Búnaðarrit

Volume

Búnaðarrit - 01.12.1916, Page 20

Búnaðarrit - 01.12.1916, Page 20
274 BÚNAÐARRIT Jón Sigurðsson í Hofgörðum á Snœfellsnesi: „Ærnar veiktust hjá mér, eftir að eg slepti um vorið. Misti eg bæði ær og fjölda lamba. Eg held þær hafi ekki þolað vorkuldana. Hefði eg haft kjarnmikið fóður að gefa þeim um vorið, svo lengi sem þær þurftu, hefði eg ekki mist svona margt“. Eggert Eggertsson í Bíldsey á Breiðafirði: „Féð var hraust hjá mér um veturinn, en mánuð af sumri flutti eg það í land og slepti þvi á Galtadal á Fellsströnd. Ærnar lifðu flestar, en lömbin hrundu niður, svo að eg átti að eins 50 undan 150 ám. Flest dóu lömbin í 6. sumarvikunni. Þá gerði líka á laugardag vondan stórhríðarbyl“. Hér er það sýnilegt, að ærnar hefir vantað aðhlynn- ingu um sauðburðinn. Eyjólfur Stefánsson á Dröngum á Skógarströnd: „Eg fór að gefa ánum um miðja jólaföstu og slepti þeim aftur ’/j mánuð af sumri. Ærnar voru vel hraustar, enda gaf eg þeim töluvert af eyjatöðu um veturinn. Eg misti 10 ær í sjóinn um vorið um fiæði, en enga af veikindum; en lömb átti eg að eins 90 um vorið undir 140 ám. Gemlingar gengu af hjá mér í eyjum um veturinn. Yoru þeir vel haldnir og týndu engum lagði“. Kristján Þorleifsson á Hjarðarbóli í Eyrarsveit r „Eg gaf fé mínu vel allan veturinn, enda bar ekki á neinum veikindum í þvi eða veilu. Um vorið misti eg þó 16 lömb. Af þeim tók örnin 11, en 5 drápust af Blysum11. Hjörleifur Björnsson á Hofsstöðum: „Eg fór að hára um nýjár, en slepti fyrir páska. Hafði og beztu fjárhöld um vorið“. Þetta er jörðin, þar sem Eggert Ólafsson ætlaði að reisa bú. Það er einhver bezta beitarjörð á landinu, því að í góðri tíð á miðjum vetri koma hornahlaup á geml- inga, þótt þeir lifi eingöngu á beit. Magnús Friðriksson á Staðarfelli: „Norðan-stór- hríðarbyl gerði nálægt 20. nóv. um haustið. Lét eg þá smala og láta inn það af fénu, sem náðist; hitt. sem úti lá, hraktist mjög mikið í 3 sólarhringa. Um miðja jólaföstu fór eg að gefa ánum. Hafði eg lýsi með heyjunum alt fram til sumarmála, en er það

x

Búnaðarrit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Búnaðarrit
https://timarit.is/publication/595

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.