svona
glæpamannagreni í hvttum jakkafötum og snýr
öllum í hringi og hendir öllum út og þar sem
grunnhugmyndin að Áramótaskaupinu væri fyllerí
STÚDENTABLAÐIÐ
á Bessastöðum þá passaði þetta vel. Þannig að Ari
kastaði boltanum yfir til mín og spurði mig hvort
ég væri ekki til (að vera Michael Jackson. Ég var til
( þetta vegna þess að það átti ekki að gera grín að
Jackson sjálfum, annars hefði aldrei ég ekki tekið
þátt ( þessu. En mér fannst grunnhugmyndin svo
góð og endirinn lika þar sem allir útrásarvíkingarnir
og þeir sem áttu sinn þátt I hruninu öllu eru leiddir
út (járnum og (fangabúningum upp í bíl þar sem
Eva Joly er við stýrið. Það er óskhyggja hjá mér eins
og svo mörgum öðrum (slendingum að það gerist.
Þjóðin öll er enn þá að biða eftir því að einhver verði
handtekinn, að bíða eftir einhvers konar „closure"
en það er ekkert að gerast. Ari Eldjárn samdi svo
textann, (sland er í lagi?, og það smellpassaði bara
svona við Smooth Criminal. Og ég skal sko segja
þér það að ég var í danstímum ( þrjár vikur hjá
Stellu Rósinkrans að ná dansinum, það er ekkert
grín að reyna að ná Michael Jackson.
En svona varð þetta alla vega til. Og mér fannst
ég nokkuð góður að hafa getað þagað yfir þessu (
allan þennan tíma. Ég steinþagði yfir þessu, sagði
ekki einu sinni fjölskyldunni minni frá þessu eða
nánustu vinum. Atriðið kom eins og sprengja (
andlitið á þeim því það vissi enginn af þessu nema
ég og staffið hjá Skaupinu.
En svona í óbeinu framhaldi af umræðunni
við ástandið í þjóðfélaginu, umræða um
forsetaframboð þitt árið 2012 hefur fengið
nokkra athygli. Er þetta eitthvað sem er komið
frá þér sjálfum eða er þetta bara eitthvert grín
sem hefur komið fram á Facebook?
Þetta kemur ekki frá mér. Mér skilst að þetta sé
einhver 27 ára gamall strákur sem stofnaði þessa
s(ðu, Pál Óskar á Bessastaði, og ég veit ekki af
hvaða hvötum hann gerði það. En svo fékk ég
svo sterk viðbrögð við þessari Facebook-slðu að
ég fór á stúfana og tékkaði á þv( hvað þarf til
til þess að verða forseti íslands, bara svona til