Búnaðarrit

Årgang

Búnaðarrit - 01.12.1916, Side 31

Búnaðarrit - 01.12.1916, Side 31
BÚNAÐARRIT 285 fyrir áveitu og flóðgörðum á nokkrum bæjum. Að því búnu fór eg austur í Árness og Rangárvalla sýslur til þess að líta eftir ýmsum verkum, er menn höfðu þar á prjónum, o. s. frv. Kom heim úr þeirri för 24. okt. Auk þessara ferða, er hér hafa verið nefndar, hefi eg farið styttri ferðir, suður að Yífilsstöðum og upp i Mosfellssveit. Samtals hefi eg verið 157 daga að heiman á ferðalagi. Mælingav til áveitu o. fl. hefi eg gert allvíða þetta ár. — Eins og áður er getið, mældi eg fyrir áveitu úr Héraðsvötmlnum á Vallhólminn, og sá um eða sagði fyrir um skurðargerðina. Kostnaðurinn við verkið tiltölu- lega lítill. Gert er ráð fyrir, að 7—8 búendur þar í Hólm- inum geti notið áveitunnar. Á Rjaltdbaklca í Húnavatnssýslu mældi eg fyrir áveitu úr Laxá á Hjaltastaðaflóa. Það er erfitt verk og kostnaðarsamt að gera þá áveitu, þó aðfærsluskurðinn þurfi ekki mjög langan. En það þarf að fara með hann gegnum klöpp, og hleypir það kostnaðinum fram. Kost- naðurinn við verkið áætlaður um 2000 kr. Þá mældi eg fyrir áveitu í Sauðanesi á Ásum úr Laxárvatni. Það er einnig mjög erfitt verk og kostnaðar- samt. Aðfærsluskurðurinn þarf að vera á nokkuð löngum kafla 3—4 metrar á dýpt. Kostnaðurinn á að gizka nálægt 2000 kr. í Hallgeirsey í A.-Landeyjum mældi eg og sagði fyrir um fyrirhleðslu til varnar skemdum af Hallgeirseyjar- fljóti. Því verki lokið og heppnaðist. vel. — Einnig at- hugaði eg um fyrirhleðslur til varnar vatnságangi í Þykkvabænum og tók út fyrirhleðsluna á Dufþekju- bökkum. Auk þessa hefi eg mælt og leiðbeint með áveitu og flóðgarða í Geldingaholti, Stóru-Seylu, Reykjavöllum og fleiri bæjum í Skagaflrði; Ási, Stóradal og Brandsstöðum í Ilúnavatnssýslu; Lundum, Steinum, Beigalda og Ferju-

x

Búnaðarrit

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Búnaðarrit
https://timarit.is/publication/595

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.