Búnaðarrit

Volume

Búnaðarrit - 01.12.1916, Page 18

Búnaðarrit - 01.12.1916, Page 18
272 BÚNAÐARRIT þeim korn úr nýjári. Yoru þá sum farin að fá sótt, og í febrúar- mánuði urðu þau mjög veik af þessum kvilla, og drápust þá 7 af 50, og síðar drápust tvö af þessu sama. Mér lánaðist aidrei að koma góðum bata í þau um veturinn, og gaf þeim þó talsvert af korni. Um nýjár tók eg heim 70 lökustu ærnar og ætlaði að gera þeim vel til. Fór á sömu leið með fóðrið á þeim, þrátt fyrir mikla matargjöf. Voru þær sífelt að fá sótt og drápust smátt eg smátt, þar til í 10. viku sumars; en þá voru dauðar 30 af þess- um 70. Auk þessa bafði eg 160 ær á beitarhúsum, og eyddu þær að eins 50 köplum af heyi um veturinn. Var töluvert af því all- góð taða. Þeim heilsaðist vel, þar til um vorið á sauðburði, þá veiktust nokkrar af sótt og drápust 8, og 3 af þeim frá lömbum sínum“. Hér hafa auðsjáanlega verið ormar í fénu, og lítur út fyrir, að þeir hafi verið í heyjunum líka, þar eð betur heilsaðist því fé, sem lifði mest á beitinni. £n með ærnar, sem heima voru, er þess að gæta, að það var rýrðin úr ánum, og hafa líklega margar verið holdlitlar, er þær komu í hús, og því gengið ver að koma þeim til. Ketill Ketilsson í Kotvogi í Höfnum: „Eg tók lömbin á jólaföstu, gaf þeim '/» kg. af töðu og pela af korni á dag. Fóðruðust þau vel, og fór eg að beita þeim á góu, en gaf þeim þó með alt til sumarmála. Ekkert bar á sótt í þeim; en þegar smalað var til rúnings, fundust 4 gemlingar dauðir. Eg fór að gefa ám um nýjár og gaf þeim korn og töðu. Aldrei þessu vant höfðu þær hósta, og bar á máttleysi í þeim, þótt þær virtust alls ekki vera magrar“. Hér lítur út fyrir að ærnar hafi verið með orma í lungum. Daði Jónsson á Bala á Stafnesi: „Eg gaf lýsi með töð- unni allan voturinn. Bar ekki á óhreysti í kindum hjá mér. Eg tapaði 4 ám fyrir páska um veturinn upp til fjalls. Þær komu allar um haustið eftir, en allar lamblausar. Eg misti fjölda af lömbum þetta vor“. Hér stafar lambadauðinn sýnilega af því, að ærnar hafa ekki haft nóga gjöf um vorið.

x

Búnaðarrit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Búnaðarrit
https://timarit.is/publication/595

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.