Búnaðarrit - 01.12.1916, Síða 8
262
BÚNAÐARRIT
þorskhausa, annaðhvort harða, saltaða eða nýja, og svo
má einnig geía slóg úr flski. Af þessum sjóföngum ætti
að mega gefa gjafar. Þau innihalda mikla eggjahvítu,
sem lambfullar ær þurfa mikið af; og svo ef ormar eru
í fénu, þá eyða þeir mestu af því næringarefni frá
kindinni.
Ef menn geta ekki náð í þessi sjóföng til fóðurbætis,
þá er kornmaturinn.
Súrhey væri mjög gott með hröktum heyjum. Það
er mjög auðmelt og heflr fleiri kosti, og er eg viss um,
að fé fóðraðist miklu betur, ef það hefði súrhey með
misjöfnum heyjum, og raunar hvort sem heldur er. Ættu
allir bændur að hafa súrheystóftir og súrsa árlega hey
handa fénaði. Af því ætti og að mega gefa V* gjafar;
en sé geflð meira, má búast við að fjárhúsin verði of
blaut, og það ef til vill, þótt minna sé gefið af súrheyi,
þar sem þurhey eru kraftmikil.
Salt er sjálfsagt að gefa með hröktum heyjum, og
enda hvort sem er. Það er kindunum bæði til næringar
og hollustu. Bað er hæfllegt, að ætla kindinni 3—4 gr.
á dag. Gott er að gefa það í pækli og bera hann í mygluð
hey, ef þau eru nokkur. Þau ætti ávalt að bleyta, því
að fénu er mjög óholt að anda að sér rykinu úr þeim.
Eg tel það alveg sjálfsagt fyrir bændur, þegar eins
stendur á og haustið 1913, að farga nokkrum kindum fyrir
fóðurbæti og byrja að gefa hann með heyjunum, áður en
féð fer að leggja af.
Mistök með hirðinguogfóðrun verður þá hið
næsta, sem eg álít. að einnig hafi átt mikinn þátt í því,
að vanhöldin urðu svona mikil þetta vor. Hið fyrsta, sem
má nefna í þessu sambandi, er sú venja, sem mjög víða
viðgengst, að menn byrja of seint að gefa fé með beit-
inni á haustin og framan af vetri. Þetta heflr þær afleið-
ingar, að féð leggur af og kviðdregst, verður verra til
beitar og fóðrast ver á misjöfnu heyi. Leggi féð svo
mikið af, að það þurfi að bæta það, þarf til þess gott