Búnaðarrit - 01.12.1916, Page 6
260
BÚNAÐARRIT
og þeir fara þá hverfandi. Annars er það til erlendis
(í Bretlandi), að fé er hreinsað af ormum að hausti,
einkum lömb. Er þá lömbunum gefið inn meðal (Ovidyne),
sem drepur orminn, og fá lömbin þá snöggvast sótt.
Magnús Einarsson dýralæknir hefir tjáð mér, að það ætti
að mega hreinsa lömb hér að hausti með því að gefa
hverju lambi einn hundaskamt. í Húnavatnssýslu þekki
eg bónda, sem kvaðst drepa orma í lömbum hjá sér
með því að spýta matskeið af steinolíu inn í endaþarm-
inn á þeim.
Eg hefi tekið eftir því, að fái stöku lömb mikla sótt
að hausti, fóðrast þau hvað bezt að vetrinum. Er það
sennilega af þeiin ástæðum, að með sóttinni hafa þau
losnað við orma. Eg álít því að vel væri gerlegt að reyna
að hreinsa iömb að hausti, og annað fé þegar líkur eru
til að það sé með miklum ormum — en það er eftir
mikil votviðrasumur, og lömb eru með bandormum meira
og minna á hverju hausti. Yæri þá bezt að leita upp-
lýsinga um það hjá dýralæknum, á hvern hátt bezt
mundi að haga þeirri hreinsun.
Salt er nauðsynlegt að gefa ormaveiku fé; það er
heldur vörn gegn ormum.
Hröktu heyin verða þá talin næst, sem eitt af því,
er valdið hefir fjárdauðanum þetta vor. Þegar hey hrek-
jast, tapa þau ávalt meira og minna af næringarefnum.
Hversu miklu þau tapa fer auðvitað eftir því, hversu
lengi eða mjög þau hrekjast. Um þetta tap þeirra vita
menn ógerla, og eins vita menn ógerla um það, hvort
heyið, þegar það hrekst, tapar meiru af einu næringar-
efni heldur en öðru. Þegar heyin eru hrakin, getur það
orðið erfitt fyrir kindina að melta þau, þar eð heyið er
í sjálfu sér þungmeltara hrakið, og svo þarf kindin að
éta svo mikið, til þess að fá nægju sína. Getur það þá
jafnvel borið við, að hún fái ekki nóga næringu úr heyinu,
þótt hún éti svo mikið, sem hún getur melt, og verður
þá afleiðingin sú, að kindin leggur af. Ef það svo bætist